Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Shaken not (dis)turbed :)

Pólverjarnir í minni vinnu eru mér endalaus uppspretta gleði og ánægju! Þeir tala mismikla ensku - eins og gefur að skilja - og leitast við að aðstoða hvern annan eftir þörfum! Einn hringdi í mig um daginn og spurði mig hvort minn "nýji" yfirmaður hefði talað eitthvað við mig um childrens holliday!

Ég hugsaði, baki brotnu, og reyndi að tengja í allar áttir en varð að játa mig sigraða og sagði honum að: "nei, því miður, ég hefði ekkert heyrt um það..........."

En þeir gefast ekki upp! Nokkrum dögum síðar hringdi í mig sá af "mínum" Pólverjum sem hefur í gegnum tíðina annast hvað mestu samskiptin. Þeir tala við hann - hann talar við mig! Hann gat komið mér í skilning um hvað children holliday þýddi..... Símtalið endaði á þessum nótum: Ég: aaaaaaaa.... you are talking about children holliday......? W00t Hann: Dobra, dobra!! LoL

Í dag kom hann svo með nýja fjölskyldu til mín sem þurfti að fylla út ýmsa pappíra fyrir atvinnuleyfi og umsókn um kennitölu... Við flissuðum stanslaust á meðan ég talaði pólsku og hann íslensku.... Tounge Þau skildu svo eftir, í þakklætisskyni, Martini flösku og ég sem drekk ekki martini! Veit einhver númerið hjá Bond? James Bond.........? Er það dobbelOseven?

Ég eldaði í kvöld, af fingrum fram, bleikan fisk, sem mitt fyrrum kjallarakrútt gaf mér! Hann kom til mín um daginn og spurði hvort hann mætti tína orma í garðinum hjár mér! Ég sagði honum að það væri sko minnsta mál í heimi! Ormarnir kostuðu bara einn bleikan fisk! Ekki slæm vöruskipti það.........Tounge Hrikalega góður fiskur...... namm!! Með fiskinum eldaði ég að sjálfsögðu glansnýjar kartöflur sem ég tók upp úr garðinum........ Sem minnir mig á það! Ár kartöflunnar?? Ætti það ekki að merkja glás af kartöflum? Ég hef grun um að það hafi gleymst að segja útsæðinu í vor hvaða ár væri..... Woundering Breytir þó ekki því að þær eru góðar - sérstaklega með smjöri og smá maldon..... slurp!!

Eruð þið að kveikja á childrens holliday? Heart

 


Grátandi lömb og jarmandi börn....

....eða var það hinssegin? Woundering

Vaknaði í býtið við sms frá Möggu þar sem hún kvaðst mundu verða fyrir utan hjá mér eftir klukkutíma í pollagalla! Ég sippaði mér fram úr og fór í minn pollagalla svo við værum nú í stíl - enda ausandi rigning úti Smile Keyrðum síðan sem leið lá í réttirnar.

Þar var múgur og margmenni og mátti varla á milli sjá hvort var fleira af fólki eða fé. Wink Ég tók gommu af myndum - ég sá svo marga sæta stráka sko..... sá líka nokkrar sætar stelpur en einhverra hluta vegna get ég ekki sett inn myndir núna! Heppin þar Ellen!! LoL

Kom svo heim um hádegi og bakaði súkkulaði croissant a la Nigella. Náði einhvern tíma í endann á einum þætti hjá henni þar sem hún var að leggja lokahönd á þannig bakstur og síðan hefur mig eiginlega svotil óslitið langað í svoleiðis LoL Ég svindlaði nú vitaskuld og keypti smjördeigið tilbúið til notkunar.... veit ekki hvort Nigella gerði það líka en mér þykir það ekkert ótrúlegt! Tounge Mér hefur sýnst svona í gegnum tíðina að hún sé - eins og ég - ekkert að flækja hlutina óþarflega mikið...... Enda báðar í fyrsta flokki!! - Þarna er ég ööööörlítið undir réttarfarslegum áhrifum Tounge

Sat svo og las blöðin í fyrsta skipti í hálfan mánuð á meðan ég maulaði á góðgætinu og drakk kaffi með allt þar til mér svelgdist allsvakalega á! Ég kom að frétt um manninn þarna sem stakk Pólverjann og stakk svo af úr landi! Þar var talað við Björn Bjarnason og Stefán Eiríksson lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu sem var verulega önnum kafinn að koma sökinni á einhverja undirmenn sína! Gott að þiggja laun sem yfirmaður en þurfa enga ábyrgð að taka sem slíkur!! 
Þar sannast enn og aftur hið forkveðna að ekki eru allir yfirmenn góðir menn og góðir menn eru ekki allir yfirmenn! Náttúrulega bara mest lýsandi fyrir þeirra eigins karaktera en þeir eru bara svo sorglega margir svona!! Sveiattan Einar Áskell hvað ég var fussandi hneyksluð. Pinch Ég jafnaði mig samt fljótlega eftir að ég fékk mér annan bita af croissantinu og fletti blaðinu þar til ég sá mynd og viðtal við "konuna hennar" Gurríar  sem er staðráðin í að aðlagast Skagamönnum - hvernig sem það nú er hægt Tounge

Ég hef enga fordóma gagnvart fólki utan af landi! Sumir af mínum beztu landsbyggðamönnum eru vinir Tounge


Réttarstaða lambs!

Það var ævintýrablær yfir öllu í skóginum í morgun þegar við læddumst létt á tá - ég og hinir vitleysingarnir..........Tounge Þokan lúrði yfir dagrenningunni, allt var kyrrt og hljótt og mér leið eins og ég væri stödd í miðri hryllingsmynd, það vantaði bara eins og eina uglu á grein..... W00t

Ég fékk alveg brilliant hugmynd þar sem ég rölti á eftir hundunum - ég ætla að finna upp box sem stækkar og minnkar eftir þörfum! Spáið í nýtingarmöguleikana!! Það væri hægt að nota eitt og sama boxið undir títuprjóna og ferðatösku. Maður þyrfti aldrei að hafa áhyggjur af því að koma ekki öllu sem keypt er í útlöndum í töskuna - hún bara vex! Svo þegar hún væri tæmd þá minnkar hún niðrí ekki neitt! Tekur ekkert pláss í geymslu! Svo mætti jafnvel útvíkka konseptið og framleiða boxin í mörgum litum! Svona ef ég ætla að vera virkilega væld W00t Mér finnst þetta alveg hrikalega góð hugmynd. Jafnvel betri núna en í morgun......Joyful

Snaraði mér svo í sundleikfimi - kona þarf að vinna upp glataða tíma Wink Ég held að það sé einlægur ásetningur Betu að ég fái massavöðva á maga, rass og læri - þetta endar með því að ég verð há og grönn Tounge Ég þarf hreinlega að úða í mig mat allan daginn eftir tíma hjá henni - just in case ég hefði tapað einhverju af mínum dýrmætu grömmum!! Ég meina - ég er búin að vera lengi að safna...... Errm

Nú er yfir mér einhver værð! Ég er búin að raula, bæði innra með mér og upphátt, í allan dag einhvert ástarljóð sem ég man ekki einu sinni textann við........ En það gerir ekkert til ég bý hann bara til jafnóðum Wink

Á morgun ætla ég í réttir! Horfa á aumingja litlu lömbin þar sem þau stökkva um alla rétt skelfingu lostin - hreint eins og lömb leidd til slátrunar............ FootinMouth og fulla kalla sem standa í hópum og syngja "Hvað er svo glatt.........." LoL Hver veit nema bíllinn sem hefur réttarstöðu grunaðs bíls í mínum huga verði þar.......? Hann er merktur Stútungasaga og ég er sannfærð um að hann keyrir litlu lömbin þangað sem má ekki segja........! W00t

Vonandi snjóar ekki.......... Sideways


Rútínan

...tekin við! Sem er gott InLove

Það var svartamyrkur og álfarnir sváfu englasvefni þegar ég gekk um skóginn með vitleysingana á heimilinu. Ég setti þau bæði í endurskinsvesti - þannig að þau litu út eins og lögregluhundar á vakt- á meðan ég þræddi stíginn í myrkrinu algjörlega varnarlaus! Eins gott að það var enginn á ferðinni Tounge Enda er nú fyrir mestu að þau álpist ekki fyrir bíl - það er nefnilega frekar þannig að bílar álpist fyrir mig.....

Svo tók sundleikfimin við, þar sem ég hamaðist eins og veðurviti í norðaustangarra og flissaði  frekar ódömulega þegar Ásdís ítrekaði að við ættum að passa okkur á því að hafa rassinn fyrir aftan bak...Wink Bætir - hressir - kætir! Var það ekki slagorðið fyrir opal? Passar vel fyrir sundleikfimina líka - gæti komið í staðinn fyrir bláan opal Tounge

Nú sofa hundar eins og hráviði um víðan völl - annar undir ofni og hinn út við hurð! Allt er í dúnalogni og ég er farin að vinna. 

Þakka þeim sem hlýddu Kissing


Hvernig er það....

....ég lít af ykkur í nokkra daga og þið týnið sumrinu!! Hafiði séð haustið sem læðist að? Gulir litir hvert sem ég lít..... Bónus til hægri handar og fölnuð lauf til vinstri handar..... eða er það öfugt....? Tounge Ég þakka bara fyrir að þið týnduð ekki gamanseminni líka.......... Errm Ég er samt voða fegin á meðan ég sé ekki rautt......Sideways

Fór og tók upp nokkrar kartöflur! Nú verða hómmeid kartöflur í kvöldmatinn!! Namm..... verst hvað þær eru skítugar...... FootinMouth Hugsanlega set ég á þær krydd í tilveruna sem keypt var á Sítrónumarkaðinum og smyglað í gegnum tollinn! Hver veit..... Joyful

Klikkað að gera í vinnunni - sem er ágætt - það er þá ekki skollin á kreppa í minni sveit á meðan.

Fílgúd Heart


Ég var..

..rosa heppin með veður í þessari útilegu Wink 

Mér tókst að móðga fimm konur á einu bretti á markaði einn daginn! Fimm stykki - býður einhver betur? Tounge Bara vegna þess að ég vildi ekki kaupa af þeim tösku! Keypti hinsvegar eitt stykki af afskaplega alúðlegum dreng og borgaði honum fimm evrum meira fyrir en hann vildi fá..... Var að spá í að bakka og láta kellurnar vita af því - bara til að fá viðbrögðin - en það var of heitt....... LoL 

Ég grætti líka eina innfædda konu sem var að leita að kettinum sínum gráa! Hún kom og spurði hvort við hefðum séð hann og ég klappaði henni á öxlina og sagði nei.... bætti svo við - á íslenzku vitaskuld..... að vonandi finndi hún hann og þá gerði hún sér lítið fyrir og grét á öxlinni á mér og sagði mér.... á sínu móðurmáli.... að hann væri búinn að vera týndur í tvo daga! Ég sagði og talaði enn mitt móðurmál, um leið og ég strauk henni um bakið að ég hefði oft þessi áhrif á fólk! Það brysti bara í grát....... Cool

Mottóið? Það skiptir ekki máli hvað það er sem þú segir - tónninn skilst Halo

Ég hitti líka látbragðsleikara á Sítrónumarkaðinum - hvar annarsstaðar...? Tounge sem elti mig á röndum og endaði á því að leiða mig eftir markaðsgötunni! Ég sagði honum að hann skyldi nú fara varlega í þetta.... það væri ekki oft sem karlmenn opinberuðu hrifningu sína á mér svona mikið og svona opinberlega - það gæti endað með því að ég tæki hann með mér heim! LoL Nú ráfar hann um Austurveginn í rigningunni og enginn hefur tíma fyrir hann!

Ég ætlaði líka að taka heim með mér, í handfarangri, þjónustustúlku af veitingastað! Bæði vegna þess að hún tók lítið pláss og hentar þess vegna vel í innréttinguna og líka vegna þess að það að rétta upp hendi og segja "una cervesa pour favor" kemst ágætlega upp í vana. Ég ákvað bara að hleypa henni ekkert mikið út og segja alltaf við hana þegar ég færi út í búð "se vende" sem á skandinavísku þýddi vitaskuld: Bíddu hér.... en hún hefði ekki hugmynd um það!

Þá er það bara eitt að lokum! Hver söng "Galdurinn er að geta brosað, geta í hláturböndin tosað, getað hoppað hlegið sungið - endalaust! Hvaða ár og eftir hvern er textinn? 

Þakka þeim sem hlýddu - góðar stundir Tounge


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband