Nærföt og neyðarskýli

"Varaðu þig á hálkunni í sturtunni", sagði ég við konuna sem þrjózkast með með mér í útiklefanum!! Þær súpa hveljur stelpurnar þegar ég kem að utan. Þær eru líka svoddan blóm. Ég segi þeim að þetta haldi manni í þjálfun við að klæða sig hratt - sem svo kemur sér vel þegar kona býr á jarðskjálftasvæði. Á örstuttum tíma gusast ég fullklædd út - en þó í samstæðum nærfötum sem er, eins og allir vita, frumskilyrði ef kona þarf að dvelja í neyðarskýli Tounge Ímyndið ykkur hvað annars yrði um mig sagt.......

Fórum svo í pottinn, nokkrar, eftir leikfimina. Ræddum þar viðtalsþætti í sjónvarpi og jólabókaflóðið. Töluðum m.a. um bókina um Bíbí. Ein sunddrottningin sagði frá því að þær hefðu verið vinkonur í æsku, hún og Bíbí, væru fæddar sama ár. Ég sagðist hafa haldið að þessi bók væri um gamla konu og opinberaði þar með fáfræði mína - enn einu sinni W00t Spurði svo hvaða ár hún væri fædd. "52" svaraði hún og ég sagði um leið og ég flýtti mér upp úr "núúúú hún ER um gamla konu"

Farin að vinna InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég nenni ekki að þekkja þig addna, ég er fædd 1952 og miðað við nokkuð marga Íslendinga er ég ekki baun gömul. Frussssssssssssssssssssss

Elska þig samt

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.11.2007 kl. 09:00

2 Smámynd: Dísa Dóra

hahaha þú ert yndi.  Greinilegt að ég á ekki nema tuginn í að verða gömul

Dísa Dóra, 22.11.2007 kl. 09:37

3 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

ahahahah.... ég tryllist...... en ég er allveg sammála þér Hrönnslan mín´... nú sem endra nær..... bókin ER um "gamla" konu......... Þetta geta svona unglömb eins og við sagt..... og það meira að segja án þess að roðna á hálsinum.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 22.11.2007 kl. 09:40

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Slepp fyrir horn. Er sjö árum yngri en Bíbí og er ekki sjö heilög tala.

Steingerður Steinarsdóttir, 22.11.2007 kl. 14:33

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ó mæ god, var ekki búin að átta mig á nauðsyn þess að vera í samstæðum nærfötum í neyðarskýli, ætla að koma mér upp setti á náttborðinu til að hendast í, í neyðartilfelli.  verðurðu ekki röltinu í bæunum í kvöld? allt opið til 10

Ásdís Sigurðardóttir, 22.11.2007 kl. 15:09

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

usssusssuussss.. þú ert sennilega ekki velkomin í pottinn lengur

Jóna Á. Gísladóttir, 22.11.2007 kl. 18:48

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jenný! lovjútú

Dísa ;)

Fanney! Þurfum að fara að hittast

Steingerður! Jú er ekki talan sjö prímtala?

Ásdís! Ég held ég nenni ekki út í kvöld. Ætlaði í prjónakaffi til Bjarna Harðar. Hann er nú alltaf í svo vel prjónuðum peysum. Nenni því ekki heldur. Líst vel á að hafa nærfötin klár á náttborðinu :)

Jóna! Sennilega ekki....... ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 22.11.2007 kl. 20:15

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Fyrir löngu búin að átta mig á samstæðunni....en mikið asskoti ertu snögg að klæða þig í .....vona að þú sért jafn snögg úr

Annars eru YNDISLEG og mér þykir mjöööööööög vænt um þig dúllurassgatið þitt

Heiða Þórðar, 22.11.2007 kl. 20:20

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Heiða!

Hrönn Sigurðardóttir, 22.11.2007 kl. 20:21

10 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Hrönnslan mín..... var einmitt að spá í að hafa samband við þig um helgina og jafnvel kíkja á þig..... á meðan bóndinn öslar um hálendið (eða eitthvað) með riffilinn... verum í bandi......

Fanney Björg Karlsdóttir, 22.11.2007 kl. 20:28

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Endilega Fanney

Hrönn Sigurðardóttir, 22.11.2007 kl. 20:32

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heyrðu nú mig Hrönn, hvað þá með mig sem er fædd nítjándhundruð fjörutíu og fjögur ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.11.2007 kl. 21:29

13 Smámynd: Rebbý

já þið eruð allar gamlar og ég næstum líka - en við verðum bara yndislegri með árunum svo fagnið þeim

Rebbý, 22.11.2007 kl. 21:44

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Cesil mín! 1944 fyrir sjálfstæða Íslendinga!!!

Rebbý! Ég veit

Hrönn Sigurðardóttir, 22.11.2007 kl. 22:11

15 Smámynd: Hugarfluga

Æ, bara það sem allar hinar sögðu.  Er svo sein alltaf.  Lovjú.

Hugarfluga, 22.11.2007 kl. 22:29

16 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Aldur er aðallega attitjúd..eh  

maður er ekki eldri en manni finnst maður vera (nokkuð kúl þessi hjá mér fannstérekki? )

Marta B Helgadóttir, 22.11.2007 kl. 22:43

17 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég á þá bara eftir 7 ár í að verða gömul kona

Huld S. Ringsted, 22.11.2007 kl. 23:04

18 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér finnst ég ekkert vera gömul iss aldur skiptir ekki máli. Knús til þín

Kristín Katla Árnadóttir, 23.11.2007 kl. 10:54

19 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Sammála Mörtu. 

Halldór Egill Guðnason, 23.11.2007 kl. 13:08

20 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Muna svo að gera innkaupin í dag Hrönn. "Tomorrow we go on a consumres strike"

Halldór Egill Guðnason, 23.11.2007 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband