Bezt before?

Að vel ígrunduðu máli hef ég ákveðið að bjóða mig fram til forseta!

Þá get ég boðið báðum vinum mínum í mat og jafnvel vinum vina minna - þ.e. ef þeir eiga þá einhverja........ Svo eru svo fjári flottar hlaupaleiðir í kringum Bessastaði! Ég er alveg sannfærð um að við Ljónshjartað tökum okkur vel út með Íslandsborðann úti að hlaupa - eða skokka eins og ég kýs að kalla það...... Við verðum afar virðuleg! Svo á hann svo asskoti góða(n) nágranna hann forseti..... Ég held hreinlega að hann geri sér enga grein fyrir því hvað hann á góða(n) granna. Hann gæti ísilí leikið í framhaldsmyndaflokki á stöð tvö........... Ég meina glætan að ég geti boðið vinum mínum í mat hér..... Lonely planet segir að hér borgi sig ekki að stoppa nema til að verzla......... Að vísu búa báðir vinir mínir hér líka þannig að ég ætti kannski bara að spara mér allan þann pening sem færi í framboð - eða heitir það útboð? Og gera bara betur í mat......? Hér eru líka ágætis hlaupaleiðir, landið nokkuð flatt... 

Ég veit! Ég býð mig fram - vinn og bý hér áfram...... Leigi bara Bessastaði út! Hvernig hljómar það? Ég meina eru ekki alltaf austurevrópskir menn á hrakhólum með húsnæði? Ekki reyna að segja mér að framboðsfrestur sé útrunninn! Frú forseti hljómar bara alltof vel í mínum eyrum til þess ;)

En þá að öðru! Við Ljónshjartað fórum út í skógrækt um daginn - bara svona að tékka að allt væri í lagi og sonna.... Þegar við vorum á leiðinni til baka sá ég hvar mávur reyndi að ná ungum frá andamömmu úti á miðri á. Það var ótrúlegt að sjá hvernig andamamma lyfti sér á tá og hæl og hreinlega hljóp eftir vatnsborðinu til að verja ungana sína. Mér rann náttúrulega blóðið til skyldunnar.... Þið vitið - við einstæðar mæður stöndum saman! Nó matter vott!! Ég vissi ekki fyrri til en ég stóð á bakkanum með steinhnullung í hendinni og ætlaði að fleygja honum í mávinn.... bara svona cirka 500 metra eða svo......... Wink Svo sá ég að andamamma bjargaði sér algjörlega án allrar félagslegrar þjónustu og fylltist stolti fyrir hennar hönd!

Læf is gúd InLove

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

já, farðu í forsetan... komin með 1 atkvæði þegar... X-H... þú hefðir kannski bara átt að hlaupa mávinn uppi... hann hefði ekki átt sjéns...

Brattur, 25.7.2008 kl. 21:40

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Hefur fjögur ár til að undirbúa þig ...

Markús frá Djúpalæk, 25.7.2008 kl. 21:42

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Heyrðu kjelling.  Telurðu mig ekki með þegar þú telur vini þína ?   

Ohhhh...... þá verð ég að draga þig frá.  3 mínus 1 = 2 vinir. 

Kannski ættum við að sameina vini okkar.  Ég meina, það er hagstætt fyrir svona oggolitlar einingar. 

Það fer eftir gangi sameiningarviðræðna hvort ég kýs þig til forseta eður ei.

Anna Einarsdóttir, 25.7.2008 kl. 21:47

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

sorrí! Skal aldrei gera  þetta aftur!! ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2008 kl. 21:49

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

en hey!! Ef við sameinum okkar vini þá erum við komnar með fjóra og ef við erum heppnar þá eiga þeir einhverja vini..... Kannski endar þetta með því að við getum sönglað stoltar.... 8x4 eru svitaspray á kropp.......... - eða hefur það kannski ekkert með vini að gera?

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2008 kl. 21:51

6 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe....sko stelpur, ég er hér og kýs sko almennilega konu á Bessastaði ef svoleiðis býðst

Ragnheiður , 25.7.2008 kl. 21:54

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

8x4 eru svitaspray á kropp...    Víííí, þetta er skemmtilegt lag. 

Hrönn, hugsaðu þér, nú eigum við fullt af vinum !  Það er nánast formsatriði hjá þér að fá kosningu til forseta.  Við þekkjum ALLA. 

Anna Einarsdóttir, 25.7.2008 kl. 22:10

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ragga Þú ert góði granninn!! Ég treysti á að þú hringir ekki í lögguna ef ég held partý!! ;)

Hallgerður! Ég mundi bjóða þér og jafnvel þínum ektamaka en fjandinn fjarri mér að þú mættir taka Bjart með þér! Leiðindapúki af guðs náð ;)

Ég veit Anna! Ég veit!! Ótrúlega margir vinir.......

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2008 kl. 22:40

9 Smámynd: Einar Indriðason

Sko... þú ert ca. 6 mánuðum of seint að koma þér í forsetaframboðið.  Nú er/verður Óli "krýndur" fljótlega, ef það er ekki búið nú þegar.  Ég hefði skrifað mig sem stuðningsmann við þig, og kosið þig.  Nú er að drífa sig, og safna réttum fjölda undirskrifta stuðningsmanna fyrir næstu kosningar.

Einar Indriðason, 25.7.2008 kl. 22:41

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvaða hvaða.... konur þurfa nú stundum að hugsa sig um...... :) Ég er að tala um að VEL ígrunduðu máli! Enda er ég svo ungleg, sbr. læknirinn sem skaffaði mér barnaskammta, að ég hlýt að endast lengi......

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2008 kl. 22:45

11 Smámynd: Einar Indriðason

Óh.  Þá er það alveg rétt hjá þér... VEL ígrundað mál.  En, já, nú hefurðu ca. 3.5 ár til að safna réttum fjölda undirskrifta

Einar Indriðason, 25.7.2008 kl. 22:52

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Fólk er nú ekki svo lengi að skrifa. 

Anna Einarsdóttir, 25.7.2008 kl. 23:29

13 Smámynd: Brattur

... ég var að höndla með 8 x 4 í gamla daga... þá var slagorðið... eins og kannski margir muna... 8 x 4 leysir vandann... flott slagorð í kosningabaráttu... er það ekki...

Brattur, 25.7.2008 kl. 23:30

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Að vel ígrunduðu máli, hef ég ákveðið að lýsa yfir stuðningi við Hrönn Sigurðardóttir, húmorista og húmanista sem forseta íslenska lýðveldisins.  Býð mig hér með fram sem sjálfboðaliða í kosningabaráttu hennar

Sigrún Jónsdóttir, 25.7.2008 kl. 23:32

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég mundi segja það Brattur!!

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2008 kl. 23:33

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sigrún Hvenær ætlarðu að koma í kaffi til mín?  (skuldbindingalaust)

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2008 kl. 23:36

17 identicon

Pældu samt í því ef þú hefðir nú hent grjótinu og drifið þessa 500 metra eða svo...og hæft einn af litlu sætu andarungunum...

Það yrðu örugglega alltaf hlátrasköll frá Bessastöðum ef þú kæmist þar til valda, það er alveg á hreinu.   Þá mætti bara kalla pleisið Hressastaði!!!

alva (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 23:47

18 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahahah AKÆ! Það hefði verið skelfilegt!! hvernig hefði ég átt að skýra það út fyrir andamömmu? Einn fyrir alla og allir fyrir einn?

....Svo hefði hún kannski elt mig heim - sjóðbandbrjáluð..... 

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2008 kl. 23:51

19 Smámynd: Steingrímur Helgason

Af myndarskab þínum lýzi ég þig sjálfkjörna 'for Z' & býð þér dúz í bland.

Steingrímur Helgason, 26.7.2008 kl. 00:24

20 identicon

Þú yrðir besti forsetaframbjóðandi sem hefur gefið kost á sér í mörg ár.Mitt atkvæði færðiu og ég tryggi þér atkvæði húsbandsins líka.Svo er ég líka vinur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 00:52

21 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ef ég kynni eitthvað í fotoshop, myndi ég snara fram mynd af Hrönnslunni í hlaupaskóm, með varasett á öxlinni ásamt Stubbaling, bestavin hennar, skoða heiðursvörð í opinberri heimsókn erlendis. Tuðarinn heitir ekki einungis hollustu sinni við framboðið, heldur hvetur Sigurðardóttur til að nota næstu fjögur ár vel í undirbúning. Skal sjá um undirskriftasöfnun í Mosfells og Lágafellsumdæmi og keyra kosningabaráttuna áfram af miklum eldmóð. 

Halldór Egill Guðnason, 26.7.2008 kl. 01:42

22 Smámynd: Dísa Dóra

Fengir sko mitt atkvæði og stuðning með það sama.  Vil sko endilega húmorista á Besstastaðina - og kannski yrði mér boðið í mat einhverntíman

Dísa Dóra, 26.7.2008 kl. 09:34

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú færð mitt atkvæði hér með frú forseti.  Æ hvað það var gott að heyra að ungamamma gat varið ungana sína fyrir varginum.  Við þurfum stundum að vera öskureiðar mömmurnar gagnvart vörgum af öllum gerðum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.7.2008 kl. 09:36

24 Smámynd: Tína

Með þessu áframhaldi neyðist þú til að þess að bjóða þig fram sem næsti forseti kona góð. Mér sýnist þú allavega vera komin langleiðina með að fá réttan atkvæðafjölda til þess að mega það. Enda færð þú mitt atkvæði og allra minna. Ef ekki þeirra þá sný ég bara upp á handleggin á þeim þar til þau kjósa rétt og hana nú. Annars held ég að ég hafi séð þig á gangi eftir Austurveginum ásamt ljónshjarta. Mig langaði sko mikið til að stoppa og gefa þér knús en þorði ekki .

Þess vegna færðu bara knúsinn hérna hunangshrúgan mín. Og takk fyrir að láta þig ekki standa á sama um mig.

Tína, 26.7.2008 kl. 12:14

25 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú færð mitt atkvæði krúttið þitt.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.7.2008 kl. 12:21

26 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Tína! Það hefði verið alveg óhætt - ég bít ekki - allavega ekki í fyrsta sinn ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 26.7.2008 kl. 12:53

27 Smámynd: Heiða  Þórðar

Mitt atkvæði, ekki spurning

Heiða Þórðar, 26.7.2008 kl. 15:52

28 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

svei mér þá ef ég myndi ekki bara skella mér í sendiráðið í kbh og kjósa þig.

Kærleikur til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 26.7.2008 kl. 21:34

29 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þú færð sko mitt atkvæði, ég skal meira að segja bjóða mig fram til starfa í kosningabaráttuna

Huld S. Ringsted, 27.7.2008 kl. 11:44

30 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þú færð tvö atkvæði frá mér.

Hlýtur að hafa verið magnað að horfa á frumskógalögmálið birtast þarna í miðri á. Good for andamamma!

Jóna Á. Gísladóttir, 28.7.2008 kl. 01:26

31 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Mun styðja forsetaframboð þitt með ráðum og dáð.

Steingerður Steinarsdóttir, 28.7.2008 kl. 10:16

32 Smámynd: Tína

Úr því þú bítur ekki - í það minnsta í fyrsta sinn, þá hvet ég þig eindregið til að kíkja við í búðinni ef þú átt leið hjá og þiggja kaffisopa. En ég verð þar allavega þessa vikuna.

Knús á þig yndislegust.

Tína, 28.7.2008 kl. 10:44

33 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Kýs þig hiklaust. Skrifa líka undir stuðningslistann við framboð þitt. Þið eruð töffarar, þú og öndin.

Helga Magnúsdóttir, 28.7.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.