Rigning og rauður varalitur!

Það rigndi eins og hellt væri úr fötu, þegar ég renndi í bæinn í gær. Sem var svosem allt í lagi mín vegna. Ég var með nýjan rauðan varalit!!! Tounge 

Ég var með smá fiðring í maganum þegar ég gekk í salinn þar sem ég hitti nokkrar konur úr bloggheimum. Þetta var svona svolítið eins og blind date!! Það er skemmst frá því að segja að kvöldið lukkaðist rosalega vel. Miklu betur en ég átti von á..... Má segja svona?? Jú jú maður á alltaf að segja eins og manni finnst!! Stórkostlegar konur allar hreint. Það var talað út í eitt og hlegið út í annað. Við erum náttúrulega svo vanar að blogga og eiga alltaf orðið.... Wink

Það rigndi svo eins og hellt væri úr fötUM þegar ég renndi heim í nóttinni. Ég reif upp símann og hringdi í Austfirðinginn minn til að minna hann á að hann ætlaði að kaupa handa mér stígvél. Áttaði mig svo á því að allt venjulegt fólk er sofnað á þessum tíma sólarhrings og skellti á, sjálfsagt um það leyti sem hann hefur verið að ná símanum. Er það ekki alltaf þannig?? Hann hefur líklega staðið á hinum enda landsins og klórað sér í höfðinu..... eða ekki!!

Nú ætla ég hins vegar að setja á mig nýja rauða varalitinn,  bara smá - maður veit jú aldrei hvar sætu strákarnir eru fyrr en allt í einu, og arka út í búð. Það rignir eins og hellt sé úr fötu en það er allt í lagi.

Takk endnu og igen fyrir gott kvöld stelpur, hlakka til að hitta ykkur aftur.

óver and át InLove

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Gavöð hvað það hefur verið gaman hjá ykkur!! Sjáumst næst!

Hugarfluga, 15.11.2007 kl. 16:09

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta hefur verið gaman hjá ykkur. Alveg missti maður af þessu. Hvar var og hverjir voru?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.11.2007 kl. 17:11

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alltaf missir maður af svona hlutum vegna fjarlægðarinnar.  En mikið hefur verið gaman.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2007 kl. 17:31

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krútt! Öfund (út af varalit og að hafa ekki komist með). Mæti fyrst á svæðið næst.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.11.2007 kl. 18:16

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já þetta var gaman!!! Alltaf gaman að hitta fólk "læf" samskiptin verða svo allt, allt önnur! Eins og ég held ég hafi sagt í gær; þetta er eins og að lesa bókina og sjá svo myndina. Nema í þetta sinn varð ég ekki fyrir vonbrigðum með myndina.......

Hrönn Sigurðardóttir, 15.11.2007 kl. 19:09

6 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Þið ættuð að sjá varalitinn! Hann er geðveikur... og mér sýnist á öllu að ég þurfi að skreppa austur fyrir fjall að ná mér í eitt stykki! :)'

Takk fyrir kvöldið mín kæra.. í einu orði frábært!!  

Heiða B. Heiðars, 15.11.2007 kl. 19:17

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Reyni að spyrja aftur:

Hverjar

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.11.2007 kl. 21:38

8 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Taka þrjú:

Reyni að spyrja aftur: Hverjar hittust? Hvar hittust þær?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.11.2007 kl. 21:38

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Thorvaldsen Bar. Ingibjörg Gunnars, Katrín Snæhólm, Steingerður, Heiða - Skessa, Marta, Lísa Tryggva, Jóna og ég. Verðum vonandi fleiri næst

Hrönn Sigurðardóttir, 15.11.2007 kl. 22:06

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Fúlt að búa á Akureyri   og missa af svona skemmtilegu.

Get alveg trúað að það hafi verið gaman hjá ykkur. 

Huld S. Ringsted, 15.11.2007 kl. 22:45

11 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Svei mér..... það hefur verið rosa gaman hjá ykkur..... verð að sjá þennan margumtalaða varalit.......

Fanney Björg Karlsdóttir, 15.11.2007 kl. 22:58

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Var að senda þér póst, viltu láta mig vita hvort það fór í gegn.

Marta B Helgadóttir, 15.11.2007 kl. 23:09

13 Smámynd: Dísa Dóra

en hvað svona hittingur hljómar skemmtilegur.  Maður kannski fær að vera með seinna 

Dísa Dóra, 16.11.2007 kl. 10:50

14 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Nú leitum við logandi ljósi að BED HEAD varalit - á Reykjavíkursvæðinu!   Takk fyrir síðast - þar til næst!

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 16.11.2007 kl. 13:30

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nú - eða bara koma! Það er álíka langt "austur" eins og það er "suður" Undarlegt að tala svona í áttum. Ef ég færi suður þá endaði ég í eyjum - ef heppnin væri með mér

Hrönn Sigurðardóttir, 16.11.2007 kl. 15:33

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það skal ég gera!!

Hrönn Sigurðardóttir, 17.11.2007 kl. 23:49

17 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

takk mín kæra fyrir síðast. Svo sannarlega var það nákvæmlega þannig að kvöldið lukkaðist ótrúlega vel... betur en maður þorði að vona.

Jóna Á. Gísladóttir, 18.11.2007 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband