Mig langar í fúksíu

eða tár Krists - eins og ég held hún kallist á ástkæra ylhýra...... fuksia

Var að lesa Garðaspjall í 24 stundum eftir Hafstein Hafliðason, þar talar hann um pottaplöntur, ketti og hamingju!  Hefur það eftir vísindalegum niðurstöðum að kattafólk sem ræktar plöntur sé hamingjusamast alls fólks í endalausu jafnvægi og hjónabönd þeirra endast von úr viti!

Ég á hund, ég hef gaman af pottaplöntum!

Ergo - ég er í algjöru jafnvægi - enda fráskilin Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Hvað skildi það þá merkja þegar að ég á ketti og þeir éta blómin mín ??

Linda litla, 15.4.2008 kl. 13:45

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég á hund og kall lítið af blómum.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.4.2008 kl. 14:14

3 Smámynd: Ragnheiður

Fúksía er svakalega falleg. Ég á ekki mörg blóm, bara 5 stykki. Áður fyrr var heimilið eins og frumskógur en það er liðin tíð. Kemur kannski aftur jafnóðum og við lögum húsið hehe

Ragnheiður , 15.4.2008 kl. 14:32

4 Smámynd: Ólöf Anna

Huhh hjónaband er hégómi.

(segir sú sem er búinn að finna kallin er bara að bíða eftir hringnum og skeljunum)

en ég las fyrst að þú hefðir verið að lesa guðspjallið í 24tímum var ekki að skilja samhengið.

Ólöf Anna , 15.4.2008 kl. 14:59

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég hlýt að vera mjög hamingjusöm, ég á fullt f blómum, fjórar kisur, einn hund og tvo páfagauka....

já lukka hér á bæ.

BlessiÞig

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.4.2008 kl. 15:09

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er auðvita þess vegna sem ég er svona ánægð, ég á kött, blóm og eiginmann  Og ég sem hélt að ég hefði sjálf búið vel í haginn fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2008 kl. 15:44

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Annars sýnist mér þetta vera havairós sem þú setur myndina inn af

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2008 kl. 15:46

8 Smámynd: Dísa Dóra

Ég á einhver örfá blóm og ekkert blómstrandir samt (tja nema nóvemberkaktusinn einu sinni á ári eða svo).  Á engan kött og engan hund heldur og ekkert dýr ef út í það er farið.  Tel mig nú samt ákaflega hamingjusama

Dísa Dóra, 15.4.2008 kl. 16:04

9 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

hundur, kettir, hænsn og hestar.....og ofan á allt saman Bóndi..... mikið lifandi skelfingar ósköp hlýt ég að vera hamingjusöm...

Fanney Björg Karlsdóttir, 15.4.2008 kl. 16:51

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hér í dens átti ég 70 plöntur þegar mest var.  Annars þýðir ekkert að eiga kött og blóm,  kisur rústa blómum, en hundar og blóm það er allt önnur ELLA.  Náðu þér í blómið strax á morgun það er svoooo fallegt.   Flower  Flower Flower 

Ásdís Sigurðardóttir, 15.4.2008 kl. 19:59

11 identicon

Ég á blóm

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 19:59

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég á kött og hunda en drep allar plöntur kannski útskýrir að í dag er sá þriðji (kall sko) en mikið svakalega er þetta fallegt blóm

Huld S. Ringsted, 15.4.2008 kl. 20:55

13 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég á kött og karl en allar plöntur steindrepast ef ég svo mikið sem horfi á þær.

Helga Magnúsdóttir, 15.4.2008 kl. 21:19

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hvað með kattafólk sem gleymir að vökva blómunum af því að það þarf svo mikið að sinna lítilli kisuskottu ?  

Jú, víst er ég hamingjusöm  .. en blómin eru frekar vansæl. 

Anna Einarsdóttir, 15.4.2008 kl. 21:21

15 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég á ekki heimilisdýr en því meira af plöntum ....., og ég tala við þær

Marta B Helgadóttir, 15.4.2008 kl. 22:00

16 Smámynd: www.zordis.com

Haway rósin mín blómstrar stærri og styrkar blöðum, öll nokkuð grófari.

Jólarósirnar mínar eru í fullum blóma og stjúpur fjórar sem ég næ ekki að drepa alveg sama hvað gengur á!  Ég átti kött sem fór til himna en gengur með mér á Fjall svo ég er væntanlega ein af þeim sem lifi í endalausri gleði  og hamingju ....  Ekki versnar það við kanarýsöng alla daga!

Endemis skynsamleg þessi hamingja!  Köttur og blóm ....

www.zordis.com, 15.4.2008 kl. 22:00

17 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Blómarækt er vanmetin og hjónabönd ofmetin ....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.4.2008 kl. 23:40

18 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ekki vera að koma einhverjum ranghugmyndum inn í hausinn á mér góða mín.

Heiða Þórðar, 16.4.2008 kl. 00:12

19 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég átti rosa mikið af blómum,,,,,,hef átt 3 kettlinga eða sko krakkarnir og hamstur og gullfiska og finkur og páfagauk.....núna á ég bara Mr,Pálmason og aloaveraplöntur...... lífið er skrítið á köflum

Solla Guðjóns, 16.4.2008 kl. 01:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband