Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Úr koti kerlu..

Þegar ég var lítil leið varla sá dagur að ég bað ekki mömmu og pabba að gefa mér kött, hvolp eða folald..... Ég fékk alltaf sama svarið: "Þegar þú ert orðin stór og flutt í eigið húsnæði, máttu fá þér öll þau dýr sem þig langar í...."

.....í gær lét ég drauminn rætast. Ég tók að mér lítinn kettling úr Einholti. Ég fór nefnilega og heimsótti Fanney um daginn og stóðst engan veginn biðjandi augnaráð Bóndans Tounge

Ljónshjartað og yngsti fjölskyldumeðlimurinn Ég er ekki enn búin að velja nafn á hann en ég er að máta nokkur......Kannski að ég láti hann bara heita Sörli?

Mömmusinnardúlludúskur segir að hann eigi að heita Ögri vegna þess að honum er slétt sama þótt Hrekkjusvínið og Ljónshjarta spili fótbolta á meðan hann sjálfur sefur í markinu.... en hvernig er hægt að segja að svona Kelurófa sé ögrandi?  Kelurófa

Ég undirbjó komuna vel - hann borðar af gullskreyttum hjartalaga diski og Hrekkjusvínið lepur mjólkina hans úr wonnabe kristalskál Joyful

Mömmusinnardúlludúskur var að leggja í hann á Halló Akureyri! Ég sagði honum að það giltu mjög strangar reglur varðandi fararleyfið. Hann fór nefnilega í spariskyrtunni sinni og ég sagði honum að fyrsta reglan og sú sem hefði langmest vægi væri sú að ef einhver ætlaði að berja hann þá myndi hann biðja viðkomandi að doka augnablik á meðan hann færi úr skyrtunni! Það væri lykilatriði að skyrtan kæmi heil heim Sideways

Elskiði friðinn Heart


Velferðarþjóðfélagið

Síðustu sex vikur hafa tveir ungir menn, innan við þrítugt, dáið! 

Báðir voru fyrrum fíklar. Báðum hafði tekist að losa sig undan fíkninni og staðið sig vel.

Báðir féllu þeir og reyndu strax að komast í meðferð. Báðum var hafnað sökum plássleysis. Hvorugum var bent á nein önnur úrræði og báðir fundust þeir morguninn eftir.

Þá var allt búið hjá þeim. Hins vegar upphefst mikil angist hjá öllum sem koma að þessum ungu mönnum. Hræðilegur tími sem sér ekki fyrir endann á um ókomna framtíð!!

Maður spyr sig hvernig hægt sé að neita fólki sem leitar eftir aðstoð! Hvernig er hægt að segja nei? Af hverju er ekki búið til pláss?

Er þetta það frábæra heilbrigðiskerfi sem Íslendingar gorta sig af? Er þetta eitthvað til að státa sig af?

Það hefur lítið að segja að tala fjálglega um vandann og gera auglýsingar úr kirkjugörðum landsins ef það á að yppta bara öxlum og segja "því miður" þegar til á að taka.

Hvers virði er mannslíf? Hvers virði er barnið ÞITT?


Gáta

Í tilefni gærdagsins....

....Hverjir stigu fyrstir fæti á tunglið?


Það er kreppa....

...þannig að mér datt í hug að allur væri varinn góður. Ég er að æfa fyrir Reykjavíkurmaraþon - vildi bara láta ykkur vita í tima svo þið getið farið að safna fyrir áheitum!!

Í húsinu fyrir aftan mig hefur Hvítasunnusöfnuðurinn opnað kaffihús! Svo sem ekkert nema gott um það að segja og þessa góðviðrisdaga sem verið hafa undanfarið eru borð og stólar settir út á stétt og ég fíla mig soldið svona 801.... eða þannig W00t

Ég vildi að kaffihúsið yrði látið heita kaffi Amen en það var ekkert hlustað á það frekar en annað gáfulegt sem út úr mér dettur. Áðan hringdi svo síminn hjá mér og í símanum var maður sem spurði mig hvort þetta væri á kaffihúsinu. Ég blessaði hann í bak og fyrir og þverþrætti fyrir að reka kaffihús. "Nú" sagði maðurinn, "er þetta ekki Austurvegur bla bla? Jú, jú flissaði ég og sagðist alveg geta hellt uppá kaffi ef hann langaði svona rosalega í það!

Hann hafði engan húmor fyrir því Sideways


Pjotr....

Fór út að lötra, eins og ég kalla skemmtiskokkið mitt, í blíðunni! Komst aðeins lengra en síðast á sama tíma - það er bæting sjáðu til Tounge Áður en við verður litið verð ég farin að rífast um verðlaun á landsmóti.....

Ljónshjartað kom með mér og fór síðan beint í fótbolta með Mömmusinnardúlludúski og Hrekkjusvíninu. Tungan á honum lafir út á þjóðveg numero uno núna.

frænkuhittingur í HeiðmörkÉg fór í hrikalega skemmtilega frænkuhitting í Heiðmörk í gær. Einn frændi slæddist með í hópnum en það var almennt talað um að hann væri óttaleg kjéddling Tounge Eníveis við grilluðum, spjölluðum, hlógum, týndum nokkrum börnum - enda ættin að verða of stór hvort eð er. Ferlega góð stund með skemmtilegum stelpum .......og strák! 

Eiginlega aldrei hitt þau fyrr en kynntist þeim í gegnum facebook! Segiði svo að það séu bara perrar á face Halo


A,B,C,D....

Að skipuleggja sig samkvæmt stafrófsröð er flóknara en þið haldið! Ég nota bókasafnkerfið og flokka undirflokkana líka W00t

Hafiði prófað það?

Ég stóð stolt úti í sólinni í dag og pússaði krossviðsplötu sem ég ætla að nota undir pússluspil - já, já - ég er komin í péin.... Búin að arbejde og baka í þessari röð....og komin að prjóna, pússa, pússla Tounge en við vorum komin þar í sögu að ég stóð stolt úti í sólinni - ekki tapa þræðinum!

Þá kom Magga færandi hendi með Soda Stream tæki sem hún hafði rekið augun í í höfuðstað allra landsmanna í dag og mundi um leið eftir að litlu systir langaði svo í þannig græju. Ég sagði henni - alveg í essinu mínu um leið og ég útskýrði fyrir henni reglu vikunnar, að ég væri einmitt alveg að komast að essunum - þegar hún spurði: Eru þá errin næst?

Hún er svo dónaleg hún systir mín!! Ég vil að gefnu tilefni taka það fram að ég er tökubarn - enda hefði mér aldrei dottið þetta í hug Sideways


Öryggið á oddinn

Ég fór í frábæra konuferð í höfuðstað allra landsmanna á laugardaginn. Við röltum Laugarveginn, kíktum í búðir og vitaskuld verslaði ég mér smáflík Cool

Þegar ég svo á sunnudaginn ætlaði að nota flíkina sem ég keypti mér uppgötvaði ég að það hafði gleymst að taka þjófavörnina af.... Nú er það bara spurning hvað ég geri? Fer ég í Kaupfélagið og þykist alls ekki hafa stolið þessari vöru og bið um að þjófavörnin sé fjarlægð.... eða - nota ég kjólinn með þjófavörninni á og trikka allar varnir í búðum héðan í frá? Hugsið ykkur bara þegar ég fer í nýju flíkinni að versla í Bónus og þjófavörnin vælir í hvert sinn sem ég horfi á laukinn....? - Sko.. vegna þess að hann er staðsettur mjög nálægt útganginum W00t

Ég hef, undanfarna viku verið að "passa" heimsins undarlegasta kött! Hann er réttnefndur Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir.... ég kalla hann Mjása en hann heitir eitthvað allt annað......

Mjási í humáttHann kemur og fer eins og hann lystir, stekkur út um gluggann á annarri hæð eins og ekkert sé og situr svo sármóðgaður fyrir utan á morgnana þegar ég vakna. Hann kemur meira að segja með þegar Ljónshjartað og Hrekkjusvínið eru viðruð.... Má þó meira kalla það að hann sé í humátt frekar en samferða...... Mjási

Ég verð þó að viðurkenna það að köttur í glugga hefur alltaf einhvern óútskýrðan sjarma og einn daginn fæ ég mér kött. Ég er staðráðin í því! 


Einstök tilfinning!

Ég toppaði sjálfa mig hvað varðar snilli við matargerð í kvöld.

Þannig var að dagurinn hófst á því að ég loggaði mig á netið og fíflaðist nokkrar mínútur þar áður en ég fór að vinna. Mundi svo allt í einu eftir því að ég hafði fengið mig fullsadda af vinnubrögðum vinnumálastofnunar og hringdi þangað - bara svona til að deila þeirri lífsreynslu með þeim. Það símtal endaði á því að forstöðukona VMST Suðurlandi skellti á mig W00t Ég var svo hvumsa að ég horfði á símtólið í tvær mínútur áður en ég varð reið! En þá varð ég líka reið!

Ég meina hún gerði mistök og höndlar svo ekki að það sé kvartað yfir því? Það væri nær að ég sæi um þessa skrifstofu...... Svo klikkti hún út með því að tilkynna mér með þjósti að það væru átjánþúsund manns á atvinnuleysisskrá - hvort ég gerði mér grein fyrir því? Ég nottla stóðst ekki mátið og benti henni hæðnislega á að þessir átjánþúsund væru ekki allir á hennar könnu.......... og þá var það sem ég upplifði þessa einstöku tilfinningu að láta skella á mig í miðju simtali.

Hringdi um hæl í aðalskrifstofu VMST og bað um yfirmann - nú þegar og ekki seinna en strax! Það var náttúrulega eins og að biðja um að fá eitt viðtalsbil við guð almáttugan þannig að ég fékk netfangið hjá Gissuri, þið munið þeim sem ég ætlaði að dobbla til að borga mér hærri bætur af því að ég hefði aldrei beðið hann um neitt....... Well það er skemmst frá því að segja að ég fórnaði hærri bótum fyrir það að hann hringdi eitt símtal á Selfoss og  segði forstöðukonunni að kurteisi kosti ekkert!! Svona er ég nú alltaf að tilbúin að fórna mér fyrir fjöldann......

Allt þetta tilfinningalega uppnám kostaði það að ég varð að elda góðan mat í kvöld. Ég var svo stálheppin að Mömmusinnardúlludúskur var að hjálpa vini sínum að flytja um daginn og uppskar að launum tvö kíló af humri. Ég eldaði cirka helminginn í kvöld og læt uppskriftina, sem ég fann á vefuppskriftir.com, fljóta hér með.

Þetta er svo góður matur að ég grét við hvern bita sem ég tók, vitandi það að það færði mig nær því að klára............

.....en mitt nýja slogan er: Betra er að grenja yfir matnum en vinnumálastofnun!

Hér kemur uppskriftin og mér er nákvæmlega sama þótt ég svitni hvítlauk fram yfir helgi!


Grillaður humar.

1-2 kiló humar klipptur langsum eftir skelinni
hálfur poki fersk steinselja
4-6 hvítlauksgeirar
1 bolli olífuolía

Ómissandi sósa með humrinum
3-4 hvítlauksgeirar
1/2 líter rjómi - ég notaði matreiðslurjóma

1 teningur kjötkraftur
1 pakki gráðostur (blár)
Afgangurinn af steinseljunni
Salt
Evt. smá sletta af hvítvíni - ég sleppti því, enda meira fyrir að drekka bara mitt hvítvín....

Aðferð

Hvítlaukur og steinselja skorin smátt og sett út í olíuna. Humarinn penslaður í sárið (vel) og látinn liggja í skál í cirka 15-20 mínútur. Á meðan er sósan búin til. Hvítlauksgeirarnir eru skorin smátt og svissaðir í olíu á pönnu. Rjóma, gráðosti og kryddi bætt út í og látið malla smá stund og osturinn látinn bráðna vel. Humarinn er grillaður, mikið atriði er að grilla hann bara á skelinni og ekki snúa sárinu niður. Þegar smá froða myndast á fiskinum er hann tilbúinn. Berið fram með sósunni og ristuðu brauði.

Þessa sósu má nota með hvaða fiski sem er og er t.d. góð með grillaðri lúðu og skötusel.

Bon apetit Heart


Það blundar í mér bóndi

Ég er að ná svo miklum tengslum við mína innri kvenveru þessa dagana. Hún heitir Have Fun - er örugglega af erlendu bergi brotin - og hana langar svo margt......

Okkur langar að búa í sveit þar sem við getum horft á fallegan fjallahring, eiga hunda og ketti, rækta kartöflur, gulrætur og hænur. Langar að stússast í hrossum með öllu sem því fylgir. Elta þau um mýrar og móa og fara í útreiðartúra á kvöldin með lóuna kvakandi í bakgrunni...... Koma þreyttar inn og sofna í nýja rúminu - sem við bæ þe vei eeeeeelskum ;) Mundi sossum ekki slá hendinni á móti fallegum manni ef hann biði þar. Sérstaklega ekki ef hann væri iðnaðarmaður! Þeir eru nebblega svo handlagnir Tounge 

Ég ætla að hringja í Gissur hjá Vinnumálastofnun og zékka á því hvort hann er ekki til í að hækka aðeins hjá mér bæturnar svo ég hafi efni á sjálfri mér og okkur báðum. Get ekki ímyndað mér að hann neiti mér um það. Ég meina ég hef aldrei beðið hann um neitt áður........ Sideways


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband