Sunnudagur

Við vorum að koma inn úr morgunröltinu, ég og Stubbalingur. Vinum mínum með bláu ljosin fannst við vera afar grunsamleg þar sem við lékum okkur á árbakkanum í skjóli myrkurs Tounge Þeir stoppuðu heillengi og horfðu á okkur. Voru líklega að spá í að handtaka okkur fyrir ærsl á almannafæri W00t

Í dag ætla ég að pakka inn jólagjöfum og skrifa jólakort sem ég ætla að reyna að muna að fara með í póst á morgun! Þið kannski minnið mig á það, þar sem ég man ekki fyrir horn og verð að öllum líkindum bæði búin að gleyma að ég skrifaði á jólakortin og hvar ég setti þau, á morgun!

Núna ætla ég hins vegar að skríða aftur upp í rúm. Er að lesa svo góða bók - Morðið í Rockville - eftir Stellu Blómkvist. Svo rignir úti og vindurinn hvín og blæs. Kjöraðstæður fyrir lestur undir rúmi LoL

Sunnudagar eru mitt uppáhald InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ekki þýðir að biðja mig um að minna þig á eitthvað þar sem ég man ekki stundinni lengur að ég átti að minna þig á eitthvað!!

Þið stubbalingur eruð svo dugleg í þessum morgungöngum

Huld S. Ringsted, 16.12.2007 kl. 10:16

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ú hvað þetta hljómar eitthvað notalega. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.12.2007 kl. 11:33

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Það eru jólakortaskrif á dagskrá hér líka, ef ég nenni. Njóttu vel sunnudagsins Hrönnslan, það eru bestu dagarnir.

Marta B Helgadóttir, 16.12.2007 kl. 12:44

4 Smámynd: Rebbý

mmm notalegt að skríða aftur upp í rúm með bók í hönd

Rebbý, 16.12.2007 kl. 13:15

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Úff ég er en ekki búin að skrifa jólakortin þetta er svo mikið verð að klára þetta á eftir þá er mikið búið. Já lúrðu bara.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.12.2007 kl. 13:15

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

mmm hljómar notalega.... Þetta með rúmið og bókina...... have a nice day...

Fanney Björg Karlsdóttir, 16.12.2007 kl. 13:42

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nenni ekki að byrja á neinu sem ég ætlaði að gera í dag.....

....veit ekki hvar þetta endar!! Haldiði að jólin komi samt?

Hrönn Sigurðardóttir, 16.12.2007 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband