Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Óvænt vandamál ættleiddra

ALE8B99A87D5FF49 Hún kom um daginn, konan sem ég bað um að ættleiða mig!

Hún sagðist vera komin að sækja mig, mér leið eitt augnablik eins og um árið þegar ég var fimm ára og í pössun hjá frænku minni sem fór með mig á kaffihús og fulli kallinn spurði mig hvort hann mætti eiga mig..... Flissaði svo heimskulega og fór undan í flæmingi sagðist ekki vera búin að pakka.....

Hvað segi ég foreldrum mínum, sem vita ekki betur en að ég sé bara happí með þau, þrátt fyrir að þau hafi aldrei tekið mig með til Nýja Sjálands eða Ástralíu?

Hvernig kynni ég nýju foreldrana fyrir börnunum sem vita ekki betur en að þau geti verið þokkalega ánægð með ömmu sina og afa?

Get ég sloppið fyrir horn með að eiga tvö pör af foreldrum?

Spennan magnast!!! Fylgist með næsta þætti!!

yellow-adoption

 


Mána(ðar)mót

Haldiði ekki að kryddjurtirnar séu farnar að gægjast upp? Tómatarnir tóku sprett og rifu af sér plastið, oreganoinu fannst það þá ekki geta verið minna og kíkti líka upp en myntan er enn feimin og lætur ekki á sér bæra. Bezt ég syngi fyrir hana - eða ekki........ Tounge

Þarf að vinna í dag - það eru víst mánaðarmót og þá er gott að eiga laugardag upp á að hlaupa.

Fer svo í fermingarveislu á morgun, trúi því varla enn að litla barnið sé að fermast. Getur þetta verið? Skrýtið hvað allir aðrir en ég eldast............... Wink

Er að kafna úr kvefi, heilinn úti á túni - hugsa ekki heila hugsun, en ég er alveg viss um að ég ætlaði að segja eitthvað rosalega menningarlegt fyrir ykkur að velta vöngum yfir um helgina, svona svo þið væruð nú ekki verkefnalaus.

Vona að þið eigið góða helgi og að Hafnfirðingar kjósi nú ekki yfir sig stækkun álvers

PS verð að muna eftir að kaupa vikuna

 


Úlfaldar og nálaraugu

Af því að ég er alltaf að heyra og lesa að fólk er að bjástra við að koma úlfalda í gegnum nálaraugu - og af því að ég er svo góð kona Tounge læt ég fljóta hér ráðið til að koma honum í gegn.

a. Berið nálaraugað upp að öðru auganu og dragið hitt augað í pung.

b. Bakkið spölkorn frá úlfaldanum.

c. Bingó - hann er kominn í gegn Wizard

 


Hví?

Las á netinu að Cliff Richards (hér ætlaði ég að setja inn mynd af Cliff) Cool og vinir hans hefðu fengið sér að borða á Fjöruborðinu á Stokkseyri í gær – allt í lagi með það sossum en það sem stakk mig var að veitingamaðurinn sá ástæðu til að fjölyrða um það hversu yndislegir og yfirvegaðir þeir hefðu verið á meðan á heimsókn þeirra stóð. Nú hef ég nokkrum sinnum lagt leið mína á Fjöruborðið og aldrei hefur þessi maður haft ástæðu til að kvarta yfir einu né neinu í mínu fari, hef ég jafnan greitt reikninginn áður en ég hef yfirgefið svæðið! Samt hef ég aldrei lesið neitt um mínar heimsóknir þangað á netinu. Aldrei hef ég lesið neitt um um að t.d. Hrönn hafi verið óvenju yndisleg á meðan á heimsókn hennar stóð..... hef kannski drukkið fullmarga bjóra til þess?

Ekki hef ég heldur lesið neitt um það að Hrönn hafi verið í fullkomnu jafnvægi þegar hún hjólaði heim, þrátt fyrir rauðvínsdrykkju.........

(hér átti að koma mynd af brennivínsdraugnum) Smile


Helgar.....

...eru yndislegar. Þá get ég gert það sem ég vil þegar ég vil. Sofið út, lesið lengur átt tíma með þeim sem mig langar til að umgangast - án þess að ég sé að segja að mér leiðist í vinnunni - en þetta segi ég náttúrulega bara ef einhver vinnufélagi skyldi rekast hingað inn. Smile

Eldaði svakalega góðan mat í gær, kjúklingabringur með lauk, sveppum og gulrótum í mango chutney rjómasósu sem ég bætti döðlum útí. Bakaði svo nan brauð - svona næstum því samkvæmt uppskrift sem ég fann á blogginu hans Ragnars - sem er læknir í frístundum Wink Hvað ætli þetta sé með mig og lækna - eitthvað svona menn í hvítum sloppum sindróm?

Nú skil ég af hverju mér gengur svona illa að verða há og grönn - þetta hefur allt með hæfileika mína í eldhúsinu að gera LoL

Reyndi að beita hugarorkunni til að fá kryddplöntunar mínar til að vaxa betur og hraðar. Horfði og horfði en hef líklega bara gert fræin feimin. Allavega vottar ekki fyrir neinu grænu í þeim pottum enn - hef samt fulla trú á því að það komi.

Gleymdi mér alveg við að hlusta á útvarpsleikritið á rás eitt, var mætt í bílnum hjá aðalpersónunni. Af hverju eru ekki oftar leikrit í útvarpinu? Muniði hvað það var gaman á fimmtudagskvöldum í denn, þegar maður slökkti ljósin í stofunni, hafði bara kveikt á einum lampa í horninu og datt inn í útvarpsleikritið.

Fór svo út í langa göngu, í rigningunni, með litla kút, sem lítur hvorki á sig sem lítinn né kút. Finnst hann bara vera frekar svalur hundur. Leit samt svolítið undirfurðulega á mig áður en hann stakk bananatrénu í eyrun á sér og stökk af stað á eftir gæsunum og náði að bremsa sig af áður en hann bleytti utanáliggjandi kúlurnar tvær, sem hafa hingað til verið viðmiðið - svona þegjandi samkomulag - um hversu djúpt má vaða í ánni.

glyceflu1g_small

Ég væri alveg til í að hafa tvo sunnudaga í hverri viku.

 


Laugardagsblogg

Var að renna yfir bloggin hjá bloggvinum mínum. Þau eru öll svo gáfuleg - gera mig svo miklu betri einstakling Smile Það lúkkar jú svo vel að eiga gáfulega vini.

Sumt af því sem ég las hitti beint í mark og endurspeglaði einhvern veginn það sem ég var að hugsa í dag. Tilviljun? Veit ekki........ hugsanlega ekki!

Well - bezt að fara út með hundinn, hann kaupir það ekki hjá mér að það sé ekki hundi út sigandi Grin Skil það ekki eins og hann getur nú verið viturlegur á svipinn....... Fór með hann út á golfvöll í gær og hann gerði sér lítið fyrir og stökk út í á!

 Ég hélt að ég yrði ekki eldri - hann sá nefnilega gæsir og gleymdi sér aldeilis við að elta þær, þar til bæði eistun voru ríflega horfin á kaf og hann var farinn að taka sundtökin. Jamm þær eru víða hættulegar þessar gæsir........ 

gragaes1

Eigiði góðan dag

 


Allt þetta - og himininn líka

Eldaði ótrúlega góða súpu í gærkveldi. Svokallaða gúllassúpu með nautakjöti, lauk, gulrótum, kartöflum, púrru, hvítlauk og einhverju fleiru. Bakaði svo slembilukkubrauð með. 

supa braud

Keypti mér fræ í gær, ætla að rækta kryddjurtir í glugganum, leitaði út um allt að körfu til að láta þau hanga í, fann hvergi..... Woundering Vitiði hvar ég fæ körfur, helst þrjár samhangandi? Svo tómatarnir mínir verði ekki í kremju.... tomatar  og ég endi ekki með tómatsósu í glugganum

Smile


Systkyni....

...eru dásamlegt fyrirbæri. Ég man eitt sinn þegar ég var á að giska lítil Smile að ég opnaði kleinuskápinn í eldhúsi æsku minnar, settist á gólfið og söng úr bókinni “segðu það börnum.....” ef einhver man eftir henni, þá gekk elsta systir mín hjá, á leið sinni út að skvísast, enda þónokkuð eldri en ég Wink og hreytti út úr sér: “ef þú ætlar að þykjast að kunna lesa reyndu þá að snúa bókinni rétt!!” Ég borgaði hins vegar fyrir mig nokkrum árum seinna og henti litla bróður mínum út á guð og gaddinn, helst á sokkaleistunum, í hvert sinn sem hann fór í taugarnar á mér.

 

Einn daginn gerði eldri bróðir minn mig svo reiða að ég náði mér í beittasta hnífinn sem ég fann og elti hann, hann náði, sem betur fer, að læsa sig inni í herbergi annars er ekki gott að vita hvernig hefði farið. Eftir þetta atvik voru allir beittir hnífar settir á efstu hilluna í eldhússkápnum þannig að mjög einbeittan brotavilja þurfti ef ætlunin var að nota þá til annars en eldhússtarfa Frown

 

Deildi herbergi, sem og flestu öðru, með hinni systur minni, man ekki eftir að skugga hafi borið á það fyrirkomulag. Við lágum flest kvöld og lásum bækur, settum ryksuguna í gang þegar mömmu fannst vera orðið of rykugt inni hjá okkur og héldum svo áfram að lesa.......

relaxed-mom-par-main-245300_community


Bara fínt

Þegar lífið sparkar í mann, hvað gerir maður þá? Sparkar á móti? Lætur sem ekkert sé, bítur á jaxlinn og ber harm sinn í hljóði? Svarar svo að allt sé í lukkunnar velstandi þegar maður er spurður hinnar sígildu spurningar: “Hvernig hefurðu það? eða: “Hvað segirðu?” “Bara fínt”, svarar maður áður en maður veit af. Enda yrði kannski upplit á fólki ef það fengi allan pakkan sem svar við kurteisisspurningu.

 

Frontar eru margir og misjafnir. Stundum þarf að brosa og láta sem allt sé í lagi þótt innra sé svöðusár og grátur.

 

Hvernig hefur þú það?

kvidinn    gladur


Borg hinna brostnu drauma

Ég fer í höfuðstaðinn í dag – já, já það telst til tíðinda, það er ekki á hverjum degi sem maður leggur í langferð yfir fjöll og firnindi.

 getGalImg14 

Ætla að láta langþráðan draum örverpisins rætast – sumsé að fara í Kringluna og Klámbúlluna eins og ég kýs að kalla Smáralindina Wink

laugardalur1

 

Á meðan hún kannar hillur verzlanamiðstöðva ætla ég að sitja á kaffihúsum, stúdera mannfólkið, lífið og tilveruna, leysa lífsgátuna og fletta blöðum eins og hefðardama.

 

Ætla samt ekki að koma seint heim því ég á von á doktor House... jibbý!!!!! Bíð spennt eftir því hvað hann segir mér í kvöld og horfir beint í augun á mér himinbláum augum.

 

Díj hann er svo spenntur fyrir mér - en hver er það sossum ekki?

Mjallhvit


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband