Talandi um snjó....

Ég er í smá vandræðum. Þannig er að alltaf ef ég sé fallega menn þá eru þeir frændur mínir! Og það er alveg sama hvort það er í föður- eða móðurfjölskylduna...... Alltaf þegar ég sé fallega menn þá hugsa ég: "já, já hann er örugglega frændi minn...." og oftast er það raunin. Til að fyrirbyggja allan misskilning þá á ég að sjálfsögðu líka ljóta frændur - þeir eru bara í minnihluta og oftast ljótir vegna þess hversu leiðinlegir þeir eru.....Tounge 

Nú er spurningin bara þessi: Á ég að hafa með mér ættartöluna hvert sem ég fer eða láta mér þetta í léttu rúmi liggja og hugsa bara - eins og mér var réttilega bent á - það er ekki eins og ég ætli að eignast með þeim börn og buru....... Tounge

Your True Love Is a Gemini

Why you'll love a Gemini:

Witty and sharp, a Gemini can keep up with your fast (and ever changing) mind.
You're both fun loving and free spirits. You and a Gemini can enjoy each other without expectations.

Why a Gemini will love you:

Not only can you keep up with a Gemini's sharp tongue, you can introduce a challenge or two...
You're appetite for fun and novelty will keep a Gemini interested - at least for a bit longer than usual!

http://www.blogthings.com/whatsignisyourtruelovequiz

Nú er bara eitt eftir! Finna frænda sem er tvíburi W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Best að tékka á hvað maður gerði rangt þessi ótal skipti sem ég gifti mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.4.2008 kl. 17:21

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ú la la, best að tékka eins og Jenný segir. Kannski gerði ég stór mistök fyrir 27 árum.

Steingerður Steinarsdóttir, 13.4.2008 kl. 17:45

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég aktually giftist tvíbura, og ég á fullt í fangi með að fylgja honum eftir, þegar hann þýtur frá einni hugmyndinni yfir í aðra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.4.2008 kl. 17:53

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Úpps. Ég á að vera gift tvíbura en hef verið gift vog í 27 ár. Fyrri maðurinn minn var heldur ekki tvíburi. Hvað á ég að gera?

Helga Magnúsdóttir, 13.4.2008 kl. 18:45

5 Smámynd: www.zordis.com

Tvíburinn minn er Spordreki!  Algjört gud dómlegt Fjall ... ekki skyld honum!

Finnst zad samt skrítìd zví hann er svo frábaer. 

Knús á zig ljúfust!

www.zordis.com, 13.4.2008 kl. 19:12

6 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Tvíburi já... megi allar góðar vættir styrkja þig í þeirri ákvörðun. Paul MacCartney er reyndar tvíburi og á lausu, auk þess ágætlega huggulegur miðað við aldur og all vel stæður. Hugmynd?

Markús frá Djúpalæk, 13.4.2008 kl. 19:22

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hugsanlega Markús! En er hann frændi minn?

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 19:23

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Auk þess er ég líka tvíburi þannig að þið skuluð passa á ykkur munninn OG rassinn

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 19:24

9 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Örugglega, Hrönn S. MacCartney I presume

Markús frá Djúpalæk, 13.4.2008 kl. 19:28

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 19:32

11 Smámynd: Dísa Dóra

haha ég er reyndar gift tvíbura

Dísa Dóra, 13.4.2008 kl. 20:07

12 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Leit er hafin fyrir þig Hrönn mín, nú spyr ég alla myndarlega menn sem ég mæti hér í Bretaveldi hvort þeir séu á lausu og í tvíburamerkinu. Það myndi nú bara flokkast undir "fjandans óheppni" ef í ljós kæmi að það finndist hér einn frændinn til.

(Þá myndi ég nú í þínum sporum bara segja "so..? ég er frændrækin!")

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 13.4.2008 kl. 20:32

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe ég hélt þú værir að meina tvíburi.. þú veist tvíburi

Jóna Á. Gísladóttir, 13.4.2008 kl. 20:43

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Kvitta fyrir mig

Marta B Helgadóttir, 13.4.2008 kl. 21:00

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahaah Jóna....... auli

Takk fyrir það Helga Guðrún - bara að það sé ekki MacCartney - hann er örlítið of hrukkóttur fyrir minn smekk

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 21:18

16 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Alltaf þykja mínar uppástungur of hrukkóttar eða of ... eitthvað annað.

Markús frá Djúpalæk, 13.4.2008 kl. 21:21

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

frændrækin? hvernig ætli það útleggist á engilsaxnesku? I am a nephewist?

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 21:34

18 Smámynd: Hugarfluga

Þvílík örlög, ég segi nú ekki annað!

Hugarfluga, 13.4.2008 kl. 22:20

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Enda bý ég ein Fluga.....

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 22:24

20 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Erum við ekki að reyna að ráða bót á því..?

(Enska nýyrðið "nephewist" er audda bara snilld eins og þér einni er lagið.. ég kútveltist um af hlátri þegar ég las það!)

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 13.4.2008 kl. 23:29

21 identicon

Það er auðvitað bara dásamlegt að koma hérna við.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 11:33

22 Smámynd: Linda litla

Ég varð að prófa líka

Your True Love Is an Aries
Why you'll love an Aries:

An Aries has the red-hot seduction skills to woo you
Never boring, an Aries will give you the romantic challenge you crave!

Why an Aries will love you:

You have the intensity and energy to go head to head with your Aries...
And the undying passion to keep an Aries coming back for more.

Linda litla, 14.4.2008 kl. 12:27

23 Smámynd: Solla Guðjóns

Talandi um snjó þá á ég tvíburamerkisbróðir á lausu

Slepptu þessari ættartölu....þú þekkir trúlega þá nánustu.....annað er fjarskilt og skiptir ekki máli.....nema að hann sé ljótur

Solla Guðjóns, 14.4.2008 kl. 13:00

24 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

vissi að hann finndist.........

Hrönn Sigurðardóttir, 14.4.2008 kl. 13:13

25 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 14.4.2008 kl. 17:59

26 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Í fjórða lið eða fjær er eiginlega ekki skyldleiki. Go for it girl

Marta B Helgadóttir, 14.4.2008 kl. 19:24

27 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

eða þriðja.......

Hrönn Sigurðardóttir, 14.4.2008 kl. 19:49

28 Smámynd: Rebbý

hvar eru allir þessir fallegu frændur þínir ..... ég hef væntanlega ekki rekist á þá enn ..... best að tékka á hvaða stjörnumerki ég á að finna mér, kýs samt Naut handa mér einhverra hluta vegna.

Rebbý, 14.4.2008 kl. 21:46

29 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það er nú það hættulega við þá! Þeir geta verið hreint út um allt...........

Hrönn Sigurðardóttir, 14.4.2008 kl. 22:11

30 Smámynd: Heiða  Þórðar

Stundum ég hugsa ég; damn mig langar að knúsa þessa kerlingu!

Þú ert æði Hrönn

Heiða Þórðar, 14.4.2008 kl. 23:12

31 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Komdu bara við hjá mér næst þegar þú ert á ferðinni. Ég er alltaf til knúss

Dúa komdu bara líka Mæli með því að prófa tvíbura..... Þú mátt fá alla mína ljótu frændur

Hrönn Sigurðardóttir, 14.4.2008 kl. 23:18

32 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

eru ekki allir íslendinar NÆSTUM í sömu fjölskyldi. farðu bara út fyrir landsteinana.

BlessiÞig

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.4.2008 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband