Rósakaup í stórhríð ;)

Úr því að hlutabréfamarkaðurinn er í frjálsu falli, ákvað ég að vera klók og fjárfesta í list Wink

Var einu sinni sem oftar að skoða myndirnar hennar Zordísar þegar allt í einu ein myndin hennar höfðaði svo sterkt til mín. Ég fór dag eftir dag og kíkti á myndina "mína". Einn daginn datt mér sá hræðilegi möguleiki í hug að einhverjum öðrum litist jafnvel á Rósina mína og það varð til þess að ég ákvað að hafa samband við listakonuna. Það er skemmst frá því að segja að í dag er ég stoltur eigandi þessarar myndar. Svei mér þá ef ég höndlaði ekki smábita af hamingjunni með þessum gjörningi. Er allavega miklu sáttari við þessi kaup en ég væri með að eiga pappírssnifsi í einhverju fyrirtæki úti í bæ...........

Nú bíð ég róleg eftir Rósinni minni - er búin að finna stað fyrir hana, hvað þá annað.

Seinna meir, þegar Zordís verður orðin frægari, bíða mín listaverkasalar í haugum W00t og vilja selja Rósina mína á uppboði. Þá ætla ég að fara í rauðu kápuna mína, setja á mig rauða varalitinn og vera óhagganleg!

Mér finnst svo gaman að vera óhagganleg Tounge

InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott mynd. Skil það vel að þú hafir fallið fyrir henni.

Bryndís R (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 19:44

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég þarf að kíkja á myndina af myndinni en til lukku með þetta!  Þegar ég verð rík fjárfesti ég í einni mynd hjá henni

Huld S. Ringsted, 15.1.2008 kl. 19:47

3 Smámynd: www.zordis.com

Dúa, Hrönn gerði allt til þess að prútta en ég stóð mig eins og hetja ..... við gerðum skriflegan samning um að ég njóta ágóðans þegar þeir óprúttnu elta mærina uppi með bed head vörulit í skósíðri rauðrí kápu.

  Ætli ég sendi þér ekki rósabúnt með!  Já, óg mín er ánægjan að Rósin leiti til þín! 

www.zordis.com, 15.1.2008 kl. 19:57

4 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

mmmm..... yndisleg mynd........ og ég segi nú bara beint frá hjartanu........ "mynd sem er eins og sköpuð fyrir þig........ hvað klæðir ekki rós...."

Fanney Björg Karlsdóttir, 15.1.2008 kl. 20:09

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jiii hvað þið eruð yndislegar

Ég vissi ekki að ég þekkti svona mikið af yndislegum konum

Hrönn Sigurðardóttir, 15.1.2008 kl. 20:31

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æðisleg mynd  Hjá henni hún er frábær listakona. hún er líka svo góð kona. Þú ert það líka.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.1.2008 kl. 22:29

7 Smámynd: Dísa Dóra

Þetta er mjög flott mynd

Ég er einmitt búin að vera að horfa á margar af myndunum hennar Zordísar og bíð bara eftir að vinna í lottó svo ég geti verslað mér eina

Dísa Dóra, 15.1.2008 kl. 22:31

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábær mynd, á sendingu á leiðinni frá henni, hlakka mikið til.

Ásdís Sigurðardóttir, 15.1.2008 kl. 23:54

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ji minn skamm skamm. Vissi ekki af myndunum hennar en er nú kolfallin fyrir flísunum. Þú ert ómótstæðileg í rauðu Hrönnslan mín

Jóna Á. Gísladóttir, 16.1.2008 kl. 00:07

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

Zordis er auðvitað algjör snillingur! Til hamingju elsku Hrönslan mín.

Heiða Þórðar, 16.1.2008 kl. 00:40

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk fyrir það stelpur mínar. En málið er nefnilega að það þarf ekki að vinna í lottói til að kaupa myndir af henni!. Ekki er ég stórrík en sumt getur maður ekki látið fram hjá sér fara

Hrönn Sigurðardóttir, 16.1.2008 kl. 09:03

12 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Til hamingju með rósina þína. Ég hef líka heillast svona af mynd. Sú var eftir Kjartan Guðjónsson og heitir Nótt skáldsins. Ég á hana og nýt þess alltaf að horfa á hana.

Steingerður Steinarsdóttir, 16.1.2008 kl. 10:10

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Af hverju vantar annað augað? Hvar er mynd til skoðunar?  Var það ekki Katrín sem var með konu sem vantaði annað augað?  OMG er ég að brjálast? Til hamingju semt rósin mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.1.2008 kl. 21:20

14 Smámynd: Rebbý

Til lukku með fjárfestinguna, á örugglega eftir að skoða síðuna hennar betur en málið er sko að fjárfesta bara þegar eitthvað fangar svona huga mans. 
Keypti úti á Kanarí rándýra og þunga höggmynd fyrir ári og er svo stolt af henni í dag, horfi á hana lengi á hverjum degi og alltaf jafn hrifin af henni.   Veit að ef ég hefði ekki keypt hana þá væri ég ekki í rónni

Rebbý, 17.1.2008 kl. 13:19

15 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég er sammála, þú ert flott í rauðu og ég tala nú ekki um ef þú ert óhagganleg líka. What a sight. (Þetta mun ég segja, þegar ég er búin að sjá þig). Myndin er frábær eins og margt annað eftir hana Zordísi okkar.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.1.2008 kl. 20:13

16 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábært vonandi fara fleiri að hugsa eins og þú, það á að fjárfesta í myndlist !! til hamingju báðar tvær.

BlessYou

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.1.2008 kl. 20:23

17 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Til hamingju með listina væna mín. Svona á að fjárfesta. ...hvenær kemur þú til danmerkur?

Gunni Palli kokkur. 

Gunnar Páll Gunnarsson, 17.1.2008 kl. 21:10

18 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Innilega til hamingju með myndina, mjög falleg og passar einstaklega vel fyrir þig. 

Marta B Helgadóttir, 17.1.2008 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband