Kærleiksbollur

Kærleiksbollur

1½ dl haframjöl                                                        
3 dl vatn
1/2 pk þurrger (eða 25 gr pressuger)
2 dl rifin gulrætur
1-2 dl jógúrt
2 msk olía
1 tsk salt
ca 500 gr hveiti

 

Setjið haframjöl og vatn í pott og sjóðið í 1-2 mín og hrærið í á meðan.  Þegar þetta er orðinn hafragrautur er potturinn tekinn af hellunni.

Kælið grautinn þar til hann er kaldur.  Setjið gulrætur, jógúrt, olíu og salt í og hrærið vel saman.  Blandið hveitinu og gerinu saman og hrærið saman við grautinn.  Deigið á að vera frekar blautt og klístrað.  Setjið svo deigið í ísskápinn og látið hefast þar yfir nótt.

Formið bollur með skeið.  Látið þær hefast á bökunarplötu í 15 mín. 

Bakið v. 200°C í ca 18 mín. í miðjum ofni.

Gerðu þína eigin uppskrift:
Prófaðu að setja
1 dl rúsínur í deigið eða
4 msk hörfræ eða
1 dl heslihnetuflögur.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband