Á morgun kemur nýr dagur!!!

27 Þessi mynd er tekin af mér í morgun þar sem ég stend vansvefta, úrill og utan við mig.....

....svaf tvo tíma í nótt. Nóttin hófst á því að ég byrjaði að lesa afspyrnuleiðinlega bók, það dugði nú aldeilis ekki til að mig syfjaði, þannig að ég lá og bylti mér í tvo tíma, fór þá fram og fékk mér rauðvínsdreitil til að ná fram minni innri ró, drakk hann og horfði út um eldhúsgluggann minn á leikhús lífsins - þar er alltaf eitthvað að ske. Sá til dæmis lögregluna að störfum....... Fór síðan aftur upp í rúm þegar ég fann að yfir mig hvolfdist þreytan og steinsofnaði.... í heilar þrjátíu mínútur, þá datt geðsjúklingi úr Hveragerði í hug að upplagt væri að sópa bílaplanið hjá Bónus á Selfossi með þar til gerðri græju og tilheyrandi hávaða!!!!! Sem ég hrökk upp og fátaði í geðvonzkukasti eftir símanum til að hringja í laganna verði og láta þá fjarlægja manninn OG græjuna helst til frambúðar, datt mér í hug að réttara væri kannski að hringja í Bónus í fyrramálið og byrja á því að tilsegja manninn þar. Þetta er nefnilega ekki í fyrsta, ekki í annað og ekki í þriðja sinn sem hann gerir þetta!

Veit ekki hvort hann á eitthvað óuppgert við Selfyssinga yfirleitt, nú var alltaf talsverður rígur á milli þessara bæjarfélaga í gamla daga, kannski stal einhver frá Selfossi kærustunni hans? Kannski hló ég hæðnislega upp í opið geðið á honum þegar hann var að stíga í vænginn við mig í denn? Hver veit.......????

Allavega ef Jóhannes í Bónus les þetta þá skuldar hann mér þrjá mánuði í matarinnkaupum!!!

Ætla snemma að sofa í kvöld, þó fjögurra tíma svefn, í nótt, myndi nægja til að ég vakni stálslegin og útsofin - kem ábyggilega til með að sitja og prjóna fram yfir miðnætti og hugsa til danans sem sagði við okkur systur í gamla daga þegar við heimsóttum danaveldi með ærslum og óhljóðum og var boðið í teiti klukkan fimm um morguninn: "Þið getið sofið þegar þið eruð orðnar gamlar"

Eint óld jett!!

26


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er enn að bíða eftir að geta sofið mig yfir móðuna miklu.  En ég er enn of ung, of ung.  Dæs.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.6.2007 kl. 20:17

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ohhhh ég hlakka svo til þegar ég verð gömul og ljót og get farið að sofa

hahahahahahaha

Hrönn Sigurðardóttir, 4.6.2007 kl. 20:20

3 Smámynd: Hugarfluga

Ég eeeelska að sofa, en get yfirleitt ekki sofið þegar ég á að sofa. Vakna fimm sinnum á nóttu við allt og ekkert og svo ... bílíf jú mí ... 15 mínútum áður en klukkan hringir þá sofna ég fastar en Þyrnirós svaf í heila öld og veit hvorki í þennan heim né annan af þreytu. Grrrr....

Hugarfluga, 4.6.2007 kl. 20:42

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

óþolandi.......

Hrönn Sigurðardóttir, 4.6.2007 kl. 21:01

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eftir því sem maður eldist meira, því minni svefn þarf maður.  Eða þannig er það hjá mér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.6.2007 kl. 10:10

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sko..eftir því semmaður eldist framleiðir heilinn minna af efninu melantonin...en það er efnið sem lætur mann sofa..svo allir draumar um meiri og betri svefn í ellinni eru bara það..draumar!!!! Svo ég myndi nú sogfa eins mikið oig hægt er maðan heilinn er að framleiða þetta efni..svo fer bara allt í óefni get ég sagt þér mín kæra.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 5.6.2007 kl. 16:25

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Jááááááá - hefðir átt að sjá mig aaaaaðeins fyrr.....

Hrönn Sigurðardóttir, 6.6.2007 kl. 11:37

8 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Já áður en þú tókst hringinn á baðinu Hrönn?

Kveðja:

Sigfús Sigurþórsson., 6.6.2007 kl. 15:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.