Útilegur fyrr og nú!

Þegar ég var að taka til hér eftir skjálftann í maí fann ég ýmis konar pappíra.... þið vitið svona pappíra sem maður geymir for no reason at all Tounge

Eftirfarandi er einn af þeim pappír sem ég fann! Þetta er minnislisti fyrir útilegur, löööööngu fyrir tíma húsbíla, tjaldvagna og hjólhýsa......

Tjald, svefnpoka, dýnur, teppi, hamar W00t - ég hef lengi verið svona.... lítið kærleiksljós Tounge sóp, prímus, diskar, viskustykki, sápu, hnífapör, bursta, potta, kodda, stóla og borð, útvarp, hundinn, hundakeðju og ól - ég hef greinilega lengi átt hund.... - grill og grilltöng, eldspýtur, ljós, regnföt, sundföt - líklega ætlað fyrir meiri háttar rigningu - lopasokka, stígvél, húfur, vettlinga, hitabrúsa, lyf W00t - átta mig ekki alveg á þessum lið, líklega þó til að halda sönsum.... - flugnanet, tannbursta, tannkrem, krem, greiða, bursti, handklæði, þvottapoka, sápu, klemmur, plastpoka, krydd, myndavél, derhúfu, börnin - takið eftir, þau eru talin upp laaaangt á eftir hundinum, þetta heitir sko að forgangsraða.... Tounge manninn (af tillitssemi við minn fyrrverandi nefni ég ekki nafnið hans LoL) og góða skapið!

Nú ferðast ég létt - enginn maður! Ekkert gott skap HaloToungeJoyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Jú kill mí vúman....

haltu áfram að taka til í þessu. Þú ert eina bloggvinkonan sem ég trúi til að eiga meira svona skemmtilegt

Ragnheiður , 25.8.2008 kl. 20:10

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef greinilega lengi verið með fremur undarlegan húmor!

Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 20:12

3 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég vel að túlka þennan lið "Engan mann ekkert gott skap"... á þennan hátt...;  þar sem maðurinn er...." týndur og tröllum......"þá þurfir þú ekki að skrifa góða skapið á minnislistann..... þú ert alltaf í góðu skapi......þér er það í blóð borið....og þetta með börnin og hundinn..... segi ég bara ..."I rest my case"........

Fanney Björg Karlsdóttir, 25.8.2008 kl. 20:22

4 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Ég trúi því nú ekki að þú farir eitthvað án þess að hafa góða skapið með.   Það er kannski bara innbyggt svo þú tekur ekki eftir því.      En djö.... ertu skipulögð. 

Marinó Már Marinósson, 25.8.2008 kl. 20:23

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já segðu! Hver þarf börn þegar hann á hund(a)

Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 20:24

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Marinó! Ótrúlegt þegar tekið er mið af því að ég er tvíburi í aðra áttina

Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 20:25

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Enginn í góðum 'zköbum' zumzé.

Ef þú værir keypt í bakaríi, værir þú óverðmerkt 'Normalbrauð'.

(& give' em *ell ...)

Steingrímur Helgason, 25.8.2008 kl. 20:26

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Líklega Steingrímur! Frá deginum áður........

Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 20:28

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hvað gerir þú með hamar í útilegu ?  Smíðar tjaldið ! 

Ég set alltaf hælana niður með hælnum. 

Anna Einarsdóttir, 25.8.2008 kl. 21:34

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hrönnsla mín þú er sko mesta dúllan á Selfossi og þótt víðar væri leitað í Árborg.  Hlakka til að hitta þig á laugardaginn.  Knús

Ásdís Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 21:49

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég hefði hætt við útileguna og notið þess að hafa "búslóðina" á sínum stað

Sigrún Jónsdóttir, 25.8.2008 kl. 21:49

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Anna! Ég held ég hreinlega ætlað hamarinn í eitthvað allt annað

Ásdís! Bara í Árborg!!

Nákvæmlega Sigrún

Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 21:56

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Að vísu tjaldaði ég einu sinni í Skaftafelli! Þar er ekki fræðilegur möguleiki að reka niður hæl! Enda voru þeir allir uppseldir í sjoppunni! Þar fékkst ekki einu sinni skíthæll ;)

Líklega hefur hamrinum verið ætlað að vera klár í aðra ferð þangað!

Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 22:00

14 Smámynd: Heiða  Þórðar

hamar? ja hérna hér! Ja, allur er varin góður svosem....

Heiða Þórðar, 25.8.2008 kl. 22:23

15 Smámynd: Brattur

... skíthælar eru lélegir og linir... ekki einu sinni hægt að berja þá með hamri... gott að þú varst ekki eins og einn bloggvinurinn sem var búinn að pakka svo miklu í bílinn að góða skapið komst ekki fyrir... og var skilið eftir heima...

Brattur, 25.8.2008 kl. 22:24

16 Smámynd: Vilma Kristín

Hamar? Hmmm... það hefði mér aldrei dottið í hug... en kemur sér örugglega oft vel í útilegum!

Vilma Kristín , 25.8.2008 kl. 22:43

17 Smámynd: M

Fyrir utan það hvað stendur á miðanum, þá finnst mér merkilegt að þú eigir hann ennþá

Þú átt örugglega launaseðlana þín síðan sautjánhundruðogsúrkál er það ekki ? 

M, 25.8.2008 kl. 22:46

18 Smámynd: Rebbý

ég hef alltaf talið mig vera skipulagða en ekki hef ég enn fundið svona ítarlegan lista í mínum fórum - væntanlega hefur átt að endurnýta listann fyrst hann er enn til staðar - spurning að skella honum á ísskápinn fyrir næsta sumar

Rebbý, 25.8.2008 kl. 23:10

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehe Rebbý! Já það er ekki vitlaus hugmynd ;)

M! Ég hugsa að ég gæti fundið þá.... já

Vilma! Oft er betra að hafa hamar en sög

Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 23:12

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flugnanet??? Hvert ætlaðir þú?  Í Amazon?

Annars kannast ég við allan pakkann mínus hund, hamar og flugnanet.  Hamar?  Kona spyr sig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 23:30

21 Smámynd: www.zordis.com

Væri til í að fara með þér í Hjólahýsi að Laugarvatni!

Getur sko pakkað eins og mad vúman og ég mæti með sykurpúða, söngbók og söngvatn!

www.zordis.com, 26.8.2008 kl. 00:02

22 Smámynd: Lena pena

hehehe...góður listi

Lena pena, 26.8.2008 kl. 08:11

23 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....Amazon Norðursins! Galtalæk..

Zordis! Ég er tilbúin

Brattur! Segðu!

Heiða! Maðu veit aldrei!

Lena! Algjörlega nauðsynlegur listi

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 08:57

24 Smámynd: Einar Indriðason

Sko... þig vantar á listann... Góðan, stóran svissneskan vasahníf.  Ef hann er vel stór og vel góður, þá fylgir hamarinn með!

Einar Indriðason, 26.8.2008 kl. 09:02

25 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Rétt Einar! Ég bæti úr þessu strax

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 09:06

26 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Við ykkur sem lesið bloggið mitt og sendið mér sms í gegnum ja.is vegna þess að þið þorið ekki að koma fram undir nafni segi ég! Þið ættuð kannski að fara að æfa golf! Reyna að finna grínið ykkar!! En það er kannski of dýrt sport fyrir ykkur?

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 09:08

27 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Hva?    aðdáendur sem senda þér sms í gegnum ja.is?    Lúxus hehe

Marinó Már Marinósson, 26.8.2008 kl. 09:18

28 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

alltaf gaman að óþekktum aðdáendum! Þætti samt betra ef þeir væru fyndnir og gáfaðir

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 09:25

29 Smámynd: Einar Indriðason

Einhver öfundssjúkur af því að þú kláraðir maraþonið þitt, en hann (eða hún) ekki?

Annars er þetta kannski spurning um að núna sértu fyrst að verða fræg?

Ps.  Ef þú ert með VIRKILEGA góðan svissneskan vasahníf, þá geturðu skilið allt hitt eftir.  (Nema kannski hundinn.)  (Og... hundamatinn.)  (Og svefnpokann.)  (Og tjaldið.)  (og aldrei að skilja góða skapið eftir, góður svissari kemur ekki í staðinn fyrir gott skap.)

Einar Indriðason, 26.8.2008 kl. 09:29

30 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehe hugsanlega Einar!

Mér sýnist nú á öllu að þessum eðalhnífi fylgi góða skapið! Maður hlýtur að fyllast friði og fögnuði þegar maður finnur svissara í farangrinum!

Hey þarna fékk ég góða viðbót á listann........

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 09:34

31 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Já, Þú meinar frá Sviss? 

Marinó Már Marinósson, 26.8.2008 kl. 09:39

32 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já! Ég mundi pakka góða skapinu við hliðina á svissneskum fjallgöngugarpi Ekki ónýtt þegar ég væri búin að berja niður tjaldið í Skaftafell, sótbölvandi og úrill að opna farangurinn og..... guten abend

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 09:42

33 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Knús inn í daginn

Anna Ragna Alexandersdóttir, 26.8.2008 kl. 10:24

34 Smámynd: Tína

Þú ert nú bara yndisleg sko . Fer svo að sníkja hjá þér  kaffi fljótlega. Svo manstu að það er alltaf heitt á könnunni hjá mér, þegar þig langar að líta aðeins upp úr vinnunni.

Knús á þig skemmtilega kona.

Tína, 26.8.2008 kl. 11:34

35 Smámynd: Brynja skordal

Flottur listi og ekki verra að vera með hlutina á hreinu en skrítið nokk þá hefur alltaf flotið með hamar í mínum ferðum enda hamarinn fastur við kallinn betra að hafa hann með ef hann þyrfti að smíða í fríinu

Brynja skordal, 26.8.2008 kl. 17:13

36 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ja flottur listi hjá þér Hrönn mín hafðu það bara gott

Kristín Katla Árnadóttir, 26.8.2008 kl. 18:06

37 Smámynd: Einar Indriðason

Hvurnig í veröldinni er hamar festur við kalinn hennar Brynju?

Einar Indriðason, 26.8.2008 kl. 20:27

38 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

tjah... mér dettur ýmislegt í hug! Vil bara ekki opinbera það svona á netinu.....

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 20:50

39 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hey þú! Sem ert enn að senda mér sms í gegn um já.is. Ef þú hefur ekki áhuga á að ég tali um þig á blogginu mínu! Vertu þá ekki að senda mér sms!

Ég veit hvort sem er hver þú ert! Veit líka að þú hefur ekki efni á að finna grínið þitt í golfi!

Hvernig væri að koma bara fram undir nafni? Ha? 

Hættu eða ég blogga sérstaklega um þig og þá nefni ég þig!! 

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 22:27

40 Smámynd: Brynja skordal

 tja spurning sko en jú hann er með hamarinn því hann er einfaldlega Húsasmiður svo hamrinn fylgir alltaf með í bílnum sko skiljú en reyndar fær hamarinn að vera heima ef við förum til útlanda en hefur samt verið keyptur hamar þar svo nú sjáið þið hvað ég var feginn að hún Hrönn var með þetta á sínum lista þá er ég ekki ein um þetta sko Hrönn hvað varstu að hugsa kona svona settu það á netið dónin þinn

Brynja skordal, 26.8.2008 kl. 22:28

41 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Hentu draslinu og fáðu þér bara húsbíl.

Marinó Már Marinósson, 26.8.2008 kl. 23:27

42 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nebbs Brynja! Ég kann mig

Marinó! Líka þeim svissneska?

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 23:42

43 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Nei gætir rekist á einn ísbjörn eða bara mús og þá er nú gott að vera með vopn í hendi. 

Marinó Már Marinósson, 26.8.2008 kl. 23:48

44 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

heh! Ef þannig færi þá bæti ég bara rauða krossinum á listann Þá er ég alltaf örugglega fyrst í áfallahjálp!

Hrönn Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 23:50

45 identicon

Gvöð, þú ert svo frábær,  U make my day!! TAKK!!!!!!

alva (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 00:23

46 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Móst velkom alva

Hrönn Sigurðardóttir, 27.8.2008 kl. 00:24

47 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ertu með einhvern smsdólg á eftir þér..... gvööð en leiðinlegt.....og einhver skortur á öllu hjá dólgnum....

Fanney Björg Karlsdóttir, 27.8.2008 kl. 10:00

48 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 27.8.2008 kl. 21:18

49 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 23:09

50 Smámynd: www.zordis.com

Verðum við ekki að redda okkur litlu hýsi?

spurning um að vera með nokkra heimagerða texta því þá þarf að kyrja vel í rökkrinu og ég nenni ekki að koma með sykurpúða en söngvatnið er möst!

Erum við að tala saman núna?

Og, svo sjáumst við vonandi poooo lördagen ...

www.zordis.com, 28.8.2008 kl. 01:47

51 Smámynd: Ragnheiður

Æj það er aldeilis gaman hér og ég kom fyrst núna í samkvæmið...einhver gleymt að bjóða mér ...*konanmeðhamarinn*

Þetta er áreiðanlega samt gamall sögumisskilningur....álfkonan gekk Í hamarinn inn......

Hrönn hefur lesið ...Álfkonan gekk MEÐ hamarinn inn.....

Já já þannig hefur það verið   æm sjúr

Ragnheiður , 28.8.2008 kl. 17:40

52 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Réttu mér hamrinnnn kona!

Marinó Már Marinósson, 28.8.2008 kl. 17:45

53 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahaha það er gaman að svona miðum Hrönn mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.8.2008 kl. 21:53

54 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú ert aldeilis stórsniðug!  Sit hérna vælandi úr hlátri úti í garði í fjarlægu landi.

Við hjónakornin vorum að spá í hvort það væri nokkuð samhengi í hamrinum og að það væri komið x fyrir framan eiginmaður... -Hann er alveg á lífi ennþá og allt það, er það ekki??

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 29.8.2008 kl. 16:53

55 Smámynd: Linda litla

Þetta er snilldarfærsla hjá þér Hrönn og svo eru kommentin ekki síðri heheheh

góða helgi, og farðu varlega inn í helgina ef að þú ætlar að hafa hamarinn með.

Linda litla, 29.8.2008 kl. 19:03

56 Smámynd: Einar Indriðason

Ah.... er það *þess* vegna sem Kaffibrúsakallarnir voru með "Hentu í mig hamrinum" sketshið?

Einar Indriðason, 29.8.2008 kl. 22:54

57 Smámynd: Tína

hvar ertu krútta???? Maður hefur ekkert heyrt frá þér

Tína, 30.8.2008 kl. 06:35

58 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 31.8.2008 kl. 01:31

59 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Úfff...ég á líka svona heví nákvæman lista...en hefur ekki dottið í hug að setja kallinn...börnin og hundinn á hann....þau bara muna eftir sér sjálf...he he...

En...leikskólakennarinn í mér hefur svo góða yfirsýn..svo það hefur tekist hingað til að koma ölum með...líka þegar við höfum verið með stuðningsbörnin okkar með...thí hí......

En hamar....hann er alltaf með....ef......

Bergljót Hreinsdóttir, 31.8.2008 kl. 10:54

60 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Jemundur, sveimundur, einmundur, amen. 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 31.8.2008 kl. 23:27

61 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta kallar maður að fara vel útbúinn í útilegur. Gott að vera þó laus við að drösla kallinum aftast á listann. Það er ýmislegt sem léttir á manni.

Helga Magnúsdóttir, 1.9.2008 kl. 20:21

62 Smámynd: Brynja skordal

Fórstu í útilegu eða????? hvar ertu skvísan þín?

Brynja skordal, 2.9.2008 kl. 13:35

63 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæjjjjjjj og skál í boðinu..

Alveg magnaður þessi lysti og ótrúleg samsetning á honum.....krydd, myndavél, derhúfu......óóó

Segðu þessum smessa-dólg að grínin á gólfvöllunum séu útspörkuð og mis illa farin....

Solla Guðjóns, 2.9.2008 kl. 20:55

64 identicon

hvar er Hrönnsan????

alva (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 23:08

65 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er nú bara alveg dásamlegur list, hef aldrei lesið annað eins

kærleikur til þín frá lejrekotinu.

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.9.2008 kl. 16:21

66 Smámynd: SigrúnSveitó

Var að koma heim úr helgarferð og var steinhissa á að það var ekkert nýtt frá þér, elskan mín. Hvar ertu?????

Knús...

SigrúnSveitó, 7.9.2008 kl. 18:23

67 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Hahaha ég kannast við svona lista, reyndar ekki með heimilismeðlimum og hamri, en nú eru mínir ferðalagalistar bara til í exelskjali í tölvunni en ég  held svei mér þá að ég eigi ennþá fyrstu launaseðlana síðan í vinnuskólanum einhverstaðar ( já ég veit klikkað)

Vona að sms dóninn hafi ekki náð þér.

Sigríður Þórarinsdóttir, 7.9.2008 kl. 19:31

68 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

...bíddu...ertu í útilegu...að testa listann...eða...????

halló...????...Hrönn...???halló...???

Það vantar eitthvað hérna....þig.....???

Sakna skemmtilegu færslanna þinna....

Bergljót Hreinsdóttir, 7.9.2008 kl. 23:18

69 Smámynd: Solla Guðjóns

Þín er sárt saknað.

Solla Guðjóns, 8.9.2008 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband