Brot úr degi

Síðan ég opnaði mín eiturgrænu augu eftir góðan, en kannski of stuttan, nætursvefn hef ég afrekað; að hraðbanki át debetkortið mitt fyrir klukkan sjö í morgun!! Eftir að hafa hamast á cancel takkanum og sparkað í fargins hraðbankann, að við tölum nú ekki um hvað kom út úr mínum munni á meðan - það snyrtilegasta, og það EINA sem er prenthæft, var: "kallast þetta HRAÐbanki? Búin að standa hér í f...... fimm mínútur...." Þá vaknaði "hrað"bankinn og gerði allt fyrir mig. Eins gott að ég yfirgaf ekki svæðið og kortið!!

Læsa mig úti í 10 stiga gaddi!! Má þakka fyrir að hafa verið í hreindýrinu sem ég skaut þegar ég flaug yfir Finnland hér um árið. Eftir að hafa gengið úr skugga um að enginn aukalykill var geymdur neins staðar, var mér skutlað á vinnustað nágrannans sem lánaði mér sinn lykil og eftir japl og jaml tókst mér að skrúfa millihurðina úr í kjallaranum og brjótast þannig inn til mín. Hins vegar nenni ég ekki að skrúfa hurðina í aftur...... Á meðan að á þessu stóð uppgötvaði ég að ég er ekki efni í innbrotsþjóf. Það er líklega ekki vænlegt til árangurs í þeirra starfi að sótbölva eins og gamall sjóraftur og sparka í hluti......

Niðurstaðan só far: Ég er ekki líklegur kandidat í innbrot. Ég á góða skó. Ég kann ótrúlega mörg ljót orð Pinch

Farin að finna Lása Smið eða kannski bara út í BYKO........ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvoru megin fórstu fram úr darling??  vona að dagurinn endi vel.  Passaðu þig á ljósastaurum ef þú ferð ut að labba.    Light Bulb 

Ásdís Sigurðardóttir, 7.12.2007 kl. 15:26

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

"Má þakka fyrir að hafa verið í hreindýrinu sem ég skaut þegar ég flaug yfir Finnland hér um árið" ég er í kasti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.12.2007 kl. 18:17

3 Smámynd: Hugarfluga

Hahahahaha!!! Þú ert svo fyndin, kona!! 

Hugarfluga, 7.12.2007 kl. 22:02

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Bow Down þeinkjú - ég get hins vegar sagt ykkur, svona í trúnaði, að mér fannst þetta ekki fyndið á meðan á því stóð.......





Hrönn Sigurðardóttir, 7.12.2007 kl. 22:07

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nú lá við að þú dræpir mig úr hlátri Hrönn Sigurðardóttir, svoleiðis á ekki að koma fram við gamlar konur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2007 kl. 11:10

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú er skemmtileg  ég fór að hlæja þú orðar allt svo vel.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.12.2007 kl. 11:38

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Skil vel að þetta hafi ekki verið skemmtilegt meðan á því stóð en..............................................

Huld S. Ringsted, 8.12.2007 kl. 13:08

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ha ha ha ha ha óborganleg alveg hreint !

Marta B Helgadóttir, 8.12.2007 kl. 22:15

9 Smámynd: SigrúnSveitó

Þú ert náttúrlega bara snillingur!! Og ekki bara snillingur heldur DREPfyndinn snillingur!

Takk darling

SigrúnSveitó, 8.12.2007 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband