Debet og Kredit

Sat þrjózkuleg á heilsugæslustöðinni í tvo tíma í morgun. Heimtaði að hitta lækni, sagðist ekki fara heim fyrr en ég væri búin að því og mér væri alveg sama þótt það væri enginn læknir á vakt!!!

Endaði náttúrulega með því að ég fékk að hitta lækni, sem þuklaði á mér fótinn alveg þar til ég sparkaði í hann og sagði að þetta væri vont, hann sendi mig þá í myndatöku og sagði mér svo að fara heim og hætta þessu snökkti, það væri ekkert að mér W00t Er stórfé fátækari á eftir.

Hinsvegar græddi ég tvennt - eða þrennt ef ég tel allt með.

a) Karlmaður þuklaði á mér Tounge só vott þó ég hafi þurft að borga honum fyrir það, ég hef heyrt af ríkum kjéddlingum í útlöndum sem borga líka fyrir það!!

b) Hitti hjúkku frammi á gangi sem sagðist lesa síðuna mína og bað um leyfi til að nota myndir frá mér. Sem ég náttúrulega, af minni alkunnu gæzku, leyfði Smile Væri gaman, Fanney, að fá að sjá þegar þú ert búin að varpa þeim út og suður!

c) Þegar ég kom heim, beið mín póstur frá "gamalli" skólasystur þar sem hún sagði mér textann að laginu í síðustu færslu og hverjir fluttu. Takk fyrir það Gunnhildur

Ekki slæmt miðað við að klukkan er rétt orðin hádegi!

pís InLove

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahaha, perrAn þín og segðu að bloggið sé ekki til margra hluta nytsamlegt.  Guð veri með þér

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.11.2007 kl. 12:24

2 Smámynd: Unnur R. H.

Góð!!!!!!!!

Unnur R. H., 13.11.2007 kl. 13:14

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert nú alveg frábær.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.11.2007 kl. 13:18

4 Smámynd: Dísa Dóra

hahaha greinilegt að það lesa margir bloggið þitt.  Hefðir kannski bara átt að benda doksa á að lesa það líka svo hann sæi nú að þú hafðir alveg ástæðu til að vola

Dísa Dóra, 13.11.2007 kl. 13:33

5 Smámynd: SigrúnSveitó

snillingur

SigrúnSveitó, 13.11.2007 kl. 14:17

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

ekki amalegt að fá frítt þukl svona snemma morguns!

Huld S. Ringsted, 13.11.2007 kl. 16:49

7 Smámynd: Hugarfluga

Snillingur! Lovjú!

Hugarfluga, 13.11.2007 kl. 18:10

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hey Halló, á ekki að deila þessari vitneskju um texann með okkur hinum.  Hvað með okkar svefnlausu nætur   Annars flott færsla hjá þér

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2007 kl. 19:48

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sorrý!!! Lási skó með Póló og Bjarka..........

"Aha ójá áður fyrr margt hjartað ástfangið sló/aha ójá eins var líka settur hæll undir SKÓ"  sillí mí...........

Hrönn Sigurðardóttir, 13.11.2007 kl. 21:07

10 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

....og í hvað fór eftirmiðdagurinn ???.... mér er spurn...

Fanney Björg Karlsdóttir, 13.11.2007 kl. 22:18

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Eftirmiðdagurinn fór náttúrulega í að hlaupa uppi sæta stráka Fanney! Ég meina ökklinn í svona toppstandi...........

Hrönn Sigurðardóttir, 13.11.2007 kl. 22:44

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

A liðurinn er sérstaklega áhugaverður  borgaðirðu honum extra fyrir þuklið eða var það innifalið í hinu

mail til þín. 

Jóna Á. Gísladóttir, 13.11.2007 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband