Ég er líklega spaði

Hef doktorinn sem ég heimsótti í dag grunaðan um að hafa ávísað fjörpillum í stað bakteríudrepandi óþverra! Nema að raunin sé sú að þær stígi villtan dans - bakteríurnar við sýklalyfin Pinch Hvað varð um gömlu góðu róandi mixtúruna Efedrín með efedryl eða hvað hún nú hét?

Búin að liggja núna í þrjá tíma í rúminu og reyna að hafa upp á Óla Lokbrá en ekkert gengur. Ég er búin að lesa olmóst eina bók - og af einskærum kvikindisskap ætla ég ekki að segja þér Jenný, hvaða bók það er W00t Og bæ þe vei - hverjum datt sú vitleysa í hug að það að telja kindur svæfði nokkurn mann? Ég verð bara pirruð - ruglast í talningunni og þarf að byrja upp á nýtt!

Sit núna og tel niður stundirnar þar til ég á að vera mætt í vinnu. Þeim fækkar óðfluga.

Horfi út um gluggann á fánana hjá Lyfju feykjast í myrkum vindinum og skímu ljósastauranna speglast í blautri götunni. Einn og einn bíll keyrir hjá. Hvert er fólk að fara þegar klukkan er langt gengin í þrjú að nóttu til og meira að segja mávarnir sofa?

Hana - þar flykkjast vöruflutningabílarnir hjá! Það þýðir að enn fækkar þeim stundum þar til ég á að vakna. Ég verð laglega syfjuð á morgun!

Obbobbobb þarna sé ég skuggalega leðurklædda menn læðast að Esso!! Eru það ekki fordómar að ætla að þótt þrír leðurklæddir menn séu að paufast í myrkrinu, að ætla að þeir séu af erlendu bergi brotnir og hafi eitthvað misjafnt í huga? Hugsanlega eru þeir íslenzkir andvaka spaðar! Rétt eins og ég...... Enda.... þótt ég myndi hringja í lögguna, með öndina í hálsinum ekki af æsingi þó heldur kokkum......... Þá fengi ég bara hið staðlaða svar: "Það er enginn bíll inni......" Svo heitir þessi benzínstöð ekki Esso lengur...... Hún heitir N1 W00t

Já, það skeður ýmislegt á meðan laufin sofa.......... Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Úff Hrönnsla.  Þú ert fársjúk. 

Þetta með að telja kindur er svo athyglisvert.  Ef maður svo ruglast ekki og nær að telja þær allar...... hvað á maður þá að gera við upplýsingarnar ? 

Hringja í Bændahöllina og segja;  "þær voru sjöhundruðfimmtíuogþrjár" ?? 

Anna Einarsdóttir, 22.7.2008 kl. 08:40

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það var sofið hér í vesturbænum, ég svaf frá 2 - 7 og var ekkert smá lukkuleg með það.  Vona að heilsan fari að kíkja við hjá þér, helv. kokkar að angra þig, það væri gaman að fá lifandi (matar)kokk til afnota í nokkrar vikur.  Knús á þig stelpa

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 10:28

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hvað ertu að rífa þig í vinnu kona góð?  Farðu vel með þig

Sigrún Jónsdóttir, 22.7.2008 kl. 12:36

4 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Þú verður að láta þér batna.

Ert oft súrealísk í skrifum og þrælskemmtilegur penni í þínum pælingum.  

Marinó Már Marinósson, 22.7.2008 kl. 14:11

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já þú verður að láta þér batna og ekki að vinna svona lasin, knús kokka kerling mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.7.2008 kl. 15:09

6 Smámynd: Brynja skordal

Bannað að vinna meða kokkar grassera farðu vel með þig hvað náðiru mörgum kindum áður en þú sofnaðir

Brynja skordal, 22.7.2008 kl. 15:22

7 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband