Brrrrrr.....

....hvað mér er kalt Pinch

Ég fleygði mér nú bara hreinlega undir rúm í smástund eftir vinnu til að ná yl í kroppinn. 

Ég grenjaði blómavönd út úr pabba í gær InLove Sagði honum, með grátstafinn í kverkunum, að engum þætti vænt um mig....... Held hann hafi nú ekki alveg keypt það en vöndinn fékk ég. Afskaplega  fallegan Tounge 

Ljónshjartað var latur í morgun, hann hafði nefnilega fengið aukahring með mömmusinnardúlludúsk í gærkvöldi á meðan ég skaust í bæinn með pabba. Ótrúlegt veður á Heiðinni í gær. Ég keyrði heim í ellefu stiga frosti og svarta þoku!! Mjög ruglingslegt veður.

Nú bíð ég eftir að uppáhaldsþátturinn byrji í sjónvarpinu. Criminal Minds - ég held ég sé afar efnilegur viður í glæpamann sbr. prófið á síðunni hjá Dísu Dóru um konuna í jarðarförinni. Ég veit allavega að ég kem til með að átta mig á því hver Dísa Dóra er ef ég mæti henni á götu - hún verður konan sem drífur sig yfir á hina gangstéttina LoL Eina svarið sem mér datt í hug sem lausn við gátunni var það sem hverjum öðrum serialkiller hefði dottið í hug...... Það gekk meira að segja svo langt um daginn að ég stakk upp á því við son minn að öll okkar samskipti færu fram á hotmail skilaboðum sem aldrei yrðu send - aðeins lesin..........Tounge Gvöð ég held ég verði bilaðri með hverjum deginum sem líður..... Hvernig verð ég um sextugt?

Vindurinn hvín og blæs - ég var að horfa á Dýrin í Hálsaskógi í gær, með "hinum börnunum...." Þau kepptust við að útskýra fyrir mér á meðan ég prjónaði og hlustaði með öðru eyranu á sjónvarpið að Mikki refur kæmist ekkert út úr sjónvarpinu, því ég sagði, í hvert sinn sem hann birtist á skjánum: "ÓNEI - þarna ER hann....." Meira þurfti ekki Wink 

Var ég búin að segja ykkur að það mest skemmtilegasta sem ég geri er að hræða börn og það næst skemmtilegasta er að ljúga þau full? Dúa hvenær ætlarðu að koma með Völu? LoL

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Þú ert þessi seríal típa!  Pabbi þinn, strákgreyið hefur ekki þorað annað en að splæsa vendi (smá ást líka) .....  Auðvitað mikil ást! 

Ég hefði kosið að fara undir sæng en þú undir rúmm, ekki hissa á burrinu í þér

www.zordis.com, 25.2.2008 kl. 20:34

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Veistu hvað það er erfitt að komast undir rúm hjá mér Þórdís?

Verði þér að Góu Adda dís

Hrönn Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 20:40

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Þú ert dásamlega rugluð elskan...ég kíkti hjá Dísu Dóru í gær og ég er ekki nærri eins mikill krimmi og þú þó var ég með þokkalega svívirðilega úrlausn.....

Solla Guðjóns, 25.2.2008 kl. 20:47

4 Smámynd: www.zordis.com

Þegar ég kem í heimsókn til þín, með gamla Inghólsfílinginn, 80´s klippingu í gulri skyrtu grátbið þig að leyfa mér að fara á klóið þá sennilega villist ég og reyni að troða mér undir rúmm hjá þér!

Alltaf svo gott að viðra staðreyndir! 

Svo verður það tvöfaldur brennivín í pepsí um  kvöldið ef Inghóll lifir

www.zordis.com, 25.2.2008 kl. 20:54

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Segi eins og Ollasak, þú ert dásamlega rugluð, þess vegna les ég bloggið þitt þú verður flottust um sextugt, hræðandi og ljúgandi í börnin og skríðandi undir rúm (geturðu tekið mynd af því einhverntímann??)

Bæææææææ ég fer alltaf skellihlæjandi af síðunni þinni

Huld S. Ringsted, 25.2.2008 kl. 20:55

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þeink jú - æ þeink

Þórdís! Við höldum bara Inghólsteiti þegar þú kemur en þú rétt ræður hvort þú mígur undir rúmi hjá mér...... Gvöð hvað ég er hneyksluð

Hrönn Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 21:03

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi þú er dásamleg Hrönn mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 25.2.2008 kl. 21:05

8 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Iss tekur því eitthvað núna að vera að spá í hvernig þú verðir eftir 35 ár? Ég bara spyr

Markús frá Djúpalæk, 25.2.2008 kl. 21:29

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú ert nú ekki sem verst sjálf Katla litla

Markús! Ertu að segja að ég sé barnaleg?? Misvísandi? Ég er líka ennþá ringluð eftir veðrið á Heiðinni.......

Hrönn Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 22:18

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Býrðu á Selfossi eða einhver staðar þar í grenndinni

Að vera dásamlega rugluð er MIKIÐ HRÓS FRÁ MÉR

Solla Guðjóns, 25.2.2008 kl. 22:33

11 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Markús frá Djúpalæk, 25.2.2008 kl. 22:33

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

já ég bý á Selfossi og ég tók því sem hrósi

Hrönn Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 22:36

13 Smámynd: Solla Guðjóns

ég bý í Þorlákshöfn

Solla Guðjóns, 25.2.2008 kl. 22:40

14 Smámynd: Dísa Dóra

hahahaha Hrönn það er nú ekki vísst að ég verði þessi sem flýr yfir á hina gangstéttina.  Sennilegra að ég verði sú sem stend frosin og veit ekki hvað ég á að gera.  Hlaupa yfir á hina gangstéttina eða hlaupa til þín og knúsa þig fyrir hve dásamlega rugluð þú ert   Svo sennilegast yrði niðurstaðan að ég stend frosin og veit ekkert hvað ég á að gera

Dísa Dóra, 26.2.2008 kl. 09:48

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég þori nú ekki að kynna þig fyrir manninum mínum Hrönn mín  En hann er svona eins og þú, hefur gaman af að hræða börn.  (segir það sjálfur allavega )

Þú verður flott um sextugt, ég var álíka rugluð og þú hér á árum áður, en hef bæði versnað og skánað.  Það er nefnilega hægt, ég hef lært margt um mannleg samskipti og skilið loksins að maður verður að hlú að vináttunni til að halda henni, hins vegar hef ég versnað með skringilegheitin og skammast mín ekkert fyrir það. 

Sammála þeim hinum, þvílíkur penni sem þú ert stelpa. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2008 kl. 11:57

16 Smámynd: Hugarfluga

Þú ert skondin skrúfa, Hrönnslupönnsla.

Hugarfluga, 26.2.2008 kl. 18:47

17 Smámynd: Marta B Helgadóttir

ha hahaha þú ert engri lík Hrönnslan

Marta B Helgadóttir, 26.2.2008 kl. 20:07

18 Smámynd: www.zordis.com

Lofa að halda í mér  en er byrjuð í ræktinni til að komast undir beddann, sko!  Alveeeeeg satt!

www.zordis.com, 26.2.2008 kl. 21:26

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrikalega góð hugmynd Svana - hrikalega góð En þú veist hvað það að fleygja sér, þýðir á færeysku?

Dúa Drífa sig!

Dísa Dóra - þér er hérmeð gefi leyfi fyrir litlu knúsi - en bara litlu!

Hallgerður! Það er verið að opna deild á Vogi..... H - deildina

Cesil, Fluva, Marta, Ollasak

Hrönn Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 21:28

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vá hvað þessi er skemmtileg í morgunsárið.  Jösses i himmelen hvað ég er búin að sakna þín vúman og barnaskelfir.  Þú ert eins og lilla Hegga hans Þórbergs, hefur gaman af því að ljúga, þ.e. þú að börnum, lilla Hegga að Sobeggi afa.

Elska þig hreint og klárlega.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.2.2008 kl. 08:51

21 Smámynd: Dísa Dóra

Ég styð kaffihitting bloggkellinga á Selfossi

Dísa Dóra, 27.2.2008 kl. 11:01

22 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þú ert bara svo skemmtileg kona !!!

það er alltaf gaman að lesa færslurnar þínr, þú breytir öllu í eitthvað skemmtilegt sem er svo mikilvægt að geta !!

Bless í daginn kæra kona

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 11:51

23 identicon

 

Ég lýg líka að börnum.Börn systra minna voru mín fórnarlömb og þau trúa ennþá öllu sem ég segi við þau.Eða þau leifa mér að halda það alla veganna.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 15:01

24 Smámynd: Hugarfluga

Notarðu msn, Hrönnslan mín?

Hugarfluga, 27.2.2008 kl. 23:01

25 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

já fluvan mín. Ég er búin að adda þér - held ég......

Jamm Birna Dís. Það ER gaman

Takk Steina

Jenný! Have I told you lately that I love you?

Hrönn Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 23:29

26 Smámynd: Hugarfluga

Nei, Hrönn .... sko. Ég er september70@hotmail.com á msn.  Þýðir ekkert að klæmast við Hugarflugunetfangið.

Hugarfluga, 27.2.2008 kl. 23:38

27 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ó! Þá verður einhver fluga rosalega hissa í fyrramálið þegar hún er allt í einu orðinn innsti koppur í búri

Hrönn Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband