Menningarferð með verzlunarlegu ívafi

Fór í bæinn með Möggu í gær. Þessar ferðir okkar eru frábærar!!

Við vourm snemma á ferðinni og byrjuðum á að rölta upp Skólavörðustíginn. Fórum inn til Eggerts Feldskera og þukluðum loðfeldi. Þar var einn úr kengúruskinni, fisléttur og algjörlega guðdómlegur. Kostaði "bara" rúmlega 400 þúsund kall....... Við vorum sammála um að sá sem keypti hann fengi ekki mikið fyrir peninginn.Tounge Afgreiðslumaðurinn sagðist eiga blý til að setja í vasana til að þyngja hann niður W00t Fórum líka inn í Keramik Kolbrúnar, þar var okkur gefið heitt súkkulaði á meðan við skoðuðum okkur um. Frábært!

Fengum okkur kaffi á Hótel Reykjavík Centrum á meðan við skoðuðum málverkasýningu Katrínar Snæhólm. Mæli með því að þið farið þangað og skoðið myndirnar hennar.

Áleiðis upp Laugaveginn héldum við svo og var þá heldur farið að fjölga í bænum. Hápunkti ferðarinnar var svo náð með viðkomu í Flash þar sem beið mín, á slá, sítt svart tjull- og blúndupils. Ég mátaði það, snéri mér í hringi og pilsið hvíslaði að mér að það væri mitt........ Ég hef ekki farið úr því síðan og er harðákveðin í að í þessu pilsi ætla ég að gifta mig InLove

Takk - enn og aftur Magga - fyrir frábæran dag Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta hefur verið mjög skemmtilegur dagur hjá ykkur. Já mér langar að fara á málverkasýnungu. Katrínar bloggvinkonu. Eigðu góða dag Hrönn mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.12.2007 kl. 14:18

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ætlaði að sega mig langar.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.12.2007 kl. 14:19

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Frábær dagur hjá ykkur systrum. Fátt jafnast á við Skólavörðustíginn og heitt kakó.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.12.2007 kl. 22:10

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég elska Skólavörðustíginn, hann er heimur út af fyrir sig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.12.2007 kl. 22:20

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Mig langar svo á sýninguna hjá Katrínu

Huld S. Ringsted, 9.12.2007 kl. 22:56

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Góður dagur hjá þér. Verður mér boðið í brúðkaupið?

Jóna Á. Gísladóttir, 9.12.2007 kl. 23:24

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góður dagur hjá ykkur. Vil gjarnan koma líka í brúðkaupið  

Marta B Helgadóttir, 9.12.2007 kl. 23:54

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Stelpur mínar. Auðvitað verður ykkur öllum boðið í brúðkaupið! Um leið og ég er búin að leysa þetta ööööörlitla vandamál að finna mann...............

Hrönn Sigurðardóttir, 10.12.2007 kl. 07:02

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég vona að sýningin verði ennþá í gangi, þegar ég legg leið mína suður reyndar fyrir áramót.  En þetta hljómar eins og fullkomin dagur Hrönn mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.12.2007 kl. 17:47

10 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Varla að maður þori að kíkja inn og kvitta á eftir þessum fjölda kvenna - margar þar að auki í giftingarhugleiðingum!  Njóttu dagana!

Gunnlaugur B Ólafsson, 10.12.2007 kl. 18:00

11 Smámynd: Ólafur fannberg

annar i röðinni af karlpeninginum.Kvitt fyrir innliti og lestri

Ólafur fannberg, 10.12.2007 kl. 18:51

12 Smámynd: Hugarfluga

Ohhhh elska svona daga! Pant verða brúðarmær!!!!

Hugarfluga, 10.12.2007 kl. 21:45

13 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 10.12.2007 kl. 22:04

14 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Ég skal svo elda matinn. Málið dautt!

Gunni Palli kokkur 

Gunnar Páll Gunnarsson, 10.12.2007 kl. 22:16

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gunni Palli kokkur - tek þig á orðinu  Hver þarf að hafa áhyggjur af smámáli eins og brúðguma þegar kokkurinn er kominn í kabyssuna?

Steina

Fluva! Hver önnur? Og aftur segi ég: Hver þarf að hafa áhyggjur.........

Gulli minn, þetta er allt í lagi - ég skal passa þig

Allir hinir:

Hrönn Sigurðardóttir, 10.12.2007 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband