Ég var..

..rosa heppin með veður í þessari útilegu Wink 

Mér tókst að móðga fimm konur á einu bretti á markaði einn daginn! Fimm stykki - býður einhver betur? Tounge Bara vegna þess að ég vildi ekki kaupa af þeim tösku! Keypti hinsvegar eitt stykki af afskaplega alúðlegum dreng og borgaði honum fimm evrum meira fyrir en hann vildi fá..... Var að spá í að bakka og láta kellurnar vita af því - bara til að fá viðbrögðin - en það var of heitt....... LoL 

Ég grætti líka eina innfædda konu sem var að leita að kettinum sínum gráa! Hún kom og spurði hvort við hefðum séð hann og ég klappaði henni á öxlina og sagði nei.... bætti svo við - á íslenzku vitaskuld..... að vonandi finndi hún hann og þá gerði hún sér lítið fyrir og grét á öxlinni á mér og sagði mér.... á sínu móðurmáli.... að hann væri búinn að vera týndur í tvo daga! Ég sagði og talaði enn mitt móðurmál, um leið og ég strauk henni um bakið að ég hefði oft þessi áhrif á fólk! Það brysti bara í grát....... Cool

Mottóið? Það skiptir ekki máli hvað það er sem þú segir - tónninn skilst Halo

Ég hitti líka látbragðsleikara á Sítrónumarkaðinum - hvar annarsstaðar...? Tounge sem elti mig á röndum og endaði á því að leiða mig eftir markaðsgötunni! Ég sagði honum að hann skyldi nú fara varlega í þetta.... það væri ekki oft sem karlmenn opinberuðu hrifningu sína á mér svona mikið og svona opinberlega - það gæti endað með því að ég tæki hann með mér heim! LoL Nú ráfar hann um Austurveginn í rigningunni og enginn hefur tíma fyrir hann!

Ég ætlaði líka að taka heim með mér, í handfarangri, þjónustustúlku af veitingastað! Bæði vegna þess að hún tók lítið pláss og hentar þess vegna vel í innréttinguna og líka vegna þess að það að rétta upp hendi og segja "una cervesa pour favor" kemst ágætlega upp í vana. Ég ákvað bara að hleypa henni ekkert mikið út og segja alltaf við hana þegar ég færi út í búð "se vende" sem á skandinavísku þýddi vitaskuld: Bíddu hér.... en hún hefði ekki hugmynd um það!

Þá er það bara eitt að lokum! Hver söng "Galdurinn er að geta brosað, geta í hláturböndin tosað, getað hoppað hlegið sungið - endalaust! Hvaða ár og eftir hvern er textinn? 

Þakka þeim sem hlýddu - góðar stundir Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Velkomin heim úr útilegunni, þín var sárt saknað.

Gáta: veit ekki.

Sigrún Jónsdóttir, 9.9.2008 kl. 17:38

2 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 17:43

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Frábær útilega greinilega. Flott hjá þér. Mig vantar einmitt svona þjónustustúlku.

Helga Magnúsdóttir, 9.9.2008 kl. 17:44

4 identicon

Sæl frænka og velkomin frá Spáni.

Gátan- Ólafur Haukur Símonarson semdi lag og texta. Veit ekki hvaða ár en finnst endilega að Olga Guðrún hafi sungið þetta.

Kveðja úr Furugrundinni

Stína Frænka (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 17:55

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já þín var sárt sagnað hafðu það gott.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.9.2008 kl. 17:56

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Velkomin góða mín.  Alveg er í viss um að það hefur verið mikið af dökkhærðum karlmönnum í þessari útilegu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.9.2008 kl. 18:03

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jú Jenný! Það var ekki laust við að það mótaði fyrir einum og einum dökkhærðum

Takk Katla mín!

Stína! Alltaf góð

Sigrún! Saknaði þín líka

Birna Dís og Helga ég skil ekki af hverju enginn tekur að sér þennan innflutning

Hrönn Sigurðardóttir, 9.9.2008 kl. 18:09

8 Smámynd: Þröstur Unnar

Hvur hlýddi þér?

Til hamingju með daginn.

Þröstur Unnar, 9.9.2008 kl. 18:26

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Kærleikur til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.9.2008 kl. 18:33

10 Smámynd: Ragnheiður

Skrambans !

Ég saknaði þín óeðlilega mikið...eru til pillur við þessu ?

Ný regla ; Bloggvinum er óheimilt að fara í frí eða þegja óeðlilega lengi

Ragnheiður , 9.9.2008 kl. 18:37

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha heilar fimm kerlur móðgaðar ekkert minna en það, eins gott að þú lést ekki eftir þér að bakka og láta þær vita, þær eru blóðheitar þessar spænsku sko !!! Gott að þú ert komin heim skvísa mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.9.2008 kl. 18:57

12 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ertu komin heim..... jibbý..... sé þig í vikunni......

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.9.2008 kl. 19:27

13 Smámynd: Vilma Kristín

Greinilega skemmtilegt ferðalag! Og viðburðarríkt...

Gátan: Kannast við textann, held ég... en kem ekki fyrir mig hver er þarna á ferð.

Vilma Kristín , 9.9.2008 kl. 19:56

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það er nú heila jókið Þröstur! Það hlýðir mér aldrei neinn - kemur sér að á móti er mér alltaf hlýtt

Knús á þig Steina mín

Ragga! Það er ekki búið að framleiða pillurnar enn - en þær eru í vinnslu! Hinsvegar hefur verið opnuð deild á vogi - tileinkuð mér! Þar afhrannast fólk í hrönnum

Fanney! Hlakka til að sjá þig rúsínurófan mín

Hallgerður! Takk og sömuleiðis

Vilma! Við förum í kvennaferð næst - mógðum fimm kjéddlingar hver! Ættum að ná góðri hausatölu

Hrönn Sigurðardóttir, 9.9.2008 kl. 20:09

15 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Velkomin  heim góða mín.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 9.9.2008 kl. 20:27

16 Smámynd: Dísa Dóra

Velkomin heim úr útilegunni - saknaði geðinnar í Hrönnum

Knús á þig

Dísa Dóra, 9.9.2008 kl. 20:46

17 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Velkomin heim, hjartabræðari og huggari heimsins! Fleiri sögur úr útilegunni, takk.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.9.2008 kl. 20:55

18 Smámynd: SigrúnSveitó

Velkomin hjem igen, min skat! Saknaði þín!

SigrúnSveitó, 9.9.2008 kl. 21:17

19 Smámynd: Steingrímur Helgason

'afhrannazt í hrönnum' ...

Uppstoppunarefni ...

Fjöll norðlendis hækkuðu um fimm sentímetra þegar þú steigst á frónið,,, af gleði & ég brozi samglaður.

Steingrímur Helgason, 9.9.2008 kl. 21:28

20 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Velkomin heim. Þ+in var saknað

Marta B Helgadóttir, 9.9.2008 kl. 22:15

21 Smámynd: Vilma Kristín

Ég er með í kvennaferðina! Any time! Og ég er ofboðslega góð að móðga... gæti jafnvel náð sex í einu!

Vilma Kristín , 9.9.2008 kl. 22:51

22 Smámynd: Solla Guðjóns

Gott þú varst ekki með hamarinn........Ertu að segja mér að þú hafir tekið sítrónugaurinn með heim  EF ekki hver í aaaaannnnsss...ráfar þá um austarann aleinn í rigningu  

Þú ert nottla snillingur að ætla að taka eina litla með heim sem kemmst fyrir í "handfarangrinum" sem gæti líklega rétt þér big cervesa

Hatur og Fattur fara á kreik.......

Solla Guðjóns, 9.9.2008 kl. 23:06

23 Smámynd: Solla Guðjóns

Sem er þá lílega æjiii Laddi kannski......man ekki strumpar eitthvað

Solla Guðjóns, 9.9.2008 kl. 23:07

24 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Solla!! Farðuaðsofa.....

Hrönn Sigurðardóttir, 9.9.2008 kl. 23:09

25 Smámynd: Solla Guðjóns

Nei ég vil svör

Solla Guðjóns, 9.9.2008 kl. 23:12

26 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Wów...hvað ég er fegin að þú ert komin aftur!!!hjúkkett!!!

Hélt bara að einhver hefði rænt þér úr mannheimum og komið fyrir á ónettengdum stað í langtburtistann og fannst það sóun á góðri bloggkonu....

Velkomin heim úr útlegðinni...vonandi skemmtirðu þér vel við að hugga og styrkja útlendingana...stríða pínu og hrekkja smá....

Þetta með gátuna...frænka þín er búin að svara...en ég vissita náttla sko....og árið er 1976....

Bergljót Hreinsdóttir, 9.9.2008 kl. 23:16

27 Smámynd: Solla Guðjóns

En samt þetta er úr Hatti og FATTI.......

Solla Guðjóns, 9.9.2008 kl. 23:37

28 Smámynd: www.zordis.com

Aldrei að fara á Sítrónumarkaðinn, konur lenda í svona sexual einelti þar.  Glæsilegar ljóshunangslituð, bráðgáfuð og skemmtileg .... allra karlamanna hugljúfi og tja. kvenna líka ... Næst þá verð ég meðíför og við tökum einn cervesa og vesenumst í hópmóðgunum og kisuhuggi.

Var einhver að tala um fráhvörf???

www.zordis.com, 10.9.2008 kl. 00:24

29 Smámynd: Tína

Damn hvað það er nú gott að fá þig heim tjelling. Smessa jafnvel á þig í dag.

Hlakka klikkaðslega mikið til að hitta þig aftur.

Farin að leita að aumingjanum sem er ráfandi um austurveginn.

Tína, 10.9.2008 kl. 06:39

30 Smámynd: Einar Indriðason

Já, fórstu með hamarinn með þér í útileguna!?

Einar Indriðason, 10.9.2008 kl. 08:20

31 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Enginn hamar í þessa útilegu....

Takk fyrir kaffið Tína fína

Zordís! Við meikum það þar

Solla! Stína var með svarið - enda alin upp á leikskólum Olga Guðrún söng.

Hrönn Sigurðardóttir, 10.9.2008 kl. 18:29

32 Smámynd: Solla Guðjóns

Sko þetta er sammt söngur úr leikriti Ólafs Hauks um HATT OG FATT......ég veit það

Solla Guðjóns, 10.9.2008 kl. 20:29

33 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Solla þú ert óborganleg!!

Hrönn Sigurðardóttir, 10.9.2008 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.