Litli rasistinn minn

Stúfur litli Stubbalings er rasisti.

Við vorum úti í dag að míga, eins og við gerum svo oft, hér við þjóðveginn, þegar gömul kona í rafdrifnum fjórhjóla litlum stól brunaði hjá. - Ætli þeir heiti eitthvað þessir stólar? Kannski buggy stólar? Stubbur þeyttist að henni og opinberaði þar með rasistann í sér, með þeim afleiðingum að gamla var næstum lent úti á þjóðveg numero uno. Ég hef svosem orðið vör við þessa tilburði hjá honum áður, þegar önnur gömul kona sem á líka svona stól - já, já annað hvort eru þær svona latar eða fótafúnar - og á oft leið hér um því hún sækir messu hjá Hvítasunnu. Ég lokaði bara augunum og bakkaði út úr þeim hugleiðingum. Dýr eru ekki rasistar!! Allavega ekki mitt dýr!!!

Í dag komst ég ekki hjá því að horfast í augu við þetta því nágranninn stóð úti með sitt íþróttablys og sá þetta líka. Ég horfðist í augu við hann og sagði: Ég held að kvekendið sé rasisti!

Auðvitað meinti ég kelluna í stólnum Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

alltaf! er með athyglissýki á háu stigi ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 19:45

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já ég segi það mígur þú líka við þjóðveginn þú ert að drepa mig af hlátri.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.1.2008 kl. 19:47

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehe gott að drepast úr hlátri......

Hrönn Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 19:53

4 Smámynd: SigrúnSveitó

SigrúnSveitó, 4.1.2008 kl. 20:53

5 Smámynd: Hugarfluga

GARG!!! Þú ert schnillingur í puttunum!!

Hugarfluga, 4.1.2008 kl. 21:25

6 Smámynd: Fiðrildi

 flott gella þar á ferð.

Fiðrildi, 4.1.2008 kl. 23:26

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, það eru ekki allir sem geta migið við þjóðveg 1 og komist upp með það. Sjáumst mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 23:39

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL þessi færsla er snilld og líka svolítið sýrð. ég sé ykkur fyrir mér míga í félagi við þjóðveg uno og kvekendið elta kvekendið í fjórhjólastólnum

Jóna Á. Gísladóttir, 5.1.2008 kl. 01:51

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrönn þú ert steikt.  Og hundurinn líka, þið eruð steikt par.  Því ekki að míga hundinum til samlætis, ég held að það sé mjög umhverfisvænt.

Ég ligg í hlátri.

Illt í maga og skammastín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.1.2008 kl. 10:32

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég var bara að stríða þér Hrönn mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.1.2008 kl. 13:35

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

skil hann vel, þetta hlítur að vera ógnvekjandi þegar maður er bara lítill hundur. það ætti að banna svona stóla

AlheimsLjós til þín

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.1.2008 kl. 16:35

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góðan daginn og tak for sidst.

Það er alveg heimsmet að koma manni til að hlæja svona innilega, snemma morguns í mesta skammdeginu ...

.....þú ert sko bara snilld  Hrönnslan

Marta B Helgadóttir, 6.1.2008 kl. 07:03

13 Smámynd: Rebbý

dýr eru heilmiklir rasistar - sennilega þó ekki stubbalingurinn þinn enda gæðagripur 

Rebbý, 6.1.2008 kl. 19:33

14 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Og hvað var tjéllingin líka að þvælast þarna á spítthjólastól....... Ég held með Stubb!

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 7.1.2008 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband