Sólarsamba.......

Fór í morgun og skokkaði stóran hálfhring - .......og til baka með Stúf Stubbalings í broddi fylkingar. Enda ekki seinna vænna að fara að æfa sig ef ég ætla að taka þátt í kvennahlaupinu á laugardaginn - skelþunn. Hef þó þann fyrirvara á þátttöku minni í ár að ef ástandið verður ekki uppá marga fiska þá víkur hollustan fyrir glaumi og gleði. En eins og þið vitið þá er hvorlki heilbrigt né skemmtilegt að skokka..........Tounge

Ég sá marga sæta stráka og það sem meira var - þeir sáu mig......... Þeir eru núna heima að blogga um það Sideways

Gleðilega þjóðhátíð 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Ég er viss um þeir eru heima að blogga um þig akkúrat núna á meðan ég ýminda mér atburði morgundagsins.

Sendi þér ljúfar þjóðarkveðjur, vonandi lendir þú í góðu vöfflukaffi ...

www.zordis.com, 17.6.2009 kl. 14:17

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gleðilega þjóðhátíð duglega og skemmtilega kona

Sigrún Jónsdóttir, 17.6.2009 kl. 14:23

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gleðilega þjóðhátíð addna kelling.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2009 kl. 17:12

4 Smámynd: Vilma Kristín

Vissi það! Það er sko ekki heilbrigt og alls ekki skemmtilegt að skokka.. ég er alltaf að reyna að segja fólki þetta

Vilma Kristín , 17.6.2009 kl. 18:46

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gleðilega hátíð elskuleg

Marta B Helgadóttir, 17.6.2009 kl. 21:57

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Snýzt þetta kvennaskokkerí ekki aðalega um að eta zúkkulaði & hlaupa í zpik ?

Steingrímur Helgason, 18.6.2009 kl. 00:14

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú ert frábær

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2009 kl. 08:42

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

"Þeir eru núna heima að blogga um það"   

Þú ert mesti húmoristinn á mbl.,  grínlaust. 

Anna Einarsdóttir, 18.6.2009 kl. 09:19

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ekki spurning Anna Einars er með þetta!!! 

Ía Jóhannsdóttir, 18.6.2009 kl. 13:03

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég er kall.

Ég kom frá Stokkseyrarbakka og ók löturhægt þarna í gegn 15 hundruð.

Ég sá öngvar stelpur á skokkinu.

Já, ég.........

Þröstur Unnar, 18.6.2009 kl. 14:55

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Zordis - hugsanlega blogga ég um atburðina ellegar fallegir strákar gera það 

Steingrímur - jú hjá sumum, hjá öðrum snýst þetta um bleika skó.

Þröstur - ég skokka afsíðis...... svo ertu heldur ekkert að blogga um að þú hafir séð sæta stelpu á skokkinu......

Ía og Anna - Gracias ;)

Marta, Jenný og Sigrún -

Hrönn Sigurðardóttir, 18.6.2009 kl. 15:43

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Djammaðu bara villt og galið. Það verður aftur kvennahlaup á næsta ári svo þú missir eiginlega ekki af neinu.

Helga Magnúsdóttir, 18.6.2009 kl. 17:39

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góður punktur Helga.

Hrönn Sigurðardóttir, 18.6.2009 kl. 18:47

14 Smámynd: Garún

Ég komst aðþví fyrir 12 árum sambandi við sjálfan mig að mér finnst leiðinlegt að hlaupa nema ef ég sé að elta eitthvað!  Til að afgreiða samt líkamleguþörfina fyrir skokk eða hlaup hefur mér reiknast til að með því að setja 2 kíló af hrísgrjónapokum um hvorn ökklann meðan ég skúra neðri hæðina er svipað og að hlaupa 5 kílómetra.  Mæli með þessu.  p.s reyndar sprakk annar pokinn um daginn og þá var eins og ég færi auka 4 km þegar ég ryksugaði yfir skúringarnar! 

Garún, 18.6.2009 kl. 22:08

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

híhíhí. Ég er fegin að heyra að (ó)hollustan mun vera víkjandi í dæminu x = glaumur & gleði + hollusta = Y x fyllerí = X

Jóna Á. Gísladóttir, 18.6.2009 kl. 23:29

16 Smámynd: Dúa

Tek ekki þátt í svona kellingahlaupum.....sérstaklega af því að bolurinn í ár harmonerar ekki við húðlit minn

Dúa, 19.6.2009 kl. 22:53

17 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.6.2009 kl. 08:56

18 Smámynd: Garún

Ég hljóp í morgun!  Tók mitt eigið kvennahlaup undan 3mm kónguló!  Shitt. og er að  drepast úr harðsperrum.  Hreyfi mig núna ekki í viku!

Garún, 20.6.2009 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband