Í dag var vor...

...og ég fór í langan göngutúr með Stúf Stubbalings. Ég áttaði mig náttúrulega ekki á því að það væri vor fyrr en umb. 30 mín. eftir að ég lagði af stað - klædd eins og vetur.......

Ég var svo að tína af mér vettlinga, húfu, úlpu, hálsaskjól og ég sver það - ef ég hefði verið í bol innan undir peysunni þá hefði ég farið úr henni líka. Ég spáði alvarlega í það að fleygja mér í tjörnina á eftir Ljónshjartanu þegar hann öslaði þar yfir og fékk sér vel að drekka í leiðinni! En svo áttaði ég mig á því að hafmeyjur láta náttúrulega ekki sjá sig í tjörnum Tounge Það er erfitt að vera svartur hundur í hita - skárra er þó að vera föl tík!

Það stóð svo heima þegar ég var rétt nýlent kom rúmið sem ég fjárfesti í um helgina. Mömmusinnardúlludúskur var vitanlega fenginn til að setja það saman og nú liggur dýnan sem er made by NASA og var ca. 2 cm. á þykkt þegar hún var tekin upp og blæs út! Þetta endar með því, ef hún fer ekki að slá af, að ég þarf stiga til að komast upp í rúm! Þá fleygi ég mér ekki undir rúm heldur upp í loft W00t Ég er líka harðákveðin í því að lengja svefntíma minn úr átta tímum í tíu - nú, þegar, strax!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilma Kristín

en spennandi... þú verður að segja frá hvað þig dreymir fyrstu nóttina í nýja rúminu!

Vilma Kristín , 7.4.2009 kl. 22:03

2 Smámynd: Dísa Dóra

Til lukku með nýja húsgagnir og láttu okkur svo vita hvernig er að vera hætt að sofa undir rúmi

Dísa Dóra, 7.4.2009 kl. 22:12

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

NASA?....þú svífur þá kannski til karlsins í tunglinu í draumi  Til lukku með með nýja "völlinn"

Sigrún Jónsdóttir, 7.4.2009 kl. 22:23

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hálsaskjól?

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.4.2009 kl. 22:53

5 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Næst ferðu bara í bikini, og hefur með þér föt í bakpoka. - Það verður spennandi að vita hvernig þér finnst að sofa svona uppundir lofti.  Ég tala nú ekki um ef þú ert lofthrædd, sem þú ert náttúrulega ekki.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 7.4.2009 kl. 22:56

6 Smámynd: Ragnheiður

Þú ert sjálf yndi

Ragnheiður , 7.4.2009 kl. 23:40

7 Smámynd: www.zordis.com

Svona prinsessu syndrom ... vonandi setur þú ekki baun undir rúmm því þá sjá allir hinir að þú ert prinsý.

Vor í hjarta og vor í skinni, það á líka við um skagann minn ... Ætla doppa mig niður og segi til lukku með beddann þinn.

www.zordis.com, 8.4.2009 kl. 06:51

8 Smámynd: Auður Proppé

Þú verður að fá þér svona blæjutjald yfir nýja rúmið og vera eins og prinsessan á bauninni.  Kominn snjór aftur í dag svo klæddu þig nú vel.

Auður Proppé, 8.4.2009 kl. 07:13

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Dreymdi ekki neitt sem ég man eftir. Soldill svona hótelfílingur! Eða Nasa fílíngur :)

Hálsaskjól - kemur í staðinn fyrir trefil - heilt stykki sem ég smeygi yfir hausinn niður á háls.......

Lilja! Góð hugmynd!

Takk Ragga

Zordis ég reyni að halda þessu leyndu....

Geri það Auður!

Hrönn Sigurðardóttir, 8.4.2009 kl. 08:35

10 identicon

Sundballet með Stúf stúf stubbalings, nakin í tjörninni.Er tjörnin nokkuð rétt hjá sýslumanninum?það kostar nefnilega 10.000 að leifa hálfri pullu á Selfossi svo það gæti verið að þú yrðir sektuð.Nema þú sannfærir sýsla um að þetta sé list.Ég gæti svo sem sent þér smart sundbol

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 09:37

11 Smámynd: Einar Indriðason

Hmm... sko... ef þú notar "hvíta" sundbolinn.... þá ertu ... tæknilega séð ... ekki nakin.... (þó svo að hann verði pínulítið glær við snertingu við vatn...)

Einar Indriðason, 8.4.2009 kl. 10:52

12 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Það er sko alveg spurning hvort við drekkum ekki kaffið í rúminu næst þegar ég kíki í heimsókn....

Fanney Björg Karlsdóttir, 8.4.2009 kl. 11:33

13 Smámynd: Sigurður Ingi Jóhannsson

Er ekki vorið besti árstíminn? Keyrði austur um allar sveitir í fyrradag - allaleið austur á Höfn. Sá þar bæði hreindýr hlaupa yfir veginn og stökkva yfir girðingar og stuttu síðar nokkrar lóur fljúga yfir bílinn. 

Svolítið eins og veðrið, vor í gær - alhvít jörð í morgun. En vorið kemur :-) 

Sigurður Ingi Jóhannsson, 8.4.2009 kl. 11:50

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vorið ER tíminn Ingi! Ekki spurning :)

Ég veit Birna Dís. Það þarf að fara soldið varlega í kringum sýslumannsstúfinn :Þ

Einar! Ég fæ þig til að segja sýsla sögur á meðan!

Fanney! Ertu klikk?? Veistu hvað mublan kostaði?? Ég á ekki orð.... kaffi í rúmið....

Hrönn Sigurðardóttir, 8.4.2009 kl. 12:25

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hafna þessu rúmi ef þú getur ekki sofið undir því.

Skila.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.4.2009 kl. 12:42

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú drepur mig kjélling.

Fljúgandi Jakob með stílbragði

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.4.2009 kl. 12:43

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég vissi að það kæmi að því að einhver sæi djókið!

Hrönn Sigurðardóttir, 8.4.2009 kl. 13:55

18 Smámynd: Þröstur Unnar

Botna ekkert í þessari færslu.

Þröstur Unnar, 8.4.2009 kl. 15:35

19 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með rúmið, svo ertu að drepa mig af hlátri.

Svo hefur þú svo ansk góðan húmor.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.4.2009 kl. 16:39

20 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk Katla mín ;)

Það er allt í lagi Þröstur. Það er ekki öllum gefið að skilja mig.

Hrönn Sigurðardóttir, 8.4.2009 kl. 16:41

21 Smámynd: Einar Indriðason

"kæri sýsli... núna þegar Hrönn hafmeyja hefur ákveðið að ástunda sína reglubundnu hafmeyjutakta.... þá skal það sérlega tekið fram, að tæknilega, þá er hún fullklædd, þó annað virðist vera upp á borðinu.  hmm... undir yfirborðinu?  hmm...  Sjón er sögu ríkari?  Hmm.... Jú, sko, sjáðu til, þetta er nefnilega klæðnaður úr sérlega vatnsvörðu efni... efni þetta er þeim eiginleikum gætt að það hrindir frá sér vatni, en breytir um lit meðan vatn er nálægt.  Færustu efnafræðingar DuPont verksmiðjanna á Kópaskeri eyddu mörgum árum í ítarlegar rannsóknir á þessu efni, áður en talið var óhætt að hleypa því út til neyt-anda.  Nei, Hrönn er ekki önd, ef þú skyldir hafa haldið það.  Bara til að taka það sérlega fram.  Efni þetta þarf að meðhöndla sérstaklega, og þá smýgur það ... hmm... rennur?   ... hmm... siglir? .... hmm... þýtur.... Ah, já... Þýtur það í gegnum vatnið á tvöföldum hljóðhraða.... Þess vegna koma bylgjur, sko, þegar synt er í þessu efni... Það er jú hljóðið að fara í gegnum hljóðmúrinn í vatninu......  Ekki sofna, ég er rétt að byrja að segja þér smá sögu..... "

Einar Indriðason, 9.4.2009 kl. 08:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband