Björn Bjarnason ;)

Kvennahlaupið gekk stórvel. Við systurnar ingúdsheip Tounge hlupum náttúrulega lengstu vegalengdina,  þrátt fyrir hrikalega liti á bolum - og komum EKKI síðastar í mark.........Tounge

Síminn hennar Möggu hringdi þegar við vorum svo til nýkomnar á leiðarenda og mér varð að orði: Sjúkket að þú varst komin í mark maður! Er enn að flissa að því hvað ég var fyndin, alls óforvandis Cool

Er búin að redda mér kerru fyrir morgundaginn. Nú skal mokað út úr kjallaranum svo þvottavélin komist inn. Gengur heldur ekki að hafa kjallarann í skralli nú þegar ég er búin að koma hæðinni í skikkanlegt horf! Pinch

Ég sé að fólk er farið að leggja í langferðir á stóru jeppunum sínum með ennstærri fellihýsin sín í eftirdragi eða á húsbílunum sínum sem sóta svo svakalega að það þyrfti að sækja um undanþágu frá Kyoto samþykktinni fyrir þá....

.....var einmitt að hugsa það í dag að ef ég færi í útilegu með mitt tjald - já, ég sagði tjald Joyful Þá yrði ég líklega tekin í misgripum fyrir útlending! Það væri þá líkt og þegar við fórum til Danmerkur árið 2000 og eitt kvöldið þurftum við í þvottahúsið í sumarhúsabyggðinni sem við gistum þá vikuna og ég lagði blátt bann við því að eitt einasta íslenzkt orð kæmi út fyrir varir samferðamanna minna þegar ég heyrði að allir Íslendingarnir sátu á barnum! Ekki það að mér leiðist neitt drukknir samlandar erlendis....... alls ekki Whistling Áttaði mig ekki á því fyrr en seinna að ég var í bol sem á stóð: BRÚARHLAUP SELFOSS 1999 W00t En við töluðum dönsku.............

Las það í blaði í dag að einhver fræg leikkona í útlöndum segir að hún geti ekki eldað mat vegna þess að hún sé svo góð í rúminu! Það sé ekki hægt að vera bæði góður í rúminu OG eldhúsinu.....

.....ég segi nú bara HAH!! Með vænu dassi af hæðni. Ég veit nefnilega betur Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Huhhh! Við vitum sko betur!  Annars mæli ég ekki með að maður sanni rúmgæðin á fyrstu sömu tveimur klukkutímunum og maður sannar listfengi sitt í eldhúsinu.

En svo má nottlega líka sanna hvort tveggja í eldhúsinu... það má alltaf borða seinna...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.6.2008 kl. 22:19

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Segðu Helga Guðrún

Hrönn Sigurðardóttir, 7.6.2008 kl. 22:27

3 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe næst þegar þú ferð til útlanda þá geymirðu alla merktu bolina heima og þykist vera tékki. Það hlýtur að virka....

Djös dugnaður í ykkur að hlaupa svona, mér datt þetta bara alls ekki í hug enda hefði sundfatnaður verið eini gallinn sem hefði virkað utanhúss í dag ! Þá hefði ég aldrei getað ákveðið hvort það ætti að vera bikini eða sundbolur og hefði þar með hvorteðer misst af hlaupinu

Ragnheiður , 7.6.2008 kl. 22:35

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svo má alveg geraða í eldhúsinu stelpur, á meðan kjötsúpan mallar.

Hrönnsla mín, ekkert dass af hæðni hérna, þú getur ekki verið góð í rúminu, en þú getur verið ógeðslega góð UNDIR því.  Eller hur?

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.6.2008 kl. 22:35

5 Smámynd: www.zordis.com

Sko litur hlaupsins fannst mér æði!!!  Þið systur hafið verið ógó loco flottar !!!

Til hamingju með hlaupið og sjálfa þig flotta kona!

Að vera góð í lystfengi lífs og lífs er yndi ....

www.zordis.com, 7.6.2008 kl. 22:36

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Pottþétt Ragga

Jenný! Í - undir eða bara í garðinum..... alltaf góð

Takk Zordis Við vorum að tala um það í hlaupinu að við þyrftum að koma okkur upp rauðum lit í andliti ekki þessum fjólubláa! Sá rauði er miklu meira að gera sig fyrir okkur

Hrönn Sigurðardóttir, 7.6.2008 kl. 22:43

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Og hvað hefur Björn Bjarnason með þetta allt að gera? Var hann í sumarhúsabyggðinni? Gaf hann þér bolinn? Var hann í Kvennahlaupinu? Veit hann líka betur varðandi eldhússnilli þína og aðra snilli ... samtímis ...? Spyr sá sem ekki veit.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.6.2008 kl. 23:04

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei Guðný Anna! Hann er bara svo lummulegur með dagsetningarnar sínar í fyrirsögnum að ég set nafnið hans þegar stefnir í að ég verði jafn lummó......

Forvarnir sjáðu til ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 7.6.2008 kl. 23:07

9 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Ha ha ha....við getum þetta allt sko...hlaupið hratt í ljótum bolum...eldað glæsilega rétti heima og í tjaldútilegunni og gert húbbahúbba eins oft og okkur dettur í hug...aþþí við erum svo mega hæfileikaríkar...he he... ..er þaggi bara????

Bergljót Hreinsdóttir, 7.6.2008 kl. 23:34

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þú ert forvarnafrík, Hrönnin mín. Það er gott mál og blessað.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.6.2008 kl. 23:56

11 Smámynd: Tína

Sko....... skv. mörgum bíómyndum þá er hægt að notast við ansi margar fæðutegundir við húbbabhúbba-iðkun í svefnherberginu og notið hvort tveggja í ræmur. Varla færu þeir nú að ljúga þessir kvikmyndaframleiðendur?!

En í gær varð mér hugsað til þín með aðdáun í hjarta, þegar ég þurfti að stökkva hérna yfir götuna til nágrannans og fannst hyggilegra að vera með regnhlíf svo hrikaleg var rigningin!

Kramkveðjur inn í daginn Hrönn mín.

Tína, 8.6.2008 kl. 06:04

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 8.6.2008 kl. 06:57

13 identicon

Elsku Hrönn

Til hamingju með afmælið þitt í dag og gangi þér vel með þvottavélina

Kveðja úr Furugrundinni

Stína frænka (IP-tala skráð) 8.6.2008 kl. 11:00

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei, á hún afmæli stelpan ?

Hún á afmæli í dag
og því sem ég þetta lag.
Hjá Hrönn er ekkert sag
og hurðin þar er með eitt fag. 

  Vó...... til hamingju með daginn !

Anna Einarsdóttir, 8.6.2008 kl. 11:30

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtileg færsla að vanda.  Er Dúan ekki að djóka??  ætla að fylgjast með svörunum hjá þér.  Gangi þér vel í tiltektinni. 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.6.2008 kl. 12:13

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Held að Dúa sé að "djóka" með aldurinn en gæti verið rétt með afmælið.  Til hamingju með daginn frábæra kona (ef Íslendingabók gefur eitthvað hint).

Sigrún Jónsdóttir, 8.6.2008 kl. 12:37

17 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú er svo skemmtileg.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.6.2008 kl. 14:38

18 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk stelpur mínar

Hrönn Sigurðardóttir, 8.6.2008 kl. 17:48

19 identicon

Ég er góð í mörgu,og er smart í leðri, .Yndisleg færslan þín að venju

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.6.2008 kl. 18:03

20 Smámynd: Ragnheiður

til hamingju með afmælið, aldur er afstæður og það á Dúa dúskur að vita

Ragnheiður , 8.6.2008 kl. 18:30

21 Smámynd: Linda litla

Til hamingju með daginn !!! Liturinn á kvennabolunum.....kræst, fannst ekki ljótari litur ?

Linda litla, 8.6.2008 kl. 21:51

22 Smámynd: Huld S. Ringsted

Úpps! ég er víst ein af þessum á stóra jeppanum með enn stærra fellihýsi í eftirdragi!! en það verður víst eitthvað lítið um mig á þjóðvegunum í sumar, kannski bara smá

En ég missti af kvennahlaupinu, fór í veislu í staðinn

Huld S. Ringsted, 8.6.2008 kl. 23:17

23 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Nú er ég í kasti... Brúarhlaup Selfoss... hahahahaha

Jóna Á. Gísladóttir, 9.6.2008 kl. 00:03

24 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þér eruð óborganlega fyndin.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.6.2008 kl. 10:19

25 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hvað segir gunni kokkur við þessu ætla að benda honum á það þegar hann kemur heim á eftir

Blessi þig inn í fagurt kvöldið, með fugl á grein.

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.6.2008 kl. 16:35

26 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Mér fannst bolirnir í kvennahlaupinu algjört æði. Var að hugsa um að kaupa mér einn þó ég nennti ekki að hlaupa í rigningunni og ég er ekki að grínast stelpur

Svala Erlendsdóttir, 9.6.2008 kl. 19:59

27 Smámynd: Heiða  Þórðar

Innlitsknús og -kvitt

Heiða Þórðar, 10.6.2008 kl. 08:55

28 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Hrönn Sigurðardóttir !!!!!  það er engin eins og þú........ég rak líka upp stór augu þegar ég las umrædda grein...... og ég hugsaði með mér.... "Hvað skyldi Hrönn vinkona mín segja við þessu..." ???...

Fanney Björg Karlsdóttir, 10.6.2008 kl. 10:25

29 Smámynd: Solla Guðjóns

Hahaha las þessa grein og hugsaði fyrst ég sem er svo fjári góður kokkur....en í þessu tilfelli vil ég meina að það sé bæði betra........

Solla Guðjóns, 10.6.2008 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband