Grænmeti í ofni!

Þetta er voða gott sem meðlæti með kjúklingi eða í rauninni hverju sem er......... 

1 stór sæt kartafla (eða 2-3 minni)

2 laukar

2 stórir pipar-belgir

3 hvítlauksrif

Blómkál og broccoli.

4-5 gulrætur 

Grænmetið skorið og sett í ofnfast mót. Kryddið með Maldon-salti og svörtum pipar eftir smekk. Hellið vænu dassi af góðri ólífuolíu yfir. 

Setjið inn í 220 °C heitan ofn í 40-50 mín. Hrærið í af og til og hellið meiri ólífuolíu yfir ef þarf. Þegar tíminn er að verða búinn er voða gott að skera gráðost í bita og setja úti í mótið og láta hann bráðna með síðustu mínúturnar.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.