Grillaður humar.

Þetta er svo góður matur að maður tárast yfir hverjum bita vitandi það að hann færir mann nær því að klára af diskinum......

1-2 kiló humar klipptur langsum eftir skelinni
hálfur poki fersk steinselja
4-6 hvítlauksgeirar
1 bolli olífuolía

Ómissandi sósa með humrinum
3-4 hvítlauksgeirar
1/2 líter rjómi - ég notaði matreiðslurjóma

1 teningur kjötkraftur
1 pakki gráðostur (blár)
Afgangurinn af steinseljunni
Salt
Evt. smá sletta af hvítvíni - ég sleppti því, enda meira fyrir að drekka bara mitt hvítvín....

Aðferð

Hvítlaukur og steinselja skorin smátt og sett út í olíuna. Humarinn penslaður í sárið (vel) og látinn liggja í skál í cirka 15-20 mínútur. Á meðan er sósan búin til. Hvítlauksgeirarnir eru skorin smátt og svissaðir í olíu á pönnu. Rjóma, gráðosti og kryddi bætt út í og látið malla smá stund og osturinn látinn bráðna vel. Humarinn er grillaður, mikið atriði er að grilla hann bara á skelinni og ekki snúa sárinu niður. Þegar smá froða myndast á fiskinum er hann tilbúinn. Berið fram með sósunni og ristuðu brauði.

Þessa sósu má nota með hvaða fiski sem er og er t.d. góð með grillaðri lúðu og skötusel.

Bon apetit Heart


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband