Ég ætla að verða....

....almannatengslafulltrúi þessarar ríkisstjórnar þegar ég er orðin stór! Nú verð ég bara að flýta mér að verða stór...........

"Það eina sem ég hef að segja er að ég þarf að loka hurðinni........." Sagði forsætisráðherrann W00t Ég sver við það við allar mínar vættir að ég hefði sagt honum að segja eitthvað gáfulegra........ ef hann hefði verið búinn að ráða mig sem PR fulltrúa, sem hann náttúrulega ekki er - hann veit ekki að ég er hér..... Tounge

"Hamstrið matvæli" segir forstjóri Bónus verslana... það mundi ég líka segja ef ég væri sá mæti maður - en common hamstra hvaða matvæli? Kornfleks og haframjöl? Hver nennir að lifa á því? Ég tek ekki þátt í þessari vitleysu - ekki frekar en fyrri daginn - enda rekst ég svo illa í hóp!

Ég er alveg ákveðin í því að ef matvæli klárast í Bónus þá fer ég í Kaupfélagið og kaupi íslenzkt nautakjöt! Ég gerði það til dæmis í dag.........

...leit ekki við erlendu nauti á niðursettu verði - enda hefur mér lengi þótt vænt um innlenda bændur InLove

Ég ætla fjandakornið ekki að fara til andskotans og vera svöng á leiðinni!

Já! Ég segi eins og konan þarna í útlandinu um árið og meina það alveg jafn vel og hún.....  "Gefið fólkinu þá kökur........" 

Þið áttið ykkur á því að allt efni á síðunni er höfundaréttarvarið! Ef ég finn ykkur vinnandi sem almannatengslafulltrúa þá lögsæki ég ykkur! Ég veit líka hvar þið eigið heima....... Tounge

Ég sver´ða ég gæti unnið fyrir mér sem handrukkari í dauða tímanum - ef ég bara hefði einhvern!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held að þú sért alveg promising handrukkari frekjan þín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2008 kl. 21:10

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hahahaha   Rétt hjá þér Hrönn, það sem Geir sagði var eitthvað það ógáfulegasta sem hægt var að hugsa sér.  "Ég þarf að loka hurðinni".

Anna Einarsdóttir, 3.10.2008 kl. 21:17

3 Smámynd: Vilma Kristín

Vá, vonandi verðuru stór fljótt! Hlakka til að sjá þig redda almenningsáliti ríkisstjórnarinnar... en þú veist að þú átt erfitt starf fyrir höndum er það ekki?

Vilma Kristín , 3.10.2008 kl. 21:19

4 Smámynd: Dísa Dóra

jeremías og jólasveinar ekki vildi ég mæta Hrönn handrukkara

Dísa Dóra, 3.10.2008 kl. 22:03

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já og Jenný! Ég veit hvar þú átt heima

Anna! Ég sver það........... "ég þarf að loka hurðinni........." Ég mundi kannski vorkenna honum ef ég væri illa haldin af eymingjagæzku...

Vilma! Jú - ég veit........:)

Dísa Dóra! Ég lofa........ ég skal ekki koma til þin - ekki til að rukka allavega Ekki meðan blóðþrýstingurinn er of hár!

Hrönn Sigurðardóttir, 3.10.2008 kl. 22:11

6 Smámynd: Unnur R. H.

Þú ert bara góð, eg nennti hreinlega ekki, þar sem ég á ekki marga aura, hlaupa til handa og fóta og versla eitthvað! Halló, átti ég bara að kaupa í hafragraut og, og, sorry þetta gerir mig bara vonda Ég hef ekki fjármagn til að hlaupa til og frá og láta ræna af mér vitið, kannski bara sem betur fer

Uhumm sorry ég varð bara

Unnur R. H., 3.10.2008 kl. 22:24

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú yrðir brilliant almannatengslafulltrúi, þjóðin myndi brosa út í eitt og gleyma niðursveiflunni (má ekki segja kreppa).  Ég býð mig fram sem stéttarfélagið (handrukkari) þitt

Sigrún Jónsdóttir, 3.10.2008 kl. 23:36

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég ætla mér ekki að hamzdra hamzdra sem matvæli, of inngróið mér, enda með fínann 'zjálfzþurftarbúzkab' í félagi við bóndann óútdauða á næzda bæ...

Steingrímur Helgason, 4.10.2008 kl. 00:32

9 Smámynd: Gulli litli

Taka slátur....

Gulli litli, 4.10.2008 kl. 07:12

10 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

...ef þig vantar meðmæli....

Bergljót Hreinsdóttir, 4.10.2008 kl. 12:38

11 Smámynd: www.zordis.com

Kona að mínu skapi!

Líst vel á þig og hér er eitt verkefni sem þarf að leysa, bílatryggingarmál  ... Læt þig vita eftir helgi hvort við þurfum að mæta með táragas á liðið!

Spurning um að selja hamstra á degi dýranna til þeirra sem hamstra mezt!

www.zordis.com, 4.10.2008 kl. 14:02

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég vona að við þurfum ekki að hamstra en þú ert frábær eins og alltaf.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.10.2008 kl. 16:46

13 Smámynd: Róbert Tómasson

Hvernig er það Hrönn, þarftu ekki að vera miðill í þetta starf?  Mér sýnist á öllu að þessi stjórn sé nokkurn vegin dauð alla vega er meira líf í kirkjugörðum landsins en í stjórnarráði.  Styð þig heilshugar hvað varðar beljurnar auðvitað kaupum við íslenskt frekar en einhverjar evru júgurtruntur sem geta ekki einu sinni baulað almennilega.

Róbert Tómasson, 4.10.2008 kl. 16:56

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Tjah Róbert ég finn nú ýmislegt á mér....

Katla gott að sjá þig á ferli á ný

Zordís! Æ dú not önderstand þe vord trygging........

Bergljót - ég kem þá til þín

Gulli litli eða íven better! Fara í heimsóknir á matartímum

Steingrímur! Sjálfsþurftarbúskapur er góður búskapur - sérlega í félagi við ódauða

Sigrún! Þú ert ráðin

Unnz! Blástu eins og þig lystir - ég haggast ekki!

Hrönn Sigurðardóttir, 4.10.2008 kl. 17:08

15 identicon

Ég fór til dæmis og borðaði á Argentínu steikhúsi í kvöld.Ókeypis eins og alltaf þegar ég fer þangað.Ég borða bara áfram þar ef það harnar á dalnum.Þeir hljóta að hamstra þar,eða eru kanski hamstrar............. sorrý missti mig .Já taktu málin bara í þínar hendur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 00:54

16 Smámynd: Huld S. Ringsted

Líst vel á þig sem almannatengslafulltrúa fyrir forsætisráðherra, sýnist ekki veita af ertu ekki alveg að verða stór??

Huld S. Ringsted, 5.10.2008 kl. 11:18

17 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Kærleikur til alls lífs og þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 08:31

18 Smámynd: www.zordis.com

Trygging = Trix félaga til að hafa fé af fólki og þá á ég ekki við um sauðfé!

Ég held að ef þú takir bara við æðsta starfinu þá er hægt að spara gífurlega í alla ráðgjöf ... Hrönn í framboð, allavega í skemmtileg kvennaboð!

www.zordis.com, 6.10.2008 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband