Bloggfærslur mánaðarins, maí 2012

Kona fer til læknis að láta ráða drauma sína um snúrublogg.

Hana.... þarna sameinaði ég í einni fyrirsögn nánast allt það leiðinlega sem fólk talar um Cool Nema sko ef ég tala um það.....

En af því að ég er í kirkjukórnum þá jarðsetti ég kryddjurtir í dag, hinir sá bara Tounge Ég legg nú ekki meira á ykkur. Síðast þegar ég stóð í þeim stórræðum stytti ég mér leið ofan í kjallara og gekk um í margar vikur með brotin bein og kjallarargólfið stimplað á óæðri endann. Þar áður þegar ég jarðsetti kryddjurtir brast hér á með Suðurlandsskjálfta og ég sat hér úti á tröppum eins og „hver önnur kínverzk kjélling“ svo ég vitni nú í orð mín á þeim tíma. Í dag mundi ég hugsanlega líkja mér meira við Ásdísi Rán....... 

Ég vildi bara vara ykkur við.

Annars er ég að mestu leyti góð þessa dagana - nýkomin úr ástandsskoðun og fékk góða dóma þrátt fyrir aldur og fyrri störf. Þið munið það kannski ekki en ég sagði ykkur það fyrir um það bil ári síðan að ég hefi farið til læknis. Hann sagði mér að ég væri bæði lítil og feit - það vantaði bara að hann segði að ég væri ljót líka Cool Fyrir þetta borgaði ég stórfé og hef gengið átta kílómetra nánast daglega síðan í bræði minni. Þessir kílómetrar hafa nú skilað sér í betri heilsu og útliti. Enda sagði hann mér hvorki að ég væri lítil né feit. 

Hann spurði mig hinsvegar hvernig í ósköpunum hefði staðið á því að ég hefði dottið út af tékklista hjá honum. Ég stóðst náttúrulega ekki mátið og sagði honum að það væri soldið svona þí story of mæ læf að detta út af listum hjá mönnum - það væri helst skatturinn sem gleymdi mér ekki Tounge 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.