Grunsamlegar mannaferðir um blánótt....

Ég er andvaka.....

.....vaknaði fyrir röskum tveimur klukkutímum við að það var eitthvað illt á sveimi! Tók strax þá ákvörðun að fara öryggishring um íbúðina, fann drenginn inni í stofu að horfa á Prison Brake - ekkert illt þar - hundinn sofandi frammi - ekkert illt þar - engir ofnar láku, engir innbrotsþjófar biðu mín handan við hornin með illyrmisleg glott á vörum og kúbein í höndum.....

Samt var svo mikill óhugur í mér að ég tók meðvitaða, helkalda ákvörðun að senda drenginn út með hundinn, þeir gætu þá migið í leiðinni.... Já ég sendi drenginn, sem mér þykir tiltölulega vænt um út með labbakút, bláköld og hefur nú litli labbakútur ekki það orð á sér að vera hugumstór!

Sem þeir komu niður tröppurnar, fundu þeir möndulveldi hins illa, þá miklu uppsprettu. Undir tröppunum hjá mér sátu þrír ungir menn í bíl, þeim brá heldur í brún, enda drengurinn ekki árennilegur, fremur en móðir hans, og þeir gátu ekki með nokkru móti vitað að hundurinn gerir ekki flugu mein! Drengurinn spurði þá bara sisona, algjörlega óttalaus, hvort hann væri eitthvað að trufla þá en þeir sögðust bara vera að ztjilla..... Mávarnir hlógu hæðnislega á næsta plani á meðan þeir týndu upp rusl dagsins..... Nú háttar þannig til að í húsum allt umhverfis mig er mikið af allskyns skjávörpum, tölvum og flatskjám... og innbrot hafa verið nokkuð tíð, sérstaklega seinni part vetrar. En svo ég víki nú aftur að atburðarrás þá ákvað drengurinn að reykja eina sígarrettu uppi á palli, hann gekk síðan aftur niður til þeirra þar sem þeir voru búnir að færa sig að næsta húsi í ztjillingu og benti þeim blákalt á að þeir skyldu átta sig á því að það mundi ekkert koma fyrir í okkar húsi og ekki heldur í næstu húsum, þeir urðu fremur lúpulegir, sögðust bara vera að koma úr bænum (aðkomumenn sjáiði til.....) og vera á leiðinni á Eyrarbakka....

Á meðan á öllu þessu stóð, keyrðu þrír lögreglubílar fram hjá húsi mínu, þeim þótti engin ástæða til að hægja á sér einu sinni, enda ekki öllum jafn gefið að vera svona næmir fyrir hinu illa eins og mér....

En nú var ég að uppgötva að ég gleymdi að fara öryggishringinn í kjallaranum og hjólið mitt er úti, mitt eina farartæki! Hvað geri ég? Vek drenginn? Sendi hundinn niður? Áttar hann sig á því að tékka á hvort hurðin er læst? Eða fer ég sjálf? Og hverf?

Ef það heyrist ekkert frá mér, þá voru þeir á grunsamlega grænum bíl. Þið látið kannski einhvern fullorðinn vita.....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér rennur kallt vatn milli skinns og hörunds.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.6.2007 kl. 07:34

2 Smámynd: Hugarfluga

Jeminn eini, Hrönn!! Viltu barasta gjöra svo vel að blogga NÚNA og láta vita af þér, takk fyrir!!!

Hugarfluga, 21.6.2007 kl. 09:05

3 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Hey ég mæti með töskuna mína....... ég kann á allt svona...... enda trúr áhorfandi á CSI......... en að öllu gamni slepptu ertu til á að láta í þér heyra kellan mín......

Fanney Björg Karlsdóttir, 21.6.2007 kl. 10:19

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

úppa ég  væri brjáluð af hræðslu en ég skil ekki í löggunni að stoppa  ekki athuga málið.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.6.2007 kl. 10:33

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er á lífi - takk stelpur mínar. Var að vakna.

Já Katla ég skil það eiginlega ekki heldur.....

Hrönn Sigurðardóttir, 21.6.2007 kl. 11:31

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Löggan hefur örugglega verið skíthrædd við drenginn með hundinn..ha?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.6.2007 kl. 11:51

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég held það nefnilega Katarína mína  - allavega nenntu þeir ekki að vera að skipta sér af þessu - sem mér finnst dálítið undarlegt.....

....ætti kannski að arka upp á stöð og spyrja hvurju þetta sætti?

hehehehehe

Hrönn Sigurðardóttir, 21.6.2007 kl. 11:53

8 Smámynd: Hugarfluga

Gott að þú ert þarna .... heil á húfi, dúllan mín.

Hugarfluga, 21.6.2007 kl. 17:48

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

takk dúllan mín

Hrönn Sigurðardóttir, 21.6.2007 kl. 22:08

10 Smámynd: Ólafur fannberg

mæti með riffilinn

Ólafur fannberg, 22.6.2007 kl. 08:23

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

riffilinn? hvar er fallbyssan?

Þykir þér ekkert vænt um mig?

Hrönn Sigurðardóttir, 22.6.2007 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.