Ég veit hvað ég ætla að verða....

 .....þegar ég verð stór!

Arabæjarhjáleiga

Ég ætla að verða bóndi og búa niðr´í Pörtum! Ég ætla að hafa hænur, hund(a) kött, gæsir, tvær kýr og nokkrar skjátur......... ;)  Þetta verður svona sjálfsþurftarbúskapur........Hver veit nema ég fái mér líka hesta! Ég er nú einu sinni með fætur eins og veðhlaupahryssa Tounge Að sjálfsögðu ætla ég svo að vera með kartöflugarð og rófur!

Ég er líka svo skotin í sorphirðufyrirkomulaginu í Flóahreppi! Joyful Þar er verið að taka upp þriggja tunnu system eins og í Stykkishólmi!

 

Fór í bíltúr í dag með Möggu, mömmu og Óla frænda á gamlar slóðir um Hraungerðis- Villingaholts- og Gaulverjabæjarhreppi hina fornu - sem í dag kallast Flóahreppur. Vorum svo stálheppin að komast inn í Arabæjarhjáleigu þar sem amma og afi bjuggu í den. Við sátum í bílnum þar fyrir utan eins og hverjir aðrir túristar þegar konunni, sem býr þar núna, hætti að standa á sama og kom út til að forvitnast hvað við eiginlega værum að gera........ Það endaði með því að hún bauð okkur inn! Smile

Fórum svo og fengum okkur að borða á Fjöruborðinu á Stokkseyri! Frábær matur og þjónusta - ég var að hugsa um að hafa þjóninn með heim....... ;)

Hér er Óli frændi á Fjöruborðinu.

Hittum Kristján í Skógsnesi og ég ætla ekki einu sinni að reyna að hafa eftir allt það sem þeir gátu rifjað upp - flissandi í framsætinu strákarnir.........

 

             Kíktum líka á Urriðafoss.....

Urriðafoss

 

 

 

 

En sumsé - framtíð mín er ráðin! Ég verð náttúrulega seint kölluð kuldalega kerlingin á Klöppinni, sem ég hef þó stefnt að leynt og ljóst í gegnum tíðina, úr því að ég vel mér búsetu þarna niður frá - en ég hugga mig við að það verður ekki vegna þess að ég sé svo hlýleg LoL

Hvernig líst ykkur á að ég verði kölluð Hrönn á Syðri Sýrlæk?  

InLove 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Er það ekki bara Hrönn bóndi á Pörtum ....?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.7.2008 kl. 22:00

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kæra Hrönn á Syðri-Sýrlæk, bara love U. Þetta hefur verið magnaður dagur hjá ykkur öllum saman.  ANnars finnst mér bara mega flott að hafa þig búsetta á Aust 38, vertu kyrr, nema í skjálftum og kynlífi.  knús

Ásdís Sigurðardóttir, 12.7.2008 kl. 22:01

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dagur í sýrlandi, kveikir á bjöllum.  Má ég koma í sveit til þín ?  Þú ættir að íhuga að taka svona dauðþreyttar kerlingar í fóstur í viku eða svo í sveitina, láta þær hlaupa, gefa þeim hollt fæði og láta þær borga þér formúu fyrir.  Um að gera að "leyfa" þeim svo að mjólka kýrnar, reka þær í hagan og sækja þær, labba út með hundana og gera allt sem þarf............................................................. nema vaska upp þvo þvotta, skúra bóna og þurrka af.  Og ég skal vera fyrsti kúnninn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 22:47

4 Smámynd: Dísa Dóra

Hey ertu úr Arabæjarhjáleigunni??  Jahérna hvenær bjuggu afi þinn og amma þar?

hehehe heimurinn er líltill.  Foreldrar mínir bjuggu nefnilega í Arabænum og keyptu einnig hjáleigujörðina (allt nema húsin).  Eru að vísu flutt á Selfoss núna og búin að selja Arabæinn en eiga enn hjáleiguna og stunda þar garðrækt

Dísa Dóra, 12.7.2008 kl. 22:54

5 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

..... á Syðri Sýrlæk........... common...... hér er ljós og engin heima...... ég vil fá að vita af hverju "Syðri Sýrlækur.......mér finnst hann ekkert síðri..........

Fanney Björg Karlsdóttir, 12.7.2008 kl. 23:07

6 Smámynd: Ragnheiður

Meðan það er ekki Hrönn á Neðri - Fúlalæk þá er það í lagi held ég

Ragnheiður , 12.7.2008 kl. 23:14

7 identicon

Frú Hrönn á syðri Sýrlæk.. Geitur verða að vera í dýrahópnum

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 23:24

8 Smámynd: www.zordis.com

Íslenskar púddur og geitur ... Eintómar ommilettur og ostar hjá Frúnni á S-Sýrlæk.

Ekki amalegt að þekkja Frúnna í vaðstígvélum með heygaffal ....

www.zordis.com, 13.7.2008 kl. 00:49

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrönn á Bugðu passar betur, einhvern veginn.  Veit ekki en það var það sem mér kom í hug.  Keyptu Bugðu efhúnertil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2008 kl. 09:10

10 Smámynd: Tína

Fjöruborðið er sko bara uppáhalds veitingastaðurinn minn. En úfffff hvað ég hef saknað þess að lesa bloggin þín

Knús á þig krútta og takk fyrir kvittið

Tína, 13.7.2008 kl. 09:16

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Bugðu?

Ég held þau hafi búið þarna frá 1938 til 1971....... Hvar eru mamma þín og pabbi með garðrækt?

Geitur! Já það er rétt - með bjöllur um hálsinn...... A la Heidi.....

Fanney....

En Ragga! Efri - Vola..............?

Já Cesil - alltaf velkomin

Zordís! Þú getur málað af því mynd - kona með gaffal  Ég mundi kaupa hana...

Ásdís! Kjur? Ég?

Guðný Anna! Kellingin á Pörtum? Hljómar ekki illa.....

Tína! Gaman að sjá þig aftur

Hrönn Sigurðardóttir, 13.7.2008 kl. 09:23

12 Smámynd: Dísa Dóra

Foreldrar mínir eru með garðrækt í Arabæjarhjáleigu.  Eiga jörðina þar ásamt hluta af skemmum þó þau eigi ekki íbúðarhúsið.  Áttu Arabæinn þar til fyrir 3 árum eða svo

Dísa Dóra, 13.7.2008 kl. 10:52

13 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

það hljómar bara ferlaga vel !!!

kær kveðja

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.7.2008 kl. 11:22

14 Smámynd: Einar Indriðason

Með þessu áframhaldi, þá verðurðu eins fræg eins og "Fréttaritari ríkisútvarpsins í Suður-Landeyjum, Jón Bergsson" (hjá spaugstofunni meðan þeir voru enn í útvarpinu).

Þú gætir orðið þekkt t.d. sem:  "Hrönn á Syðri-Selfossi"?

Einar Indriðason, 14.7.2008 kl. 10:19

15 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Endilega drífðu þig í að gerast bóndi. Myndi sjálf aldrei gerast bóndi, myndi ekki gera dýrunum það þar sem ég myndi örugglega gleyma að gefa þeim.

Helga Magnúsdóttir, 14.7.2008 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband