Enginn...

...dr. House í kvöld. Í mótmælaskyni er ég farin í rúmið með Ævari Erni Jósepssyni. Er að lesa Blóðberg Wink svona til að fyrirbyggja misskilning.

Þarf hvort sem er að vakna kl. 05:30 í fyrramálið...........ef ég tæki Pollýönnu á þetta - sem mér er meinilla við, því hún höndlaði ekki sín eigin vandamál, þótt henni þætti voða einfalt að ráða fram úr annarra manna bömmerum.

Hnuss!!! Það geta allir gert - með einari.............

Fór heim í hádeginu í dag, átti stefnumót við Labbakút! Kona, sem átti leið hjá þegar við fórum út að míga, sagði mér m.a. í óspurðum fréttum að þrílitir kettir væru alltaf læður og grábröndóttir kettir væru allaf fress..... Þetta vissi ég ekki, svona getur maður orðið margs fróðari bara við að míga úti. Mæli með því að þið prófið LoL

Góða nótt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gott hjá þér að fara bara að lesa kannski að maður prófi að fara út að míga.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.9.2007 kl. 21:54

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

jamm Katla, maður verður margs vísari.......

Hrönn Sigurðardóttir, 5.9.2007 kl. 22:01

3 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég er núna fyrst að kveikja á þessum Ævari Erni...... var allveg friðlaus í gærkveldi... lá við að ég renndi á Selfoss til að fá lánaðan smá sykur.... og berja þennan Ævar augum...... svei mér þá ég þarf að fara að leita mér aðstoðar við þessari forvitni...

Fanney Björg Karlsdóttir, 5.9.2007 kl. 22:04

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahahahah Fanney!!!! Það er ástæða fyrir því að mér þykir svona vænt um þig

Hrönn Sigurðardóttir, 5.9.2007 kl. 22:14

5 Smámynd: Ólöf Anna

ég fékk áfall!! Hélt að ég væri að missa af Dr. House en nei HANN ER Á MORGUN

Ekki gera manni þetta svona rétt fyrir svefninn.

Ólöf Anna , 5.9.2007 kl. 23:06

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

á maður helst að pissa utan í tré eða ?

Marta B Helgadóttir, 6.9.2007 kl. 00:34

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

Sofnaði einmitt útfrá lestri í gær.... yndislegt!

Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 10:11

8 Smámynd: Hugarfluga

Þú ert nú meira krúttið. 

Hugarfluga, 6.9.2007 kl. 11:02

9 Smámynd: Hugarfluga

Bíddu ... er svo House í kvöld?? hahahaha ji minn eini.

Hugarfluga, 6.9.2007 kl. 11:04

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það var Frost í gær sko !!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.9.2007 kl. 11:44

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Heppin að Víkingasveitin var ekki á vappi nálægt

Halldór Egill Guðnason, 10.9.2007 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.