Undir austurlenzkum mána!

Það tók sig upp gamalt tár þegar ég missti stjórn á fótunum í morgunskokkinu, lenti ofan í holu og fleytti kerlingar eftir malbikinu. Það var ansi vont....... Á meðan ég lá á miðri götunni og íhugaði að æla í anda Megasar - afsakið mig á meðan ég æli - fór ég varlega yfir alla útlimi og athugaði hvort þeir væru enn áhangandi. Ljónshjartað reyndi að sleikja mig í framan og settist á annan fótinn á mér og fullvissaði mig um að hann væri á staðnum! Þar sem ég sat og strauk hundinum, horfði ég á tunglið sem þóttist vera tyrknezkt og það rifjaðist upp fyrir mér hvar ég hafði verið stödd fyrir fallið.

Ég var að keppa á Ólympíuleikunum sem voru haldnir í Mið-Austurlöndum, ég hafði verið valin til að keppa fyrir Selfoss í langhlaupi!! Ég var að fara framúr þeim eina sem stóð á milli mín og fyrsta sætisins og þar með gullsins............ Tounge

Ég ákvað nefnilega um daginn að gera eins og konan sem ég las um í blaðinu. Hún ákvað að hætta að þrauka og byrja að hlaupa. Ég hef verið að hlaupa að næsta staur og svo næsta staur osfrv. Nú ákvað ég að hætta því og gekk bara svona ljómandi vel. Allt fram að falli. Næst hef ég með mér ljós!

Þeim ættingjum og vinum sem lesa bloggið mitt skal bent á að það er ekki fallegt að skamma þá sem meiða sig. Það er fallegra að koma færandi hendi með heitt súkkulaði og vöfflur.

pís InLove

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú ert í einu orði; frábær. Gott að byrja daginn á að brosa við lestur þessa pistils.

Heiða Þórðar, 5.11.2007 kl. 09:11

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Flott færsla Hrönn. Áttu von á skömmum frá ástvinum? Kannski fyrir að vera að þessu brölti um miðjar nætur. Skamm

Jóna Á. Gísladóttir, 5.11.2007 kl. 09:33

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...þetta fullorðna fólk er svo skrýtið, það er alltaf að skamma mann....

Takk stelpur mínar, þið eruð nú ekki sem verstar sjálfar!

Hrönn Sigurðardóttir, 5.11.2007 kl. 09:38

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég segi sama og Heiða það gott að byrja daginn og brosa þú ert spes.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.11.2007 kl. 09:49

5 Smámynd: Dísa Dóra

Alltaf brosi ég við að lesa bloggið þitt og núna brosti ég samtímis og hér hljómaði áááiiiiiiiii.  Vona að byltan hafi ekki skilið eftir mikil mein

Dísa Dóra, 5.11.2007 kl. 11:02

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

það á ekkert að vera að hlaupa þetta, ég hef alltaf sagt það.

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.11.2007 kl. 15:04

7 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

....mundu bara Hrönnslan mín að fall er fararheill......... segir ein sem er alltaf á hausnum...... og bíður enn eftir þessum fararheil..en sá lætur bíða eftir sér...hefur þú séð honum bregða fyrir í þinum föllum  

Fanney Björg Karlsdóttir, 5.11.2007 kl. 16:31

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Íþróttir eru bara svo hættulegar

Marta B Helgadóttir, 5.11.2007 kl. 18:39

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er smá sein á ferðinni vegna anna og vona að þegar þetta er skrifað hafi bágtið horfið í gleymskunnar dá.  Smjútsí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.11.2007 kl. 19:11

10 Smámynd: Hugarfluga

Æ, Jennýmús. Þú ert svo mikill snilldarpenni, kona!! haha ... lovjú.

Hugarfluga, 5.11.2007 kl. 19:41

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ elskuleg hvað þetta hefur verið sárt.   Og já það á alls ekki að skamma þá sem detta og meiða sig.  Hve þú setur þetta í skemmtilega búning samg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.11.2007 kl. 20:44

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já ég veit, bókasafnskort er miklu hættuminna.......

Nei Fanney, ég sé bara stjörnur.....

Jenný Anna, nei, nei, ég er bólgin, úrill og blá, marin, blóðug og bæld!!

Takk annars stelpur mínar

Hrönn Sigurðardóttir, 5.11.2007 kl. 21:09

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Það er vitanlega lang öruggast að halda sig bara til kojs og horfa hugfanginn á tyrkneskan ellegar íslenskan mána...útum gluggann. Það er nú samt eitthvað verulega heillandi og sjarmerandi við það að íhuga ælu. Sérstaklega eftir frjálst fall í poll.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 5.11.2007 kl. 21:41

14 Smámynd: Huld S. Ringsted

Vonandi ertu ekki lengur bólgin, úrill og blá, marin, blóðug og bæld Hrönnsla mín

Huld S. Ringsted, 6.11.2007 kl. 18:49

15 Smámynd: SigrúnSveitó

Þú ert yndi

SigrúnSveitó, 7.11.2007 kl. 09:49

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Dúllan mín, þú hefðir nú getað hringt í mig og ég komið og reddað þér á fætur.  Ég hef sjálfsagt verið steinsofandi þegar þetta gerðist, en ég hefði bara boðið þér uppí á milli og hlúð að þér.  Vona að ég fari að hitta á þig ljósið mitt, við gætum átt stefnumót á Krúsinni við tækifæri og spjallað.  Farðu varlega í fyrramálið.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.11.2007 kl. 20:20

17 identicon

Hrönn!

Ég var búin að vara þig við! Vildi einmitt ekki vitandi af þér hrasandi í myrkrinu um miðjar nætur.  Skamm víst.

stóra systir (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 20:21

18 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ertu orðin betri dúllan?

Marta B Helgadóttir, 7.11.2007 kl. 20:31

19 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Hæ Hrönn Ég ætlaði að fara að hvetja þig til dáða með að kveikja á rauðu seríunni - en það er sennilega ekki skynsamlegt að taka áhættu með að þú dettir niður úr tré í myrkrinu. Allavega, farðu vel með þig.

Gunnlaugur B Ólafsson, 7.11.2007 kl. 21:48

20 Smámynd: Rebbý

passa sig í myrkrinu kona, vona að þetta fæli þig ekki frá skokkinu á morgun heldur redda sér lýsingu.  óheyrilega dugleg, vildi að ég væri að skokka meðan ég sef á næturnar 

Rebbý, 7.11.2007 kl. 21:59

21 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Guðný Anna! Það er einstaklega sjarmerandi að detta Megas í hug sitjandi sárkvalin á malbiki. Alveg var ég búin að steingleyma hvað það er vont að detta á malbik. Þetta heitir líklega að rifja upp barnið í brjósti sér

Huld! Bólgnari, bældari, úrillari - en minna blóðug í dag!

Flórens! Það ert þú líka

Ásdís! Ég er ekki viss um að Hr. Ásdís hefði verið jafn tilbúinn.....

Stóra systir! Héðan í frá fer ég ekki út fyrir hússins dyr nema búin eins og kínverskur námaverkamaður. Kross mæ hart and hóp tú dæ  Vöfflur hefðu samt verið betri  Svo var þetta nú líka í "þinni sveit" Vonlausir vegir.....

Marta! Betri í dag en í gær....

Gulli! Búin að kveikja, vantar bara einhvern á myndavélina og ööööörlítið betra veður.

Rebbý! Ekkert getur fælt mig frá morgunskokki.

Hrönn Sigurðardóttir, 7.11.2007 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband