Launráð og ljósaflóð

Ég ákvað að fara að dæmi Gulla "gamals" skólabróður sem ég fann fyrir tilviljun á moggabloggi, mér til mikillar ánægju, og kveikja fyrstu jólaljósin. Gulli vill að ég fari út og taki mynd af mér og ljósunum en það verður að bíða betri tíma. Hér er hávaðarok og ég hef aðeins eina reglu í lífinu, ég læt ekki mynda mig í roki!! Tounge onei, onei líf mitt er ekki flókið...........

Er örlítið að lagast í snúna fætinum. Hef ákveðna hugmynd um að ónefnd persóna, sem hleypur stundum með mér, en þó mest á UNDAN mér, hafi haft ómældar áhyggjur af að ég væri búin að ná ómótmælanlegum góðum millitíma og búið til þessa holu til að hægja á mér, ég sver það, hún var ekki þarna síðast. Tounge Flókið? Varla, ég skrifaði þetta hægt..... Halo 

Ætla núna að lufsast í mína uppáhaldsstöðu, undir rúm W00t með hitapoka við fót og halda áfram að lesa hrikalega góða bók sem títtnefnd ónefnd persóna lánaði mér - og fer þá hringurinn um hana heldur að þrengjast..... ha?

InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það eru svo notaleg kvöldbloggin þín og veðurlýsingar.  Ekta stemming.  Vonandi ryklaust í svefnstaðMuhahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 00:02

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi vonandi ferðu að lagast í fætinum Hrönn mín já gott hjá þér að halla þér og hafa hitapoka við fótinn batakveðjur til þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.11.2007 kl. 10:21

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Jólahvað??  gott að þú ert að lagast í fætinum

Huld S. Ringsted, 8.11.2007 kl. 13:39

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Hrönn viltu senda mér netfangið þitt vegna Leshrings?  martahelga@gmail.com

Marta B Helgadóttir, 8.11.2007 kl. 16:44

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

UNDIR RÚM ??  Hvernig sefur þú eiginlega manneskja.  Djííí..... er það út af jarðskjálftum. 

Vona annars að þú lagist sem fyrst í fætinum.  Hehehehe góð útskýring á dettunni, en please sofðu frekar í rúminu og undir sænginni elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.11.2007 kl. 20:32

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Jólaljós!! Held ég fari að kúra UNDIR rúmi líka. .......jólaljós..jahérna. Láttu þér batna í fætinum og vendu hundinn á að vera fyrir AFTAN þig kona. Þú endar UPPÍ rúmi með þessu áframhaldi. 

Halldór Egill Guðnason, 8.11.2007 kl. 21:51

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 9.11.2007 kl. 22:52

8 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

er allveg sammála Halldóri...... hætta að láta hundspottið draga þig um allt Árborgarsvæðið...... .... og blessuð frestaðu þessari jólaljósamyndatöku allavega fram að aðventunni.......og þá skal ég koma og smella nokkrum af þér......

smjúts....

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.11.2007 kl. 23:09

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hellú, á ekkert að blogga?

Kveðja

Blogglöggan

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2007 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband