Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

BITCHOLOGY

                              

 

   When I stand up for myself and my beliefs, they call me a bitch.

                                   

        When I stand up for those I love, they call me a bitch.

                                   

  When I speak my mind, think my own thoughts or do things my own way,

                         they call me a bitch.

                                   

     Being a bitch means I won't compromise what's in my heart. It  means I live my life MY way. It means I won't allow anyone to step on

                                  me.

                                   

    When I refuse to tolerate injustice and speak against it, I am

                          defined as a bitch.

                                   

  The same thing happens when I take time for myself instead of being

           everyone's maid, or when I act a little selfish.

  It means I have the courage and strength to allow myself to be who I

   truly am and won't become anyone else's idea of what they think I

                             "should" be.

 

I am outspoken, opinionated and determined. I want what I want and there

                      is nothing wrong with that!

                                   

So try to stomp on me, try to douse my inner flame, try to squash every

         ounce of beauty I hold within me. You won't succeed.

                                    

And if that makes me a bitch, so be it. I embrace the title and am proud

                              to bear it. 

 

                                B - Beautiful  woman  

                                 I - In

                               T - Total 

                               C - Control of

                              H - Herself

                                   

                             B = Beautiful

                            I = Intelligent

                             T = Talented

                             C = Charming

                          H = Hell of a Woman

                                   

                             B = Beautiful

                            I = Individual

                               T = That

                                C = Can

                          H = Handle anything

                                   

  "If you can't do something right, get a woman to do it."

                                            Heart


Blues

01 Í húsinu fyrir neðan mig voru tónleikar í allt kvöld. Frábær tónlist! Chicago Blues.... Hef aldrei heyrt um þá fyrr.

Endaði með því að ég lækkaði í sjónvarpinu svo ég heyrði betur. Ekki amalegt að fá svona tónleika beint inn um gluggann. Upplifði mig eitthvað svo hundarðogeinn týpu....

....sem ég náttúrulega er Smile

Takk Chicago Blues fyrir frábært kvöld

Heart

 


Heimskona

Þurfti að erindast í opinberri stofnun áðan.....

.....sá þar penna merktan sænsku fíkniefnalögreglunni - Svenska Narkineitthvaðpolisföringen, þá

001 rifaðist upp fyrir mér þegar ég í fyrrasumar flaug til svíaríkis. Lenti í Stokkhólmi í 000132ja stíga hita og þurfti að doka eftir ferjunni til Finnlands í fjóra eða fimm tíma. Fékk mér göngutúr upp í Gamla Stan, dolféll yfir öllum þessum gömlu byggingum og steinlögðu strætum. Vinkaði kónginum. Drakk einn öllara á borði við svo þrönga götu að mér fannst ég geta snert vegginn á húsinu á móti....

Fann svo á bakaleiðinni yndislega fallegan garð með hávöxnum trjám og kirkju í bakgrunninum, bauð upp á sól og skugga - rétt eins og lífið sjálft, vá hvað ég er djúp........ - Datt í hug að setjast þar og kíkja í kiljuna sem ég var að lesa þá stundina og vildi svo skemmtilega til að var eftir hana sænsku konu sem ég man náttúrulega ekki núna hvað heitir..... á meðan ég biði eftir strætó á ferjustaðinn, sem ég sat þarna og gluggaði í kiljuna fór ég að kíkja á fólkið í kringum mig sem sat þarna eða lá og svaf allt eftir ástandi hvers og eins, birtust laganna verðir, ég svosem kippti mér ekkert upp við það enda alvön löggunni, ég bý nú einu sinni í afar öruggu hverfi Wink En það sem ég ekki fattaði var að þetta var SÆNSKA polisið - þeir ferðast um í flokkum og eru vopnaðir.....

01Þeir voru sumsé mættir til að sópa burtu fíklunum sem lágu þarna og sátu allt um kring.....

Veit ekki hvort þeir voru meira hissa eða ég á að finna mig þarna Tounge 

Svona fór um heimskonuna þá................


tempó

Algjör letidagur í dag.

Vaknaði seint, borðaði morgunmat hægt, verzlaði seinlega, fór út í rólega göngu með litla kút..... hnusuðum varlega af svæðinu sem útilegumennirnir bjuggu á í gær og migum, til öryggis, allan hringinn, bara svona til að fá rétta smellið.....Tounge Er núna að elda kvöldmatinn sem ég ætla að borða seint og hægt.

Elska svona letidaga, þegar ég get gert eins lítið og hægt er á eins löngum tíma og mögulegt er. Algjörlega mitt tempó. Var meira að segja að velta því fyrir mér að skrifa bara annan hvorn staf í þessari færslu en þá hefðu orðið of margar villur fyrir menn smekk - hefði ekki meikað það!

smjúts Heart


Vorboðar....

Vaknaði seint, sé það alveg í hendi mér að þessi lífsmáti að vaka á nóttunni og sofa á daginn hentar mér ekki!

Hristi af mér slenið og fór út í sólskinið. Gekk upp með á með labbakút. Hlustaði á flúðirnar í fjarzka og hunangsflugurnar suða - sumar óþægilega nálægt mér..... Var að leita mér að steini til að hvíla lúin bein þegar ég tók eftir að litli snúllinn var eitthvað órólegur að snuddast í rjóðrinu fyrir ofan mig. Þegar ég kíkti þangað sá ég hvar hann hafi fundið þrjá útilegumenn - steinsofandi eftir erfiði næturinnar. Þeim hefur sjálfsagt fundist áin róandi líka Wink Við íhuguðum örskamma stund að míga á þá - við eigum nú einu sinni þennan reit - en hættum við og héldum þess í stað áfram, enda voru 25þeir farnir að bæra á sér og við ekkert sérlega ginkeypt fyrir vakandi útilegumönnum. Og svo kunnum við okkur líka LoL

Sáum svo hilla undir annan svipaðan fýr úti á túni þar sem hann var annað hvort að æfa sig fyrir brúarhlaupið eða - og það þótti okkur líklegra - var að leita að lyklunum sínum.

Fyrsta ferðahelgi ársins er sannarlega runnin upp með öllum þeim skrautfuglum sem henni fylgja Tounge 

Ég vil taka það fram að ég efast ekki eitt andartak um að allir þessir menn eru aðkomumenn....

Well - ætla að hella mér uppá kaffi og baka vöfflur í tilefni af því að við komumst heil á húfi heim. Mun taka upp gamla lífshætti og fara snemma að sofa í kvöld og næstu kvöld. Nema kannski þegar heimilislæknirinn yndisfríði húsvitjar.

smjúts


Óttutími

Var að koma heim úr borg óttans. Ótrúlega fallegt niðri við sjó. Er ákveðin í því að eignast sumarhús á Vatnsleysuströndinni, feisa mót hafinu og verða kölluð kuldalega kellingin á klöppinni. 23

Sérdeilis útvaldir fá að koma í heimsókn. Smile

Fór í dag í boði Möggu og tók þátt í Fjöri í Flóanum, sem er svona skemmtun fyrir sveitavarginn. Við hittumst, minglum, drekkum súkkulaði, skiptumst á rökum og mótrökum með og gegn virkjunum, mótmælendum og áli......

24 Drakk verulega gott súkkulaði við Urriðafoss og borðaði Urriðaloku, verulega góða samloku með urriða og grænmeti. Rúntuðum svo Villingaholts - og Gaulverjahringinn og dáðumst að útsýninu, ræddum hagvöxt og menningu en alls ekki um karlmenn, kynlíf og kúrbíta. Án gríns ÓTRÚLEGA falleg sveit. Fagur fjallahringur! Og Magga! Gleymdi að segja þér að næst þegar þú hittir gúdlúkking bílstjórann, jú nó..... endilega segðu honum þá að þú eigir roooosalega myndarlega systir, og ekki bara myndarlega heldur svo skemmtilega líka og hún sé alveg til í að drekka með honum kaffi eða kakó..... en alls ekki khalúa eða aðra áfenga drykki, enda stök bindindismanneskja Smile En þetta var nú bara smá hagvaxtarútúrdúr......

Fyndið, hvað það sem virtist endalaus víðátta í gamla daga og óralengdir á milli bæja og niðr'að sjó, er stutt í dag! Ætli þetta hafi eitthvað með skreflengd og hæð að gera? Allavega ekki þroska.....

 Takk endnu igen fyrir daginn Magga mín, það er alltaf gaman að eiga stund með þér!

Fór svo eins og áður sagði og sótti foreldra mína í borg óttans, þau voru fremur óttaslegin enda ekki annað við hæfi..... en er nú aftur komin heim í heiðardalinn, þar sem fuglarnir syngja óttalausir og fyllibyttur pissa við girðingarstaura. Litli kútur var glaður að sjá mig enda ekki von á öðru. Af hverju getur ekki mannfólkið elskað svona takmarkalaust?

Úje - læf is gúd Heart


að breyta degi í nótt - eða nótt í dag.....

....er að spá í að snúa sólarhringnum við. Sofa á daginn og vaka á nóttunni. Á nóttinni er logn, hér er þokkalega bjart á nætrum, allavega yfir sumartímann.... Fínt að vera úti þá. Yfir vetrartímann er hvort sem er myrkur allan sólarhringinn

Flestir eru sofandi á nóttinni, get verið soldið eins og Palli var einn í heiminum.... gert það sem mig lystir, þegar mig lystir.....

Litla kút er alveg sama, bara ef hann fær að vera með mér. Yndisleg vera...... mættu fleiri vera eins og hann LoL 

Svo er svo gott að sofa þegar fólk er á ferli, heyra umgang, mannamál og umferð án þess að þurfa að skipta sér af einu eða neinu!

Eru einhverjir með mér? Eða missir þá verkefnið tilgang sinn?

Ætti kannski bara að fara sofa núna svo ég geti vaknað í fyrramálið?


Dr. House....

......er á leiðinni, tefst kannski aðeins vegna veðurs. Held það sé hálka á heiðinni!!

Hvað er þetta með veðrið!!! Er ekki að koma júní? Hunangsflugurnar grafa sig í fönn að hætti 21hugrakkra Tounge 

22Sem minnir mig á það..... Upp er runnin tími skemmtilega fólksins. Fólksins sem á afmæli þessa dagana. Bráðum á ég afmæli! Kannski ég haldi upp á afmælið mitt úti í skafli. Kveiki á kertum í snjóhúsi........ og býð bara fólki sem getur verið úti á stutterma bol LoL

Well - verð að fara að hafa mig til. Ekki viljum við að læknirinn verði fyrir vonbrigðum Tounge

 

 

 


Öppdeit...

Fékk mér labbitúr með labbakút upp með á.

Aðdáandi minn - þessi með steinhjartað og stáltaugarnar - var búinn að búa til hjartað aftur og skrifa, með steinum að sjálfsögðu....... I gave you my hea.......

Já hér í sveitinni erum við nú svo umhverfisvæn að við erum ekki að sóa pappír það sem skrifa má með steinum!

Alveg dáist ég að honum. Kannski var honum öllum lokið. Ég meina hann er nú einu sinni líffæragjafi....

LoL


Félagsmiðstöð miðaldra húsmæðra...

.... fór í búðina í dag - sem er svosem ekki í frásögur færandi.

Rakst þar á konu - (eða var það öfugt? Tounge) sem ég hef ekki hitt síðan ég gerðist hamingjusamlega fráskilin kona.

Þannig er mál með vexti að menn okkar voru/eru? (hverjum er ekki sama?) vinir.

Allavega, ég var á kassanum að raða í poka eftir innihaldslýsingu - já ég þarf aðstoð! þegar kona gægðist yfir borðið og heilsaði mér!

Mikið rosalega varð ég glöð að sjá hana aftur. Sumir eru bara þannig að það er alveg sama hvað maður sér þá ekki lengi, það er alltaf gaman að sjá þá. Hún er ein af þeim.

Fanney ef þú lest þetta. Ég var HIMINLIFANDI að hitta þig aftur. Endilega höfum samband áfram úr því okkur lánaðist að ramba saman aftur.

Svona er lífið - fullt af óvæntum uppákomum sem einhver annar planar í félagsmiðstöð miðaldra húsmæðra

LoL

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.