080808

Ég var að uppgötva að í dag er dagurinn sem ég ætlaði að giftast!

Ég lýsti því yfir í jólaboðum og sagði það hverjum sem heyra vildi að áttunda ágúst tvöþúsund og átta mundi ég ganga í heilagt hjónaband! Var búin að skipuleggja hverjar ættu að vera brúðarmeyjar - kaupa kjólinn eða pilsið sko, baka kökur og skreyta húsið....... Var nánast búin að plana allt! Það vantaði bara örlítinn bita í pússlið - sumsé hver sá hamingjusami yrði W00t en ég ætlaði nú að vera búin að redda því á öllum þessum tíma. Það hefur bara verið svo mikið að gera hjá mér að ég hef ekki mátt vera að því en það er nú ekki öll nótt úti enn ég hef alltaf 090909 uppá að hlaupa svo eru líka hinsegin dagar um helgina! Ekki að ég ætli eitthvað að fara að koma út úr skápnum - án þess að ég sé með nokkra fordóma gagnvart samkynhneigðum - sumir af mínum beztu hommum eru vinir....... Tounge en ég gæti hugsanlega fengið hugmyndir að búningum í skrúðgöngunni. 

Stúfur minn Stubbalings er hálfaumur síðan í aðgerð! Honum gengur þó merkilega vel að gera sig skiljanlegan um hvað það er sem hann vill eða vantar. Ég fékk haug af töflum með honum heim! Ég kveið nú svolítið fyrir að fara að troða þessum töflum öllum on´í hann.... tvær á dag af sýklalyfjum og ein og hálf af verkjalyfjum í fimm daga..... En - svo fattaði ég ráð... ég læt hann gera þær kúnstir sem hann kann, hann fær pillu í verðlaun og málið er dautt Tounge Allir ánægðir!

Björn Bjarnason hlýtur að vera í essinu sínu í dag Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

"sumir af mínum beztu hommum eru vinir......."..... þú ert snilld.........

Fanney Björg Karlsdóttir, 8.8.2008 kl. 09:55

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er nú svona Hrönn mín, smáatriðin geta stundum þvælst fyrir manni, svona á síðustu stundu

Ég kveið nú svolítið fyrir að fara að troða þessum töflum öllum on´í hann.... tvær á dag af sýklalyfjum og ein og hálf af verkjalyfjum í fimm daga..... En - svo fattaði ég ráð... ég læt hann gera þær kúnstir sem hann kann, hann fær pillu í verðlaun og málið er dautt Tounge Allir ánægðir!

Þetta er ekkert annað en tær snilld.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.8.2008 kl. 10:22

3 Smámynd: Brattur

... ekki vissi ég að Björn Bjarnason væri svona...

Brattur, 8.8.2008 kl. 10:58

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Uss, þú bíður bara eftir 10.10.10 - topptala og dagsetning sem lendir kannski á laugardegi til lukku!!! (ég er samt ekki búin að gá!).

En þú ert algjör snilli, ég þarf að prófa þetta hjá mínum skjólstæðingum, sem vilja ekki lyf.

Sigrún Jónsdóttir, 8.8.2008 kl. 11:01

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Er þetta virkilega svona með hann Björn ? 

Ég myndi velja daginn 11.11.11  Það virkar svo rómverskt. 

Anna Einarsdóttir, 8.8.2008 kl. 11:14

6 Smámynd: Rebbý

090909 er ekki laugardagur heldur miðvikudagur, ekki 101010(sunnudagur), né 111111(föstudagur) og ekki heldur 121212(miðvikudagur)

alveg mislukkað .... en erum við ekki öll svo mikið æði að fólk bara getur tekið sér frí frá vinnu/skóla til að koma og vera viðstatt brúðkaupið okkar (svona þeirra sem ætla að gera þetta aftur)

Rebbý, 8.8.2008 kl. 11:16

7 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Stundum er skipulagið aðeins á undan manni...ekki málið...mæli með 10.10.10...það er sunnudagur...til sigurs!!!!!

Snilld með Stubbalinginn...nota þetta á Tönjuna næst.....

Bergljót Hreinsdóttir, 8.8.2008 kl. 11:16

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

þú hefur margar obsjónir.  10.10.10. er ógóflottur. Bíddu þangað til.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.8.2008 kl. 11:21

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta var náttl. bara smáatriði með þann lukkulega, hugsaðu hvað bíður hans mikil gleði, þegar hann loksins kynnist þér.  Sniðug ertu í pillugjöf, verst að kisa mín kann ekkert sniðugt og lætur ekki plata sig í pillugjöf, hún fer í snippið 13 svo ég verð bara að pína oní hana.  Eigðu ljúfa helgi og ég vona að ferðamenn loki þig ekki inni í helgartraffíkinni.  Knús

Ásdís Sigurðardóttir, 8.8.2008 kl. 12:25

10 Smámynd: Ragnheiður

æj hehe rosalega var þetta snjallt ráð með Stubb. Ég hef ekki lent í að mínir vilji ekki pillur, það hefur komið ígerð og svo kúlusnippsnipp og róandi fyrir Kelmund fyrir áramót. Ég hef bara rétt viðkomandi voffa pilluna og hann bara glúgg...mamma segir að ég eigi að éta þetta og þá er það nammi ! Einfalt mál, hér er voðalegt yfirvald ..

Brúðkaupspælingar,ef þetta er bara tæknilegs eðlis..sko gifta sig til að gifta sig þá skal ég lána þér Steinar  en þú verður að finna hann. Ég veit ekkert hvar hann er staddur

Ragnheiður , 8.8.2008 kl. 14:06

11 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ég spyr, í sárasakleysi, Hrönn, eruð þið Rebbý að fara að gifta ykkur?

Markús frá Djúpalæk, 8.8.2008 kl. 19:59

12 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Það var eins gott að það varð ekki barn úr brókinni með þetta brúðkaup, HA! Þú varst búin að LOFA því að ég ætti að vera kokkurinn. Sjúkk maður!  Þú hefur séns næstu 4 árin, þeas: 09.09.09 10.10.10 11.11.11 og 12.12.12. og ekki deginum lengur.

Svo spyr ég aftur? Hvernig GASTU látið fjarlægja skemmtieplin hans Snúlla Stubbaling, áður en hann fengi að prófa? Ófyrirgefanlegt, segi ég bara!

Gunnar Páll Gunnarsson, 8.8.2008 kl. 21:13

13 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

PS: Björn Bjarnason, lengi lifi......................húrra.

Gunnar Páll Gunnarsson, 8.8.2008 kl. 21:14

14 identicon

Ég ælta rétt að vona að ég sé ein af brúðarmeyjunum !!!!!

  Takk annars fyrir að vera svona dugleg að blogga elsku Hrönnsa mín .....ert alveg að bjarga mér í masters-skrifunum

Linda frænka (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 21:51

15 identicon

oooo ég ætlaði að skilja þennan dag...eeennnnn gat ekki beðið

Góða helgi!!

alva (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 00:12

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvað vildirðu skilja í dag AKÆ?

Dúa! Bíddu bara - það kemur dagur eftir þennan.....

Linda! Átt þú ekki að vera að læra?

Gunni Palli! Vitaskuld verður þú kokkurinn!

Markús! Hver veit hvernig þetta endar? Hinsegin dagar um helgina og allt.....

Ragga! Þarna er ástæðan komin fyrir því að ég gleymdi þessu smáatriði!! Ég nenni ekki að finna þá! Þeir eiga að finna mig

Smjúts á ykkur öll

Hrönn Sigurðardóttir, 9.8.2008 kl. 01:04

17 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Æ takk fyrir smjútsið - veitti sko ekki af því

Markús frá Djúpalæk, 9.8.2008 kl. 08:42

18 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 09:42

19 Smámynd: Solla Guðjóns

 Ég reyndi nú að hjálpa til á elleftu stundu.....en eins og þú veist reyndist gaurinn giftur.......annars takk fyrir kíkið

Solla Guðjóns, 9.8.2008 kl. 10:42

20 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ég vona að það hafi ekki "verið átt neitt við" Stúf Stubbaling að "óþörfu"! Það er reynsla mín af hundum að ef "átt er við þá" geta þeir átt það til að hlaupa afturábak þar eftir og dilla hausnum. Þetta með dagsetningarnar og brúðkaupin er hins vegar ekkert áhyggjuefni. Ef sá rétti kemur skiptir dagsetningin engu máli. Bara mæta ekki of seint í brúðkaupið góan mín.

Halldór Egill Guðnason, 9.8.2008 kl. 22:13

21 Smámynd: www.zordis.com

Jæja og jæja .... Það var nú bara gaman hjá okkur á brúðkaupsdaginn þótt engin heit hafi verið bundin!

Knús á þig og við sjáumst fljótlega með fleytifullar krúsir í hendi (kaffikrús) ....

www.zordis.com, 9.8.2008 kl. 23:39

22 Smámynd: Hugarfluga

Hvurnig stendur á því að svona giftusamleg kona gengur lausum hala?

Hugarfluga, 9.8.2008 kl. 23:43

23 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég get ekki ímyndað mér að Stubbalingur geri mörg trix fyrir þig þessa dagana

Jóna Á. Gísladóttir, 10.8.2008 kl. 00:54

24 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Björn Bjarnarson......varstu eitthvað að "láta eiga við" hann líka? Nú skil ég hvorki upp né niður og

Halldór Egill Guðnason, 10.8.2008 kl. 01:19

25 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

wedding 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 10.8.2008 kl. 03:19

26 Smámynd: Tína

Þú ert bara flottust. Ég þurfti einmitt einhverntímann að gefa tíkinni einhver lyf og gerði ég allskonar kúnstir í þeirri viðleitni að fá hana til að taka inn pillurnar en endaði svo bara á að troða þeim niður í kokið á elskunni. Svo ætlaði Gunnar að gefa henni einu sinni og rétti henni töfluna sem hún bara át og ekkert vesen .

En fórstu í morgunmatinn í gær krúttan mín?

Hafðu það annars yndislega ljúft í dag

Tína, 10.8.2008 kl. 07:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.