Kossabókakaffi :)

Í kvöld ætla ég á Bókakaffið til Bjarna Harðar og hlusta á Unni, Elísabetu, Hrafn og Illuga Jökulsbörn lesa og kynna bækur sínar.

Alltaf gott að koma til Bjarna og svo kyssir hann mig alltaf á kinnina þegar við hittumst - allavega alltaf þegar Magga systir er með - kannski er hann bara svona hrifinn af henni......... Verður æsispennandi að sjá hvort ég fæ koss í kvöld þegar ég birtist - Möggulaus..... Læt ykkur vita síðar! Tounge

Fékk brandara sendan að utan í morgun sem ég ákvað að leyfa ykkur að njóta með mér

I badly needed a few days off work, but I knew the boss would not allow me to take leave. I thought that maybe if I acted "crazy", then he would tell me to take a few days off. So, I hung upside-down on the ceiling & made weird noises. My co-worker (who's blonde) asked me what I was doing. I told her that I was pretending to be a light bulb, so the boss might think I was "crazy" & give me a few days off. A few minutes later, the boss came into the office and asked "What in the name of good GOD are you doing?" I told him I was a light bulb. He said, "You are clearly stressed out. Go home and recuperate for a couple of days." I jumped down & walked out of the office... When my co-worker (the blonde) followed me, the boss asked her "and where do you think you're going?!" 

She said, "I'm going home too, I can't work in the dark"

Fariði vel með ykkur InLove 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knúsaðu Unni frá mér Hrönn mín, og segðu henni að mér hafi þótt vænt um bókarsendinguna.   Heilsaðu líka Elísabetu frá mér.  Vona að litla - stóra barnið sem ég passaði fyrir hana í den sé stilltur og þægur.   ef þær vilja knús í beinni verða þær að koma á Ísafjörð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.12.2007 kl. 19:30

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góða skemmtun í kvöld. Ég er svo slæm af flensunni að ég treysti mér ekki út. Á örugglega eftir að missa af jólunum. Brandarinn er góður  innanbæjarkveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 6.12.2007 kl. 19:57

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góður. Ég vissi ekki að þau öll 4 væru með bækur þetta árið. Merkilegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.12.2007 kl. 20:35

4 Smámynd: SigrúnSveitó

garg!! jamm, gargandi snilld!! Thans, darl.

SigrúnSveitó, 6.12.2007 kl. 20:45

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það verður spennandi að vita hvort Bjarni kyssir þig Góða skemmtun í kvöld, mjög góður brandari.

Kristín Katla Árnadóttir, 6.12.2007 kl. 21:04

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég skilaði kveðju þinni Cesil - og henni þótti vænt um að þú hefðir ekki móðgast þótt þín saga hefði ekki komist með - Hún bað mig að skila kveðju til baka

Leitt að þú komst ekki Ásdís - þetta var mjög skemmtilegt

Jenný! Ég var nefnilega svo hissa líka enda kom í ljós að bókin hans Illuga, Guð er ekki til, festist í prentaranum og kemur ekki út fyrr en eftir jól.

Ég fékk kossinn en mér fannst hann minna innilegur en vanalega.......

Hrönn Sigurðardóttir, 6.12.2007 kl. 22:10

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Öfund, öfund - þetta hefur verið æðislegt. Hvílíkur systkinahópur, vá. Kannski segir þú okkur eitthvað frá þessum bókum?

Lúnkinn brandari.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.12.2007 kl. 22:30

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Frábær ertu

Marta B Helgadóttir, 7.12.2007 kl. 00:37

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Brandarinn góður!!!

Huld S. Ringsted, 7.12.2007 kl. 08:31

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég móðgast ekki út af svoleiðis, ég veit að fólk safnar saman fullt af efni, og ekki kemst allt á spjöld sögunnar.  Takk fyrir að skila þessu fyrir mig, hún veit þá að ég er ekki móðguð.  ertu annars búin að fá myndina í gegn ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2007 kl. 08:37

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Egill Guðnason, 7.12.2007 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.