Reykjavíkurmaraþon og menning

Hljóp 10 kílómetra í gær. Trúi því varla enn að ég hafi meikað það.

Kom í mark um leið og fyrsti maraþonhlauparinn..... Hann er frá Kenya sem er vel við hæfi þar sem ég er alltaf að æfa mig að hlaupa Kenyastæl...... LoL Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna og ég lét að sjálfsögðu eins og þau væru öll ætluð mér.

Ofsalega gaman að hlaupa þetta. Hlaupaleiðin stórskemmtileg, hlaupið meðfram sjónum á Nesinu og stemmningin var hreint ótrúleg. Íbúar á Nesinu voru flestallir úti að hvetja hlaupara. Á einum stað var heil fjölskylda úti á tröppum með tóm kökubox og sleifar, á öðrum stað var fjölskyldan úti að borða morgunmatinn og stóð svo upp og spilaði lag á gítar og söng hvatningarsöng á meðan hlaupið var fram hjá.........

Ég er harðákveðin í því að taka þátt að ári. Enda 365 dagar í það LoL

Hinsvegar er ég með strengi í lærum í dag - en það er allt í lagi - þeir hverfa. Sofnaði snemma í gær og dreymdi að ég væri að hlaupa út í Hveragerði undan mannræningjum. Kannski ekki skrýtið að ég sé með harðsperrur í dag?

Glitnir á hrós skilið fyrir að standa að þessu hlaupi. Vel skipulagt á allan hátt!!

Eftir hlaup fórum við heim til Eyfa og Elizabethar sem eldaði stórgott pasta með túnfiski. Namm það var svo gott. Fórum svo í bæinn og nutum menningarinnar í sólinni. Keyptum okkur kaffi og vöfflur með rjóma í Lækjargötu, ómissandi þáttur í hverri menningu.....LoL

Kissing Vona að allir hafi það gott í dag


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Vá hljópstu 10 kílómetra þú átt sannarlega medalíu skilið ansk ertu dugleg. Það er mjög gaman að heyra þetta.

Kristín Katla Árnadóttir, 19.8.2007 kl. 16:12

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vá hvað þú hefur efni á að njóta lífsins Hrönnsla mín.  Vertu róleg bara, 365 dagar eru fljótir að líða.  Það eru t.d., bara 127 dagar til jóla.  Muhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.8.2007 kl. 17:58

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Ég ætti kannski að stefna á að hlaupa með þér að ári.  Þú ert dugnaðarforkur.  Ég hef sko aldrei hlaupið meira en 5 km...

SigrúnSveitó, 19.8.2007 kl. 18:21

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

uff þvílíkur dugnaður

Marta B Helgadóttir, 19.8.2007 kl. 21:25

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

dugnaðurinn!! ég hefði kannski náð 1 km!!

Huld S. Ringsted, 19.8.2007 kl. 21:44

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

iss... ég vissi alltaf að þú yrðir langflottust...og auðvita var verið að fagna Selfossdömunni.....þessi frá Kenya hefur bara haldið að fagnið væri fyrir hann...

Fanney Björg Karlsdóttir, 19.8.2007 kl. 22:17

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk stelpur mínar.....

Hrönn Sigurðardóttir, 19.8.2007 kl. 22:30

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fanney! Hann ætti kannski að fara að æfa sig að hlaupa Selfossstæle?

Mér var allavega sagt að ég hefði verið mjög einbeitt.......

híhíhíhíhíhíhíhíhí

Hrönn Sigurðardóttir, 19.8.2007 kl. 22:31

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ehhh þau voru að fagna klippingunni þinni ekki hans. Ertu ekki örugglega að tala um þennan sköllótta?

Bara æðislega flott hjá þér kona......Tek ofa fyrir þér þó að í ljós komi illa klipptur og tilhafður kollur. Kæri mig kollótta. Til hamingju!!!! Hefði aldrei getað þetta sjálf.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.8.2007 kl. 00:06

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hrönn, ég vissi að þú myndir ekki bregðast....Upgrade your email with 1000's of cool animations
Upgrade Your Email - Click here!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.8.2007 kl. 00:52

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Vá. þvílík harka. kannski tek ég þig mér til fyrirmyndar að ári. Enda ætla ég að vera í besta formi lífs míns frá og með árinu sem ég verð fertug.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.8.2007 kl. 01:37

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sæl. Mig vantar að fá sendan frá þér bókartitil vegna leshringsins. Kveðja, Marta

Marta B Helgadóttir, 20.8.2007 kl. 12:02

13 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

VÁ rosalega flott, þú ert kvennasómi !

AlheimsLjós til þín 

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.8.2007 kl. 08:39

14 Smámynd: Hugarfluga

Þú ert "nottla" bara schnillingur, Hrönn. 

Hugarfluga, 22.8.2007 kl. 10:42

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ertu ekkert að jafna þig Hrönnslan mín eftir hlaupið???

SAKN SAKN

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.