Glíkur hörðum stein.........

Í gærkvöldi var mér var boðið í hangikjöt með grænum baunum og uppstúf, sem er um það bil eini þorramaturinn sem ég borða........... jú og harðfiskur líka - og flatkökur - er þetta ekki annars ábyggilega þorramatur?

Pabbi átti afmæli og mamma bauð mér í mat - ég meina ég er nú einu sinni upphaldsdóttirin Tounge eða kannski sú eina sem er á staðnum........ hin hugmyndin er betri - ég held mig við hana!

Sat svo eftir matinn og sötraði kaffi og Grand langt fram eftir nóttu og spjallaði við mömmu. Yndisleg stund. Þegar ég ákvað loks að tími væri kominn á mig að fara heim var klukkan langt gengin í tvö og veðrið algjörlega vitlaust!! Ég sagði við mömmu að ég yrði líklega að fara heim, sækja Ljónshjartað og gista hjá henni...........Tounge

Í dag hef ég gert mest lítið, ég sat heillengi og taldi sjálfri mér trú um að ég væri að lesa - en líklega var ég mest sofandi........ heyrði samt alltaf í útvarpinu Tounge

Rólegur dagur, algjörlega fyrir sjálfa mig InLove

Einhver sem hefur hugmynd um hvað fyrirsögnin þýðir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki græna glóru Hrönn mín, en ég elska að lesa bloggið þitt.  Og mikið er gaman að eiga góða stund með mömmu sinni.  Mamma er alltaf sú besta ekki satt?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.1.2008 kl. 19:29

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk Cesil mín

Hrönn Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 19:31

3 Smámynd: www.zordis.com

Fyrirsögnin er forvitnileg, hef ekki hugmynd um hvað orðið glíkur þýðir .... ????

Notalegt að eiga ljúfa stund með mömmu músinni, sötra eitthvað hjartastyrkjandi tala nú ekki um ef það er grand.  Grand stund sem þið hafið átt og ég óska þér til hamingju með strákinn hann pabba þinn!

E. helgi ferðast rósin!

www.zordis.com, 26.1.2008 kl. 19:38

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Hangiket og harðfiskur er afbrags þorramatur. Ég hef aldrei verið hrifinn af súrmeti, vil heldur nýtt slátur.  Glíkur þýðir einfaldlega líkur segir Sigfús gamli Blöndal í orðabók sinni.  Í Þorraþræl er glíkur notað í stað líkur stuðlanna vegna. " Þögull Þorri heyrir- þetta harmakvein - gefur grið ei nein, - glíkur hörðum stein, - engri skepnu eirir, - alla fjær og nær...   Er þetta ekki líkleg skýring Hrönn?

Ágúst H Bjarnason, 26.1.2008 kl. 19:39

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jú Ágúst - þetta er ekki ósennilegt! Allt í einu meikar þorraþrællinn sens. Takk fyrir þetta ;)

Takk Þórdís og aftur takk. Ég fyllist vellíðan við tilhugunina um að rósin sé á leið "heim"

Hrönn Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 20:22

6 Smámynd: Víðir Ragnarsson

Mjög fróðlegt og kannski skil ég Þorraþræl fyrir rest.

Þegar mér var gert að læra þetta utanbókar sem óbjarga barni, lærði ég bara að mynda sérhljóða og samhljóða í fyrirfram ákveðinni röð...

Án þess að hafa hugmynd um hvað ég var að segja!

Víðir Ragnarsson, 26.1.2008 kl. 21:42

7 Smámynd: Hugarfluga

Ó en dásamleg kvölstund með ástvini. Býrðu í næstu húsi við múttu túttu? Æðislegt að eiga svona móment.

Hugarfluga, 26.1.2008 kl. 23:10

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Víðir - veistu nokkurn tíma hvað þú ert að segja?  

Fluva - ekki kannski næsta húsi, en hér eru engar vegalengdir langar.....

Hrönn Sigurðardóttir, 27.1.2008 kl. 08:37

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ha!!?? og ég sem hef ekki einu sinni þorað að halla mér.....

Hrönn Sigurðardóttir, 27.1.2008 kl. 12:02

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hef ekki hugmynd um fyrirsögn og varðandi aðra.  Hvað átti fyrirsögnin um Björn Bjarnason að fyrirstilla þarna um daginn?

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.1.2008 kl. 12:59

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Engri skepnu eirir þýðir fyrirsögn.  Hva

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.1.2008 kl. 13:01

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Björn Bjarnason?  Mér datt engin fyrirsögn í hug og hann er svo lummó alltaf með dagsetningar á sínum pistlum - gat ekki verið jafn hallærisleg og hann, þannig að.............

Assgoti varstu flott í útvarpinu í morgun kjéddling!

Hrönn Sigurðardóttir, 27.1.2008 kl. 13:33

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég hef nú bara ekki hugmynd um þetta, hef reyndar aldrei heyrt orðið Glíkur???

Ég er nú sammála þér þegar kemur að þorramat, borða bara hangikjöt og harðfisk, kannski sviðasultu ef hún er góð

Huld S. Ringsted, 27.1.2008 kl. 15:27

14 Smámynd: Heiða  Þórðar

Koma svo koma svo...ekki grænan grun. Ég þú bara vissir hvað ég fékk að borða í gær...og það ekki frá mömmu

Heiða Þórðar, 27.1.2008 kl. 19:37

15 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Hef aldrei heyrt þetta orð Glíkur

Marta B Helgadóttir, 27.1.2008 kl. 21:39

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ágúst kom með svarið stelpur mínar, mjög snemma.....

.... Glíkur hörðum stein = eins og kaldur klettur - eða gæti ekki verið meira sama.... hreinlega eins og ísjaki!!

Hrönn Sigurðardóttir, 27.1.2008 kl. 22:23

17 Smámynd: Ágúst H Bjarnason


Ég fann orðið glíkur = líkur í Orðabók Sigfúsar Blöndal frá 1920. Þetta er mikil bók tæpar 1100 blaðsíður í stóru broti.   Með því að Gooogla er hægt að finna orðið í Hómilíubók hér.   Greinilega fágætt orð

Ágúst H Bjarnason, 27.1.2008 kl. 23:30

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er búin að gúggla eins og vitfirringur og svo er Ágúst bara með svarið

Skammast mamma þín sín ekkert fyrir að sitja að sumbli með ´barninu sínu

Jóna Á. Gísladóttir, 28.1.2008 kl. 00:48

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

heheheehe Jóna vonandi ekki........... Hún á alltaf svo ansvíti gott vín ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 08:26

20 Smámynd: SigrúnSveitó

nammi namm...hangikjet, uppstúfur, kaftöflur og flatkökur!  Gerist vart betra!

Gleðilegan þorra, mín kæra. 

SigrúnSveitó, 28.1.2008 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband