19.1.2012
Ég var að koma af kóræfingu...
...og allt í lagi með það - nema þar sem ég sat þar og söng sálma á fullu gasi datt mér allt í einu í hug strákurinn sem ég var að deita þegar ég var skvísa í Borg óttans. Ég kallaði hann bakardrenginn vegna þess að hann var að læra að verða bakari. Voða sætur strákur með dökkar krullur og fallegt bros. Hann átti barn - man ekki hvort það var strákur eða stelpa, enda málinu alls óviðkomandi.... en sum sé, ég fór að velta því fyrir mér hvort hann væri staddur á Sauðárkróki að baka iðnaðarsaltskökur og brauð
Svona er maður nú undarlega innréttaður.
Og talandi um gas - ég var að hlusta á virka morgna á rás2 í morgun, góður þáttur þrátt fyrir að Andri - sem ég er ákveðin í að láta uppáhaldsfrænku mína giftast, vegna þess, eins og ég sagi henni, mér finnst hann svo skemmtilegur og ég verði að geta haft fun í jóla- og allskynsboðum fjölskyldunnar... hún var minna spennt en það kemur málinu ekkert við. Í þættinum í morgun var spurningakeppni stéttarfélaganna eða eitthvað þvíumlíkt og ein spurningin var: "Hvað eiga Hitler og Bretaprins sameiginlegt?" Ég flissaði hástöfum þegar annar keppandinn svaraði í gizkunarlíki: "Háan gasreikning?" Ætli ég þarfnist einhversskonar meðferðar? Ég - sem var gyðingur í fyrra lífi og náðist næstum í Svíþjóð af Stormsveitarforingjanum Heinrich Himmler! 
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
31.12.2011
Ég vaknaði í morgun...
...sem betur fer
og ákvað að fara í göngu með Ljónshjartað og Hrekkjusvínið áður en sprengjubrjálæðið hæfist fyrir alvöru. Klæddi mig í öll útifötin mín opnaði hurðina - og framan í mig dinglaði sjónvarpsloftnetið sem hafði fleygst fram úr festingum sínum þegar skriðjökullinn á þakinu lagði land undir skafl. Jökullinn sjálfur hafði síðan endað för sína á pallinum hjá mér og í tröppunum. Ég yppti öxlum, svona með sjálfri mér, og hugsaði - den tid, den sorg - og lagði af stað í myrkrinu. Gekk sæmilegan hring með vitleysingana ýmist fyrir framan mig eða aftan. Lét nánast keyra mig niður þegar ég fór yfir götu, aumingja bílstjórinn ætlaði að stoppa fyrir mér en hálkan var svo gríðarleg að hann sveiflaðist bara fram og til baka á meðan hann nálgaðist mig óðfluga þar sem ég stóð nánast á miðri götunni. Ég sá mitt óvænna og skautaði þrjú skref afturábak og bílstjórinn náði að beygja áður en bíllinn stoppaði. Bílstjórinn skrúfaði niður rúðuna og ég hugsaði: oó... nú ætlar hann að skamma mig fyrir að vera nánast endurskinslaus úti á miðri götu í svarta myrkri og fljúgjandi hálku - og setti mig í bardagaham ;) en hann gólaði bara: Góðan daginn og fyrirgefðu
....eins og þetta hefði verið honum að kenna.
Ég komst síðan heim aftur blaut og köld, datt upp tröppurnar... já, já það er hægt.... og uppgötvaði þegar ég var komin inn að ég hafi týnt báðum keðjunum undan skónum. Þá settist ég niður og hló, þrátt fyrir að mig langaði mest til að grenja, en eins og alþjóð veit þá grenja ég bara úr frekju, en ég meina hvernig átti ég að komast í sturtu með hálfmálað baðherbergið, jamm ég nefnilega keypti meiri málningu og byrjaði að mála baðherbergið í gær, svo sá ég fram á að geta ekki horft á skaupið með loftnetið ullandi á mig fyrir framan stofugluggann. Ég grenjaði að vísu seinna í morgun - en það var út af allt öðru og mér dettur ekki í hug að segja ykkur hvers vegna 
Já, dagurinn byrjaði brösuglega - en nú er mömmusinnardúlludúskur búinn að moka tröppurnar, mála baðherbergið og er að ná í skrúfur til að festa loftnetið.
Allt horfir nú til betri vegar. Ég komin í sparifötin og er á leið að syngja nokkra jesúslagara og kalkúnninn ætlar að elda sig í ofninum á meðan.
Ég þakka ykkur fyrir árið sem er að líða og óska ykkur friðar og fögnuðar á nýju ári
14.11.2011
Ég fékk mér nýtt gæludýr í kjallarann.
Hún er lítil og brún og nötrar allavega jafnmikið og ég þegar við rekumst hvor á aðra, sem uppfyllir kannski ekki alveg mín skilyrði um gæludýraeign enda veit ég ekki hvað hvort hún er búin að flytja lögheimilið sitt en ég er með nagandi samvizkubit yfir gildrunni sem ég laumaði að henni áðan. Ég setti samt súkkulaði í hana. Ég vona bara að hún deyji snögglega og finnist súkkulaðið gott 
Ég efast hins vegar um að ég geti fjarlægt sönnunargögnin, vona bara hálft í hvoru að hún fari frekar út um gluggann.... og hafi súkkulaðið með sér. Hugsanlega kæmi hún þá bara aftur og með vini sína með sér - ekki vil ég það.....
Og þá yfir í allt aðra og miklu skemmtilegri sálma. Ég fór í mjólkurbúðina áðan, þar voru tveir Færeyingjar að spyrja afgreiðsludrenginn um hitt og þetta og af því að mér er svo eðlislægt að skipta mér af þá náttúrulega gerði ég það umsvifalaust. Þeir voru að spyrja um bílaleigu og hvar þeir gætu keypt sænguföt og hitt og þetta. Við svöruðum eftir beztu vitund öllum þeirra spurningum og það restaði á því að ég sagði við þá að ég væri á leið í humátt og þeir mættu sitja í ef þeir vildu. Ég hef sjaldan séð ánægðari Færeyinga enda ekki séð marga svosem - en þegar ég spái í það þá hafa þeir allir verið ánægðir þannig að hugsanlega er þetta landlægur andskoti 
Þegar við svo vorum komin út í bíl þá vildu þeir endilega fá að vita eitt að lokum
eins og mér þyki ekki vænt um Færeyinga.... enívei þeirra hinsta ósk var að fá að vita hvar fyrirtækið sem framleiðir plastbikarar og flöskur væri staðsett. Ég horfði á þá smástund og sagði svo: "Ég vinn þar"
Þeir gátu ekki á heilum sér tekið - með færeyskum hreim og allt 
Yndislegir
12.11.2011
Hugleiðing um karlmenn og feminisma
Undanfarnar vikur og mánuði hef ég uppgötvað að karlmenn, með örfáum undantekningum þó, fara í taugarnar á mér. Það sem veldur er aðallega sá misskilningur þeirra að þeir séu gjöf Guðs til alheimsins.
Þar sem þeir standa og bulla tóma steypu með bumbuna lafandi yfir beltið og halda um leið að þeir færi óhrekjanleg sannindi og líti út eins og grískir guðir, stend ég mig ítrekað að því að ranghvolfa augunum innra með mér. Þar kemur mitt góða uppeldi sterkt inn.
Ég hef áhyggjur af þessu - ég verð að segja það. Og þessar örfáu undantekningar? Annað hvort kvæntir, skyldir mér eða hommar. Jafnvel allt þetta 
Ég velti því fyrir mér hvort ég sé öfgafeministi eða hommi. Með fullri virðingu fyrir hommum. Sumir af mínum bestu hommum eru vinir
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.7.2011
Ég var að syngja í jarðarför í dag...
...sem er svosum ekki í frásögur færandi nema fyrir það að það er alltaf svolítið erfitt að syngja í jarðarförum þar sem maður getur samsamað sig með fólki....
... þið vitið! Eins og í dag.. þessi kona var á svipuðum aldri og ég, átti börn á sama aldri og mín börn. Vitaskuld veit ég að það að deyja á fyrir okkur öllum að liggja en það er bara erfiðara að syngja í jarðarförum fólks sem gæti hæglega verið maður sjálfur!
Þá er eitthvað svo óþarflega augljóst að einn góðan veðurdag er ég öll!
...og hvað ætlið þið að gera þá?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.6.2011
Sjúkraþjálfun og önnur þjálfun
Ég varaði sjúkraþjálfarann minn við því að ef hann meiddi mig yrði ég að ráða fólk til að meiða hann.... Ekki vegna þess að ég megi ekkert aumt sjá heldur vegna þess að ég get það ekki
Ég fór sumsé í sjúkraþjálfun í dag í fyrsta skipti eftir aðgerð. Hann var samt ósköp ánægður með mig og ástandið í impingmentinu við abduction..... já, já, ég hef engu gleymt
Ég er líka voða dugleg að taka verkjatöflurnar mínar og leggja mig...... Hann var líka ánægður með það - ég er svo aftur ánægð með val mitt á sjúkraþjálfara 
Á morgun á svo að taka saumana. Þá get ég hætt að hafa áhyggjur af því að flækja öxlina í öllu mögulegu. Í höfði mínu er spiluð hryllingsmynd með öllu því helsta sem ég gæti hugsanlega flækt saumana í... og þá skiptir engu máli að vitaskuld eru umbúðir yfir herlegheitunum.
Hér voru bíladagar í bland við fornbílaklúbbsviðburð einhvern um helgina - ég fór ekki, á Eyrarbakka var Jónsmessunæturbrenna í fjörunni - ég fór ekki, í Hveragerði voru svo blóm í bæ og þangað fór ég. Mjög fín blómin þeirra í bænum 
Þetta voru helstu fréttir af Suðurlandsundirlendinu - þakka þeim sem hlýddu
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.6.2011
Hátíðarútgáfan
Ég á afmæli í dag.
Það er alveg spes tilfinning að eiga afmæli. Mér finnst í raun sjálfsagt mál og óþarfi að ræða það eitthvað frekar að þegar maður á afmæli þá á maður að eiga frí frá vinnu og ekki að standa í biðröðum í bónus. Afmælisbörn eiga nefnilega alltaf forgang. Þau eiga ekki að bíða á rauðu ljósi og geta brunað um götur bæjarins án þess að þurfa að taka tilliti til annarra. Hinir eiga að bíða 
Hugsanlega gæti þetta þó skapað einhver vandræði ef margir eiga sama afmælisdag. Til hamingju með daginn Dagga 
Vitaskuld ætla ég að borða af sparistellinu mínu og nota silfurhnífapörin. Ég vænti þess að fólk sópist hingað með gjafir og glimmer handa mér. Ég er nefnilega hátíðarútgáfan af sjálfri mér í dag 
Ást og friður 
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.5.2011
Ísland í dag
Ég gekk fram hjá Húsasmiðjunni á laugardaginn - daginn sem einhver nöttkeis spáði heimsenda, muniði..... og út úr verzluninni kom maður og hélt á gildu reipi. Ég íhugaði að spyrja hann hvort hann ætlaði heim að hengja sig en hætti við. Sumt segir maður ekki
Ég þagði bara og skundaði áfram með Ljónshjartað.
Mér varð hins vegar hugsað til þessa manns í gær þegar ég var að slá heimatúnið og allt í einu dimmdi yfir öllu. Askan var mætt á svæðið!
Ég meina - hér er ríkjandi atvinnuleysi, þeir fáu sem hafa vinnu bera það ekki við að biðja um launahækkun, allir bíta bara á jaxlinn þ.e. ef þeir hafa einhverja ennþá - ekki hefur fólk efni á tannlæknum - og halda áfram að berjast í bökkum með sömu krónutölu upp úr launaumslaginu á meðan matvara og benzín hækka upp úr öllu valdi. Fólk reynir að klóra í bakkann með því að takmarka notkun bíla og hjóla og ganga allra sinna ferða og þá fer næsta eldfjall að gjósa þannig að ekki er líft úti við!!
Þó maður vildi gefast upp og flýja af landi brott þá er ekki flogið frá landinu.
En þetta var nú bara svona smá bjartsýnishjal.........
Píz on örþ. Eða ætti ég að segja pez?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.4.2011
Impingment og bursur
Ég fór í sónar og myndatöku um daginn.
Allir rólegir - ég er ekki ólétt 
Ég nefnilega stytti mér leið á milli hæða fyrir tæpu ári og hef ekki náð öxlinni góðri síðan. Ég brosti mínu blíðasta á röntgenmyndinni og læknirinn sem tók mig í sónar sagði að ég liti mjög illa út. Ég hef ekki brosað síðan. Enda verið upptekin við að drepast í öxlinni 
Í gær sendi ég svo uppáhaldslækninum mínum bréf - eins og ég kýs að kalla þau samskipti okkar sem fara fram í gegnum ímeil - og spurði hann hvort niðurstöður hefðu borist.
Hann svaraði mér um hæl og sagði að það væri þroti í bursunni og mikið impingment við abduction. Ég flissaði daðurslega og skrifaði honum að ég væri sérlega ánægð - bæði með hann og þessa setningu.
Nú get ég - þegar fólk spyr mig hvernig ég sé í öxlinni - í stað þess að svara eins og geðvont gamalmenni að því komi það ekki við, sett mig í stellingar og sagt. Það er þroti í bursunni og mikið impingment við abduction.
Og það bezta er að fólk er engu nær 
11.4.2011
Þið getið sko aldrei gizkað..
..hvað ég ætla að skrifa um núna!
Ég fór vitaskuld og kaus á laugardaginn - ég ætla svo sem ekkert að fjölyrða um það hvað ég kaus - en ég get sagt ykkur að ég var í vinningsliðinu 
Fyrstu viðbrögð breta segja mér að ég hafi kosið rétt. Það er enginn að tala um að Íslendingar ætli ekki að borga þessa skuld. Allavega ekki ég. En fjandinn fjarri mér að ég fari að skrifa undir einhverja ábyrgð á einhverjum upphæðum sem enginn veit hverjar eru. Þeir geta fengið þrotabú Landsbankans og ef það dugir ekki mega þeir laumast í vasa björgólfs thors eftir afganginum.
Eftir að ég kaus fór ég í bíó og sá einhverja leiðinlegustu mynd síðari tíma. "Kurteist fólk" Ég sver það ef ég væri ekki svona vel upp alin hefði ég gengið út í hléi. ´Það vildi bara þannig til að ég var ekki handhafi bíllyklanna í þessari ferð og sat því áfram en kræst - hvílík leiðindi.
Eftir bíó var mér svo rænt - eins og hverri annarri Soffíu frænku og þá kom sér nú vel að vera eins og hún á fleiri sviðum - enda var mér skilað fljótlega. Fékk samt glimrandi góðan mat og nú er ég að vappast um á höttunum eftir uppskriftinni.
Upplýsi ykkur hugsanlega um hana - ef þið hagið ykkur skikkanlega.
Ég sá á feisbúkk í dag að nokkrar vinkonur mínar voru að díla og víla við þí universe. Ég sá mér því leik á borði úr því að þær væru hvort eð er í samningaumleitunum og lagði inn pöntun um einnar hæðar hús með stóru, rúmgóðu eldhúsi, sólríkri stofu og svona eins og þremur svefnherbergjum. Garðurinn umhverfis húsið má liggja að vatni - sú krafa er þó umsemjanleg. Ó... og svo langar mig í böns af monningum og skemmtilegan mann 
Nú bíð ég bara spennt.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)














Marta B Helgadóttir
www.zordis.com
Anna Einarsdóttir
Ragnheiður
SigrúnSveitó
Guðný Anna Arnþórsdóttir
Birna Dis Vilbertsdóttir
Jóhanna Magnúsdóttir
Jóna Á. Gísladóttir
Solla Guðjóns
Gunnar Páll Gunnarsson
Steinunn Helga Sigurðardóttir
Brattur
Sigrún Jónsdóttir
Huld S. Ringsted
Halldór Egill Guðnason
Þröstur Unnar
Margrét Birna Auðunsdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir
Fanney Björg Karlsdóttir
Dúa
Hagbarður
Helga Magnúsdóttir
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Arna Einarsdóttir
Einar Indriðason
Steingerður Steinarsdóttir
Dísa Dóra
Lára Hanna Einarsdóttir
Ía Jóhannsdóttir
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
Heiða Þórðar
Hugarfluga
Bergljót Hreinsdóttir
Kristín Katla Árnadóttir
Bjarni Harðarson
Marinó Már Marinósson
Gunnlaugur B Ólafsson
Bryndís R
Steingrímur Helgason
Þórbergur Torfason
Ólöf Anna
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Heiða B. Heiðars
Víðir Ragnarsson
Laufey Ólafsdóttir
Róbert Tómasson
Ólafur fannberg
Guðjón H Finnbogason
Guðríður Haraldsdóttir
Gulli litli
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Linda litla
Ágúst H Bjarnason
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
Brosveitan - Pétur Reynisson
M
Svala Erlendsdóttir
Tína
Markús frá Djúpalæk
Samtök Fullveldissinna
Áslaug Ásmundsdóttir
Unnur R. H.
Gudrún Hauksdótttir
Helga Guðrún Eiríksdóttir
Sigfús Sigurþórsson.
Björg F
Jón Steinar Ragnarsson
Anna Ragna Alexandersdóttir
Kát Svínleifs
Make Up Gallery ehf
Sigþrúður Þorfinnsdóttir