Félagsmiðstöð miðaldra húsmæðra...

.... fór í búðina í dag - sem er svosem ekki í frásögur færandi.

Rakst þar á konu - (eða var það öfugt? Tounge) sem ég hef ekki hitt síðan ég gerðist hamingjusamlega fráskilin kona.

Þannig er mál með vexti að menn okkar voru/eru? (hverjum er ekki sama?) vinir.

Allavega, ég var á kassanum að raða í poka eftir innihaldslýsingu - já ég þarf aðstoð! þegar kona gægðist yfir borðið og heilsaði mér!

Mikið rosalega varð ég glöð að sjá hana aftur. Sumir eru bara þannig að það er alveg sama hvað maður sér þá ekki lengi, það er alltaf gaman að sjá þá. Hún er ein af þeim.

Fanney ef þú lest þetta. Ég var HIMINLIFANDI að hitta þig aftur. Endilega höfum samband áfram úr því okkur lánaðist að ramba saman aftur.

Svona er lífið - fullt af óvæntum uppákomum sem einhver annar planar í félagsmiðstöð miðaldra húsmæðra

LoL

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú þetta er að koma Hrönnsla, þú ert á leiðinni út úr skápnum.  Ég veit núna að þú varst gift, að þú kaust Framsókn (hehe) og nú vantar mig bara skóstærð, kennitölu, hæð og þyngd og nottla fleira smálegt og gott.

Smjúts

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2007 kl. 21:13

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

var gift - jamm. Framsókn nebbs  hitt kemur svo bara. Þú verður bara að fylgjast VEL með. Þýðir ekkert að detta út netsambandi í einhverju kæruleysi.....

lovjú

Hrönn Sigurðardóttir, 22.5.2007 kl. 21:23

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Vá, það getur verið svo inspírerandi að fara í búðina. Ég upplifi alltaf eitthvað out of the ordinary þar. Sest oft og skrifa sögu þegar ég kem heim úr biðröðinni í Bónus. Það er hversdagsleikinn er mest heillandi nefnilega.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.5.2007 kl. 22:49

4 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

ahahaha...já Hrönn mín þetta var mjög gaman.... en það sem mér finnst líka vera soldið fyndið akkurat núna er að Guðný Anna skuli vera hér.... heimurinn er svo lítill..... en endilega Hrönn látum verða af því að hittast sem allra fyrst...... ;))

Fanney Björg Karlsdóttir, 23.5.2007 kl. 00:27

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þekkist þið Guðný Anna og Fanney?

En sniðugt! :)

Hrönn Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 12:06

6 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Við vorum að vinna saman í smá tíma fyrir nokkrum árum, yndislega skemmtileg kona Guðný Anna

Fanney Björg Karlsdóttir, 23.5.2007 kl. 13:57

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Eins og við..........

tíhí

Hrönn Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 14:15

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er nú alveg frábært, bloggið er gott fyrir svo margt.

hafðu fallegasta dag kæra hrönn, kannski þekkjum við líka einhverstaðar úr henni fortíð

Ljós til þín frá mér

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 15:00

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég þekki þig Hrönn...hef séð þig svo oft á blogginu mínu með falleg orð. Þar er líka svona félagsmiðstöð mæðra veraldarinnar... Mamma tekur mig alltaf með í Bónus þegar ég heimsæki snjóalandið..er fullviss um að ég sakni þess hræðilega mikið. Svo er ekki.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.5.2007 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband