Brennur og bananar

Ég sá að það hafði kviknað í Turninum. Nú eru mínir menn búnir að vera í marga mánuði að sjóða, smíða, mæla og sjóða meira......... Loksins var allt að verða búið - það skal tekið fram að allir mínir menn kunna að fara með eld. Jafnvel þó þeir séu af erlendu bergi brotnir og tali "óskiljanlegt tungumál" Pinch Eða kannski vegna þess Tounge

Ég held að ég sé harðsperruauli Tounge Þannig að ef þið voruð að leita að þeim aula þá er hann fundinn. Fór í leikfimi í morgun og er að verða eins og spýtukall. 

Ætla að úða í mig banana.

Hó hó nú nötraði húsið - hér keyrði bíll framhjá fullur af gasi. Hélt ekki að gas væri svona þungt? Hver er eðlismassi gass?

lovInLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eðlismassin er 458697840958668 honní.  Einhverju nær?  Býrðu á gasakri?  Allt rækta þeir í Þvagleggnum.  Hefurðu eitthvað heyrt af spaghettiuppskerulíkunum í ár?  Vá langt orð, en jess hvað ég er glöð yfir að þú ert til addna

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.4.2008 kl. 10:42

2 identicon

Daginn.Gott að þitt fólk kann að fara með eld hehehehehe.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 10:45

3 Smámynd: Brynja skordal

 Hafðu ljúfan dag

Brynja skordal, 10.4.2008 kl. 11:14

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þú rösk að skella þér í leikfimi. Keypti árskort í janúar og hef farið einu sinni

Helga Magnúsdóttir, 10.4.2008 kl. 12:33

5 Smámynd: www.zordis.com

Nú langar mig í banana .... var að koma heim, þreytt og Fjallið að elda svo ég ætla að slaka og chilla á meðan hann dekrar við kjéddlinguna!

www.zordis.com, 10.4.2008 kl. 12:36

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góðan daginn Keflavík

Jenný....ertu viss?

Segður Birna..

Takk sömuleiðis Brynja

Hallgerður! það er ekki mikið..... og þarf að líða laaaaaangt á milli... svarar þetta einhverju?

Takk Helga

Þórdís! Vaxa þeir ekki á trjánum hjá þér?

Hrönn Sigurðardóttir, 10.4.2008 kl. 13:11

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha Hrönn  Knús á þig inn í daginn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.4.2008 kl. 14:17

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hafðu það gott.

Kristín Katla Árnadóttir, 10.4.2008 kl. 17:28

9 Smámynd: Rebbý

þeir eru engu verri þessir sem tala ókunnug tungumál  á fullt af svoleiðis strákum sjálf    engar gáfur að finna svo hér svo ég get ekki sagt þér um eðlismassann

Rebbý, 10.4.2008 kl. 17:34

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Úfff ég á árskort í leikfimi sem er í þann mund að renna út. Það er ekki prenthæft hve sjaldan ég hef mætt.

Marta B Helgadóttir, 10.4.2008 kl. 18:24

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Sniðug ertu.  Notar banana gegn harðsperrum. 

Anna Einarsdóttir, 10.4.2008 kl. 20:38

12 Smámynd: Brattur

... eðlismassi gass er það mikill að ef ég er grobbinn út af einhverju afreka minna og fullur af gasi eins og sagt er, þá vigta ég 15 kg. léttari en í venjulegu ástandi...

Brattur, 10.4.2008 kl. 22:18

13 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Naut þessa að lesa pistilinn þinn eins og venjulega. Ætlaði annars bara að kvitta fyrir innlitið.

Steingerður Steinarsdóttir, 11.4.2008 kl. 10:04

14 Smámynd: Solla Guðjóns

Veit nú ekki alveg um eðlisþyngd gass en það getur allavega verið þungt í maga...

Solla Guðjóns, 11.4.2008 kl. 10:18

15 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu ljúfa og góða helgi mín kæra

Brynja skordal, 11.4.2008 kl. 10:38

16 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég dáist allveg af leikfimis-seiglunni í þér.... ég er búin að vera að spá í að kaupa mér kort í líkamsrækt á Selfossi...... en hef lítið gert annað en að spá....... hvar kaupir maður sér kort á Selfossi........

Knús á þig dúllan......

Fanney Björg Karlsdóttir, 11.4.2008 kl. 20:43

17 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Helgarknús til þín

Marta B Helgadóttir, 12.4.2008 kl. 21:59

18 Smámynd: Hugarfluga

Hugarfluga, 12.4.2008 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband