Ég velti því fyrir mér að segja upp varanlegu sambandi mínu við facebook. Þetta samband er mjög undarlegt og í raun alveg rannsóknarverkefni út af fyrir sig.....
......Þarna gefur að líta yfirlýsingar eftir yfirlýsingar um að Lísa á Lóni moki út úr hesthúsinu í dag og í gær og jafnvel á morgun líka? Eða að Sigga á Síðu er búin að baka og taka til og svo koma "vinirnir" í bunum og segja viðkomandi hvað hann sé yfirmáta duglegur...... Þetta er eins og ein stór sjálfshátíðarfullnæging. Svo er ekki eins og hasarinn leiftri hægri vinstri.... Nema hugsanlega hjá mér.... og þeim sem eru í raðdramaköstum yfir kreppunni og aðgerðum ríkisstjórnarinnar - eða aðgerðarleysi hennar. Hvernig svo sem fólk vill líta það mál. Sem bæ þe vei fer algjörlega eftir því hvar í flokki fólk stendur! Fólk sem jafnvel hrópar hæst um að leggja þurfi fjórflokkana niður - ekki seinna en nú, þegar, strax!
Já ég er á því að bloggið henti mér miklu betur - hér get ég endalaust verið fyndin í löngu máli á kostnað náungans og flissað svo hátt og í hljóði yfir margslungnum og stórkostlegum húmor mínum. Sem er að vísu ekki allra - en það er nú ekki mitt vandamál
Og þá yfir í allt annað! Það styttist í páska. Voruð þið búin að átta ykkur á því? Margir dagar framundan þar sem ég get hlúð að uppáhalds áhugamáli mínu: Að gera sem minnst - á sem lengstum tíma......
Þakka þeim sem hlýddu
...er hreint ekki eins flókið og fólk vill vera láta.
Við eigum helling af orðum sem hægt er að rekja allt til þess tíma er Shakespeare ráfaði um myrkviði sinna eigin hugarheima, orð sem eru opin og gegnsæ, nánast eins og íslenska hagkerfið í heild sinni
Tökum dæmi: Konur giftast en menn kvænast! Að giftast er dregið af enska orðinu gift sem þýðir gjöf - liggur alveg í augum úti - ekki satt? Það er hinsvegar alls ekki dregið af danska orðinu gift sem þýðir allt annað og miklu verra. Enda voru forfeður okkar ekkert að koma frá Danmörku og ég alls ekki svo illa þenkjandi....
Trúlofun er annað dæmi um gagnsæi - nefnilega dregið úr ensku af true love..... og þarf ég að útskýra fyrir ykkur þegar talað er um að stúlkur séu orðnar mannbærar?
Þetta - gott fólk - er ástæðan fyrir því að ég horfi ekki á Kiljuna hans Egils Helga. Ég get ekki umborði allar þær slettur sem þar eru borðnar á borð fyrir mig undir merkjum fagmennsku og bókvits.... Ég botna bara ekkert í því hvers vegna þarf að nota öll þessi erlendu orð þegar hægt er nota íslensk orð sem bæði er oft miklu meira lýsandi fyrir það sem verið er að tala um og hljóma betur í því sem á að heita íslenskur menningarþáttur í íslensku sjónvarpi allra landsmanna.
Þessi pistill var í boði lingólöggunnar eins og hún héti hjá Agli og co.
Lifið heil!
Ég á lítinn bláan kisustrák og eins og allir vita þykir kisum fuglar frekar spennandi.
Í stað þess að kaupa endalaust fugla- og músaleikföng dýrum dómi í gæludýraverslunum kaupi ég fuglafóður af viðurkenndum stórkaupmönnum og gef fuglunum hér út á skafl.
Góðar stundir
.....manninn sem ég ætla að giftast á ekki svo förnum vegi í dag.
Hann var í aaaaagalega fallegri peysu og perrinn í mér náði yfirhöndinni og ég strauk honum blítt og brosti meira að segja líka - enda maðurinn í aðlögun - um leið og ég sagði: aaaagalega er þetta falleg peysa......
Þar náði perrinn í mér yfirhöndinni ;) En það er margsannað að ég er ekkert verri þótt ég sé perri og svo náði ég líka góðri snertingu
Ég var að koma úr vatnaþreki! Var vitaskuld í útiklefanum eins og sönnum Íslending sæmir.
Þar sem ég stóð undir sturtunni sá ég hvar búið var að koma fyrir stórum rauðum neyðarhnapp á veggnum. Nánast á því augnabliki fór mig að klæja í fingurnar að slá á hnappinn.... Ég meina hann er stór rauður og beinlínis hrópar á vink!
Hvenær er maður í neyð í útiklefanum? Þegar sjampóið gleymist heima? Þegar strákar koma inn í klefann? Eða lesbíur? Þegar kuldinn er svo mikill að maður frýs við gólfið, sem þó á að heita upphitað,  þegar maður vippar sér undan sturtunni?
Ég gekk fram hjá hnappinum í þetta sinn án þess að slá í hann, lét duga að horfa, en hugsanlega slæ ég í hann næst.... Ég get þá lagt þessar spurningar fyrir þann sem kemur æðandi og ætlar að bjarga mér með munn við munn aðferðinni sem bæ þe vei ég er með afar strangar reglur um. Það fær ekki hver sem er að blása í mig lífi. Ég er alltaf með A3 blað samanbrotið eins og harmonikku um hálsinn þar sem þeir sem fá ekki að blása eru taldir upp
Blaðið er geymt í vatnsheldum staut sem á stendur: Í neyð - brjótið glerið
....eru sjálfshátíðardagar hjá mér.
Þeir hefjast á morgungöngu og stjörnuskoðun með hund og kött upp úr hálfsex og enda á kóræfingu. Ég sver það ég er alltaf að verða betri og betri í kórnum. Ég að ég kunni alveg heil þrjú lög núorðið.......
Ekki versnuðu fimmtudagarnir við það að eftir hádegi er ég með peyja í starfsnámi og hann keppist við að segja mér hvað ég sé frábær! Mætti hreinlega halda að hann vissi að fimmtudagar væru sjálfshátíðardagar ;) Síðasta fimmtudag sagði hann mér að ég væri "afskaplega viðkunnanleg" ....já ég veit... ég hef ekki heyrt það síðan elstu skátar á Eyrarbakka voru ylfingar og í dag sagði hann mér, eftir að hafa spurt hvaða ár ég væri fædd, að ég liti út fyrir vera svona cirka þrítug. Ég tek það fram að ég þvingaði hann ekki á neinn hátt
Ég var að horfa á kiljuna hjá Agli í gær. Þetta er annar þátturinn í röð sem ég reyni að þrauka út heilan þátt og ég uppgötvaði í gær hvað það er sem truflar mig svona svakalega í þættinum. Veit einhver meilinn hjá Agli svo ég geti sagt honum mína skoðun umbúðalaust?
Farin að sofa! Á morgun er árshátíð og þá þarf kona að koma vel fyrir. Það er ekkert sem reddar því betur en átta tímarnir.
Lifið í lukku
Ég vaknaði snemma - fór út með hund og kött. Sótti mér Fréttablað dagsins í ferðinni.
Las svo frétt um að Clinton, fyrrum bandaríkjaforseti, væri að jafna sig eftir hjartaþræðingu - um leið og ég borðaði rúnstykki með rækjusalati..... Við verðum bara að vona að ég jafni mig líka
Tók svo persónuleikapróf sem heitir: "Ertu siðblindur?"  á meðan ég borðaði rjómabollu. Kom út með fullt hús stiga enda tók ég prófið sem fyrrum vinnufélagi. Úffffff sá á við vandamál að stríða. Ég er heppin að þurfa ekki að umgangast hann
Ég sendi líka sögur í verkefni sem heitir: Lesið í lauginni. Þannig að ef þið eigið leið á Selfoss um páskana þá getið lesið stórbrotin ritverk eftir undirritaða á meðan þið syndið...... nema ef ske kynni að mínum sögum yrði plantað á botn djúpu laugarinnar. Ef, hinsvegar, þið eigið enga leið hingað þá getið þið bara haldið ykkur við að lesa bloggið mitt!
Nú ætla ég að hjóla í rigningunni til uppáhaldsömmunnar minnar.
Lifið í friði
Englaskottið - eins og ég kýs að kalla kattarósómann - hvarf í morgungöngu gærdagsins!
Ég var svosem ekkert að panika yfir því, hann hefur áður farið einhverjar ótroðnar slóðir og skilað sér heim um svipað leyti og við hin ;)
....en í gær hvað við annan tón. Ég fór í hádeginu og skimaði svæðið og kallaði blíðlega til að byrja með.... á Hrekkjusvínið. Englaskottið svarar því kalli alltaf. Heldur enda staðfastlega að hann sé hrekkjusvínið í dýragarðinum. En enginn grár köttur gaf sig fram. Ég skildi eftir opið þegar ég fór í vinnu númer dos og lagði Dúskinum lífsreglurnar með að vera vakandi yfir heimkomu kattarins.
Það er skemst frá því að segja að þegar ég skellti í lás í gærkvöldi var hvergi sjáanlegur grár köttur og  var mér nú nánast hætt að standa á sama, þrátt fyrir uppörvunarorð Dúsksins sem sagði orðrétt: "Hann er einhversstaðar úti að slást og kemur svo...." og: "Ég sagði þér að hann væri ekki útiköttur. Nú geturðu kennt þér um....." Alltaf svo hlýlegur. Hefur það sko frá pabba sínum
Ég vaknaði tvisvar í nótt við það sem ég var sannfærð um að væri mjálm á glugga - sem er náttúrulega fáránlegt - búandi á annarri hæð ;) Tók öryggishring í bæði skiptin ef litla skinnið vildi komast inn.
Það var síðan þegar við Ljónshjartað komum heim úr morgungöngunni í morgun að lítill grár köttur sat á tröppunum, ólarlaus, svangur, þyrstur og hás. Það urðu vitaskuld miklir fagnaðarfundir enda Ósóminn búinn að vera í burtu í 25 tíma - eins og hver annar leigubílstjóri.
Ég gaf honum að borða, rjóma og rækjur, og hann svaf síðan við hlið mér á meðan ég vann hér við tölvuna og varð ekki haggað. Ósómanum sko  - ég er afar hreyfanleg.
Hann situr núna og hristir hausinn hneykslaður þegar ég býð honum út.
Mömmusinnardúlludúskur er ákveðinn í að honum hafi verið stolið og við jafnvel sloppið naumlega við að greiða lausnargjald en ég held, þó ég fari lágt með það að bæði sé það að fólk sé almennt hætt að stela köttum og það að ólina vanti bendi til einhvers annars.......
Ég er hinsvegar að íhuga það núna að leyfa honum bara að vera ólarlausum. Þær eru greinilega hættulegri en maður heldur þessar ólar, svona líka mjóar og sakleysislegar.
Skítt með það þó hann hafi þá enga bjöllu. Það er nóg til af fuglum!
Góður vaskdagur að baki........  - góð vika að baki, ef út í það er farið.
Átti kannski ekki svo ýkja góða kóræfingu í gær, þar sem Ave verum corpus var sungið í tveimur mismunandi útsetningum og ég búin að æfa þá þriðju stíft...... Á þannig stundum er gott að vera gleyminn og geta bara látið sig hlakka til næstu æfingar  - eins og ekkert hafi í skorist ;)
Það styttist í árshátíð kórsins og ég hlakka svo til!!
Hafiði spáð í það að síðan ég joinaði kórinn hefur líf mitt tekið alveg nýja stefnu? Frá því að vera í 50% vinnu og potential þunglyndissjúklingur í að vera svo önnum kafin í ríflega 100% vinnu að ég sé ekki á milli augnanna á mér og elstu skátar á Eyrarbakka muna ekki eftir að félagslíf mitt hafi verið svona fjörugt
Ekki? Nú... ég hélt að ég væri aðalviðfangsefni ykkar........... Hvað er það þá sem þið eruð að spá?
Ég fór í bókasafnið í dag og tók mér bækur - eina nýja eftir Vikas Swarup sem heitir Sex grunaðir og aðra ekki svo nýja eftir Lisu Marklund. Ég er alveg að ná upp fyrri lestrarhraða eftir augnaðgerð..... en þorði samt ekki að taka nema eina nýja bók þar sem á þeim eru tímahöft og ég kann illa við að lesa undir pressu - kann raunar illa við allt undir pressu. Tjah.... nema kannski eitt.....
Tók líka tvær videospólur þar sem ekki verður horfandi á sjónvarp eftir Útsvar.
Er að bíða eftir að brauðið hefist svo ég geti bakað það og borðað svona líka splunkunýtt með grænmetisfiskisúpunni. Það er að segja.... ég eldað grænmetissúpu í gær og fann svo lúðu í frystinum í dag þannig að í kvöld verður grænmetisfiskisúpa! Namm
Mömmusinnardúlludúskur er úti á sjó og ég sagði honum að hann fengi ekki að koma heim nema með nýjar birgðir af lúðu.
Þakka þeim sem hlýddu
Ég þurfti að skjótast í höfuðstaðinn í dag. Eða skjótast og skjótast.... maður skýst náttúrulega ekki nokkurn skapaðan hlut í borg óttans. Þar taka hlutirnir alltaf regintíma.
Ég þurfti að fara alla leið út á Granda - og ég er alltaf jafn hissa á að enginn skuli þurfa að vinna í Reykjavík. Þar eru allir úti að keyra og yfirleitt á sömu leið og ég.... - en málið er að ég hef ekki komið út á Granda síðan systir mín var að vinna hjá Kristjáni Skagfjörð, þannig að ég ákvað að taka smá rúnt um Örfirisey og olíutankana.
Þegar ég var alveg að komast út á heimsenda sá ég skilti sem á stóð: Rauði herinn ;) eða eitthvað slíkt og undurveikar bjöllur fóru að óma í hausnum á mér. Ég stoppaði smá stund undir skilti af hundi með ól - þeir eiga greinilega ekkert að vera að spóka sig lausir þarna við sjóinn.... og hugsaði stíft. Snéri við og keyrði aftur, löturhægt,  framhjá húsinu og sá þá annað skilti sem á stóð Dagssetur.... og þá mundi ég hvern ég þekki sem vinnur þar og hjá Rauðu kmerunum, lagði bílnum og fór inn og knúsaði Birnu Dís smá stund. Keypti meira að segja hjá henni blúndu undirpils - enda hef ég alltaf sagt það. Undirpils og kjólar eru stórlega vanmetnar flíkur
Það var frábært að hitta Birnu og spjalla smástund við hana - jafnvel þótt vinnan hennar hafi stanslaust slitið í sundur hjá okkur........
Stundum heyri ég lag sem minnir mig á mann með falleg augu og hlýjan faðm. Þetta er eitt af þeim.....  <object class="youtube" type="application/x-shockwave-flash" style="width: 425px; height:350px;" data="http://www.youtube.com/v/ZtPF9M3nIHs&rel=1"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/ZtPF9M3nIHs&rel=1" /><embed src="http://www.youtube.com/v/ZtPF9M3nIHs&rel=1" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>
Stundum sakna ég pabba míns alveg fáránlega. Þá sit ég og skæli - en það breytir engu um það að ég kem ekki til með að fá að knúsa hann oftar.
Ég hef svosem ekki yfir neinu að kvarta. Ég fékk þó að hafa hann í öll þessi ár og hann var besti pabbi sem sögur fara af.
Ég á systkini sem eru alltaf boðin og búin að eiga með mér stund og aðstoða mig á allan hátt. Hvort sem það er að hjúkra mér eða drekka með mér kaffi og hlusta á sorgir mínar og sigra eða mótmæla með mér á Austurvelli.
Ég á mömmu - sem lánar mér bílinn sinn svo ég þurfi ekki að hjóla hálfa leið til Reykjavíkur í vinnuna í myrkri og kulda, eins og hún orðar það
Það breytir hins vegar engu um það að ég sakna pabba míns stundum svo mikið að ég græt eins og krakki.
Ég treysti því að sjálfsögðu að þið farið ekki með þetta lengra - maður hefur jú orðspors að gæta sem nagli...
Fimmtudagar eru uppáhalds.....
....ég man ekki hvort ég var búin að segja ykkur það, en ég segi það þá bara aftur. Þeir eru langir strangir og skemmtilegir.
Ég bjó til tvö ný slagorð í vinnunni í dag. 'Masað í mýrinni!' Og 'Hringd´í Hrönn!' Þetta endar með því að ég verð leigð út í slagorðasafnið sem opnað verður á næstunni...... Þar getur fólk komið ef það sárvantar slagorð - gott t.d. fyrir þá sem eru að plana byltingu eða þá sem eru í ríkisstjórn og sárri þörf fyrir ímynd ;)
Fimmtudagar enda svo á kóræfingu. Það er eitthvað sem skeður þegar maður syngur í tvo tíma. Eitthvað ólýsanlegt.
Annars endar þetta kórævintýri mitt náttúrulega með mitti......eins og raddformaður altsins sagði svo snyrtilega. Hún gefur mér nefnilega alltaf olnbogaskot í síðuna ef henni finnst ég fara yfir strikið í fíflagangi - sem er cirka nokkrum sinnum á hverri æfingu..........
Við enduðum síðan æfinguna á óskalaginu mínu - sem ég sting þrjózkulega uppá á hverri æfingu..... jafnvel þótt sama raddformanni finnist óþarfi að vera að hlaupa eftir mínum kenjum þá fékkst það í gegn í þetta sinn.....
....enda ég meina - hver getur staðist mig? Ég er yndisleg
Í tilefni af því að bjarndýr sást á hröðum flótta í Þistilfirði,
hvar sem hann nú er... ætla ég að endurbirta pistilinn minn um
samsæriskenningar, nánast óbreyttan
Það er verið að grípa miðaldra einstaklinga, bæði fyrir austan og í
Keflavík, fyrir innflutning á eiturlyfjum! Þessir einstaklingar eiga
það sameiginlegt fyrir utan innflutning á óþverra að koma frá útlöndum
og vera kallaðir burðardýr.
Í framhaldinu hef ég smíðað afar ögrandi samsæriskenningu. Kenninguna hef ég kosið að kalla: Bjarndýr í burðarliðnum!
Þau
synda á land, Guðeinnveit hvaðan, geðstirð og full af óþverra,
móttökusveitin er löggæslan og á hliðarlínunni bíða helspenntir,
fjársterkir einstaklingar tilbúnir til björgunar! Já...... - ég sé það
í hendi mér að ef ég held áfram á þessari braut, mun ég eiga yfir höfði
mér ákæru vegna meiðyrða!! Þ.e. ef einhver les bloggið mitt ;)
Ég
geri þess vegna bara eins og Ragnar Reykás og vend kvæði mínu í kross,
nú - þegar - strax og spyr: Hvers vegna eru hin burðardýrin ekki bara
hnakkaskotin líka? Ég er alveg viss um að þau eru afar geðstirð
sitjandi niðri á strönd...........
Finnst ykkur að ég ætti að skokka aðeins minna? Minnka súrefnisinntökuna.......
Ég er nánast viss um að þessi vesalings húnn sem er á skokki þarna
fyrir norðan hefur frétt af örlögum hinna bjarndýranna sem reyndu yfirráð hér fyrir nokkrum mánuðum. Spurning hvort það ætti ekki að
hengja hræin af þeim upp við landganginn bretum og hollendingum til
viðvörunar. Svona svipað og maður gerir með dauðar flugur, þið vitið...
maður skilur þær alltaf eftir við opinn gluggann svo hinar flugurnar
átti sig á að þetta sé hættusvæði
Ég gekk út snemma í morgun, í hunda og kattarfylgd. Mætti manni en við lifðum ekki hamingjusöm upp frá því.... allavega ekki saman - hugsanlega þó sitt í hvoru lagi.
En það var nú ekki það sem ég ætlaði að segja frá. Það sem ég ætlaði að segja var að það var svolítill haustfílingur í morgninum - sem er náttúrulega fráleitt. Það er janúar og meira að segja alveg að koma febrúar.... - sem minnir mig á það... er ekki nóg að hafa útborgunardag annan hvern mánuð? Ég meina það er kreppa.  Svona mætti spara alveg böns af peningum. Mér finnst ég ekki gera annað en reikna út laun og borga...... - segir konan og lætur eins og hún þurfi að greiða launin úr eigin vasa  ...en nú er ég aftur komin út í allt aðra sögu.
Svo ég reyni nú að halda mig við morguninn þá keyrði fram úr okkur bíll þegar við vorum að nálgast heimaslóðir aftur, ekkert óeðlilegt í sjálfu sér við það, við búum jú við þjóðveginn, en málið var að það fylgdi bílnum svo mikil vindlalykt..... og á einu augabragði var ég orðin fjögurra ára og stödd með mömmu í Geirabúð. Ég man nú ekki lengur hvort hún hét Geirabúð sjálfsagt ekki en eigandinn hét allavega Geiri og var afskaplega skemmtilegur maður fannst mér. Hann reykti vindla - þetta var á þeim árum þegar mátti reykja vindla... meira að segja inni - og seldi fatnað og aðra vefnaðarvöru. Þið vitið..... rennilásar í haugum, garn í bunkum, efni í ströngum og svo peysur, buxur og sokkar.....
Mamma keypti handa mér bláa peysu með rauðu og hvítu mynstri og alla tíð síðan var þessi peysa kölluð vindlapeysan. Það lagði nefnilega af henni vel lengi mikla vindlalykt.
Ég var strax þarna orðin mjög vangæf á föt, sem sýnir okkur náttúrulega bara að snemma beygist krókurinn og allt það...... en þessi peysa var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér.
Hvar ætli hún sé núna?
<object class="youtube" type="application/x-shockwave-flash" style="width: 425px; height:350px;" data="http://www.youtube.com/v/c5IIXeR5OUI&rel=1"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/c5IIXeR5OUI&rel=1" /><embed src="http://www.youtube.com/v/c5IIXeR5OUI&rel=1" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>
...þegar einhver syngur svona fallega