6.6.2008
Erlent berg....
"Blaðburðardrengurinn" minn er af erlendu bergi brotinn. Fyrst þegar hann var að byrja að bera út blaðið til mín brosti hann alltaf blíðlega og sagði: "good morning to you" með verulega austur-evrópskum hreim! Hann sagði líka alltaf: " one for you..... and one for you......" þegar hann rétti mér blaðið og aukaauglýsingabæklinginn sem fylgir leiðinlega oft með. Ég þakkaði honum alltaf fyrir með dassi af kulda í rómnum og sendi honum eitt af mínum "hold your distance" brosum. Hann var ekkert obbosslega næmur fyrir þeim - hefur líklega ekki skilið þau - enda, eins og áður sagði, af erlendu bergi brotinn.......
Hann setur alltaf blaðið mjög varlega í bréfalúguna, ef Ljónshjartað er ekki úti á tröppum - áttar sig líklega á því að þá er ég mjög líklega sofandi......... Núna býður hann mér góðan daginn á íslenzku en brosið er alltaf jafnblíðlegt!
Í morgun vaknaði ég mjöööööög snemma. Við Ljónshjartað fórum í okkar venjubundna göngutúr og vorum komin mjööööööög snemma heim aftur. Ég var ennþá hálfsofandi þegar við komum til baka. Sá á klukkunni að ég hafði mjög freistandi einn og hálfan tíma til að leggja mig aftur áður en ég mætti til vinnu og lét það alveg hrikalega eftir mér. Skreið upp í rúm og steinsofnaði. Þegar ég vaknaði aftur sá ég að "drengurinn" hafði tekið til á tröppunum hjá mér. Raðað sópum, sem ég þarf að henda, snyrtilega í eitt hornið. Hann hafði líka tekið blómapottana sem þeyttust til og frá í látunum um daginn og raðað þeim álíka snyrtilega í annað horn. Hann hafði hins vegar alveg látið lykilinn sem ég skildi eftir í skránni eiga sig
Reyniði svo ekki að segja mér að hann sé að teikna kort með hugsanlegum gróðavænlegum húsum til innbrota...........
Ég allavega sendi honum ósvikið bros í hádeginu í dag, þegar ég mætti honum úti á gangstétt og svaraði honum eins blíðlega og ég er fær um þegar hann bauð mér góðan daginn
Lét skrá mig í kvennahlaup á morgun. Magga æsti mig upp í það............ Enda ég meina til hvers að eiga alla þessa hlaupaskó ef ég er bara heima all the time að taka til? Það kostar bara tuð fra Halldóri..........
..... og þarna kom jarðskjálfti - ég skýt á ca. 3.2.......? Viljiði skjóta?
....en hey! Vissuð þið að Bubbi Morthens á afmæli í dag?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
5.6.2008
Poltergeist?
Þeir komu með tækin áðan mennirnir úr Árvirkjanum. Mömmusinnardúlludúskur tengdi síðan græjurnar. Nú get ég horft á matinn í ísskápnum í sjónvarpinu í gegnum örbylgjuna...............
Þetta er allt annað!
Nokkur orð áður en ég fleygi mér undir rúm! Já, þið hefðuð átt að hlæja meira að því. Þetta er eini öruggi staðurinn á Suðurlandi þessa dagana
Ég fór og lét gera tilboð í rafmagnstæki sem mig vantar! Fékk fínt tilboð og tók því. Fæ þvottavélina þegar ég er búin að moka út úr kjallaranum...........
Var svo stálheppin að ég var netsambandslaus í morgun þegar ég ætlaði að byrja að vinna og fór í tiltekt í staðinn. Tók svefnherbergið í gegn. Raðaði bókum, hillum í skápum og fötum, ryksugaði og skúraði. Merkilegt hvað það kemur mikið ryk í jarðskjálftum...........
Tók svo eldhúsið í gegn eftir kvöldmat. Fékk frænda minn á bíl með krók og kerru til að henda draslinu. Það er svo niðurdrepandi að búa með drasli - nú á ég aftur fínt eldhús! Að vísu tómt - en fínt. Nýju rafmagnstækin koma í fyrramálið og gólfin ættu að vera orðin glerbrotafrí!
Rosalega er ég ánægð með allt í kringum þennan jarðskjálfta - nema kannski helst hann sjálfan... Bæjarapparatið virkar stórvel. Allir virðast leggja nótt við dag við að laga skemmdir eftir skjálfta og upplýsingar streyma til fólks. Tryggingarnar vinna hratt og örugglega. Ég hef það til dæmis ekki á tilfinningunni eins og venjulega þegar ég þarf að hafa samskipti við tryggingar að ég sé hlunnfarin. Ég á að vísu eftir að eiga samskipti við Viðlagatryggingar en ef þeir vinna eins og hinir þá hef ég ekki þungar áhyggjur.
Ég var að hugsa.... ég var úti í skógi morguninn fyrir skjálfta. Ef ég man rétt þá var ég að reyna að lýsa fyrir ykkur kyrrðinni þar þennan morgun...... "Meira að segja áin rann hljóðar en aðra daga....." Ég heyrði varla í fugli þennan morgun. Mér leið svolítið eins og Palli var einn í skóginum.......
Veit ekki! Kannski var þetta "lognið á undan storminum"?
Þakka þeim sem hlýddu
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
2.6.2008
Shaken - not disturbed......
Ég skellti mér í áfallahjálp í dag! Já, já, konan sem telur áfallahjálp ofnotaða dreif sig - nennti ekki að hlusta lengur á allt þetta fólk sem sagði mér nýta mér þessa aðstoð! Auðvitað var það ágætt! Ég var svo heppin að lenda á álíka kaldhæðinni konu og ég er sjálf! Hún sagði mér að það væri sko allt í lagi að flissa að Suðurlandsskjálfta ef það kæmi mér í gegnum hann! Og hana nú
Auðvitað stend ég mig að því að sitja og stara fjarrænu augnaráði út í bláinn! En það er heldur ekkert alveg nýtt hjá mér - ég sit oft og stari, þarf engan Suðurlandsskjálfta til! Er þessi viðutan týpa - þó ég komi aldrei til með að viðurkenna það opinberlega...... Ég sagði henni líka frá því þegar maðurinn kom til mín klukkutíma eftir skjálftann, þar sem ég sat úti á tröppum eins og hver önnur kínversk kelling og ég horfði á hann, hlustaði á hann - en skildi ekki orð af því sem hann sagði - mér fannst það frekar fyndið - en hún útskýrði fyrir mér hvað hefði verið í gangi með mig.
Ég útskýrði fyrir henni, á móti, frá því hvernig hún gæti, í sumar, þekkt Selfyssinga úr í útilegum! Þeir væru þessir sem sætu með tómlega augnaráðið við hliðina á tjöldunum sínum...... Ég bauð henni líka símanúmerið mitt því skjálftarnir stefndu í átt að Reykjavík - sagði henni að ég væri hokin af reynslu Þetta endar með því að Rauði krossinn tekur mig í sína þjónustu - æ am telling jú!
Ég fékk nýjan sturtuklefa í dag ásamt nýju klósetti - er yfir mig hamingusöm að þurfa ekki lengur út á Esso að míga. Svona þarf nú lítið, þessa dagana, til að gleðja mig! Maðurinn frá tryggingafélaginu kom líka í dag að meta innbúið mitt! Hann hló þegar ég sagði honum að bollarnir frá ömmu væru eins og að vera laus undan afborgunum frá Mastercard - Priceless!! Hann flissaði líka þegar ég sagði honum að ég íhugaði að senda hr. Ikea póst um að vörurnar hans væru ekkert obbosslega möbelfakta.....
2.6.2008
Þið megið....
1.6.2008
Af skjálftavaktinni.....
.... veit ekki hvar ég á að byrja!
Svona lítur eldhúsið mitt út eftir 6.3 á richter!
Einhversstaðar þarna er rabbarabarapæið sem ég var að geyma mér til seinna kaffisins.... Þetta kennir manni að borða alltaf strax það sem maður gæti etið á morgun.......................
Það er búið að moka mestu af glerbrotunum saman. Ég er heppin að eiga góða fjölskyldu sem er boðin og búin að aðstoða mig. Hér hefur verið her manns að skófla glerbrotum í bala, ryksuga og skúra.
Ég sef ekki heima því klósettið er óvirkt og sturtan er brotin. Ég meina það er óþarfi að lúkka eins og öreigi ;) En uppþvottavélin virkar og ég læt hana þvo aftur og aftur þessa þrjá diska sem ég á heila............
Þvottavélin mín með alveg nýtt bros! Ég ætla ekki að leggja það á ykkur að sjá geymsluna mína......
Eitt sem mér finnst skrýtið! RÚV þessi "öryggis"fjölmiðill þessi með skylduáskriftina muniðið.....? Þegar ég sat og skalf - á föstudagskvöldinu...? - held ég - þá kveikti ég á útvarpinu og ætlaði að heyra hvort ég ætti að vera í viðbragðsstöðu - svona eins og skátarnir - en þá voru tveir menn að spjalla saman, gott ef það var ekki bara svolítið gaman hjá þeim.... Enginn kom í útvarp allra landsmanna og sagði mér að ég þyrfti ekkert að óttast - en þeir hlógu léttlyndislega gömlu karlarnir þannig að ég róaðist strax.... Til hvers er ég að borga afnotagjöld? Hvar er öryggið sem mér var lofað?
Klukkan rúmlega fimm þegar ég hentist upp við næsta skjálfta - þá var, á sama miðli, verið að tala um skjálftana fyrr um kvöldið...... Hvar kvartar maður? Veit það einhver?
Nú er staðan þannig að ég átta mig á því að það var líklega skjálfti þegar Ljónshjartað stekkur upp í rúm til mín.........
Ingólfsfjall hefur breyst talsvert.......
Ástandið er ótrúlegt! Ég hangi þessa dagana í frasanum: Einnig þetta líður hjá.............
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
30.5.2008
Flóttamaður í eigin föðurlandi....
Ég skreið undir borð í dag! Maður er svo skilyrtur sjáðu til............. Krjúpa- skýla - eitthvað...... ég man ekki alveg hvað - en ábyggilega er það eitthvað rosa gáfulegt!
Ég á ekkert innbú lengur! EKKERT!! Allt ónýtt..... Jú jú ég er tryggð - en hvað færir mér aftur bollana hennar ömmu? Myndina frá Zordisi? Það opnaðist 90 gráðu heitur gosbrunnur í garðinum hjá mér - ég er stoltur eigandi fyrsta heita gosbrunnsins á Íslandi!
Ég er á lífi og ég er ekki lengur á Selfossi! Ég er komin langt upp í sveit og ég er langt komin með eina hvítvín - sem er það eina rétta í stöðunni.......
Var samt að hugsa þegar ég skreið undan borðinu í dag og stökk yfir glerbrot og hillur á leið minni út að það síðasta sem ég hefði skilið eftir mig á blogginu var: FOKK
Ekki gott..........
.... en fátt er svo með öllu illt! Mér datt nefnilega í hug, mitt í öllum hörmungunum, ný pikkupplína: Ég þori ekki að sofa ein í nótt! Má ég sofa hjá þér.......?
Hvernig finnst ykkur hún?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
29.5.2008
Ómægod
29.5.2008
....og lífið gengur sinn gang
Við lötruðum í gegnum skóginn á mörkum dags og nætur. Kyrrðin var ólýsanleg - eins og hún getur bara verið svona snemma á morgnana. Meira að segja áin rann hljóðar og ekki bærðist blað á grein. Einn og einn fugl tísti þegar við gengum hjá. Ég settist á bekkinn við ferjuna, lokaði augunum og leyfði kyrrðinni að fljóta. Bý að því enn..... en ekki kom ferjan, ég er að spá í hvort hún sé kannski hætt að ganga.....
"Strákarnir" í löggunni eru úti að leika með dótið sitt í dag.....Strákarnir í slökkviliðinu eru að sýna leikskólabörnum sinn búnað. Hér streymdu brunabílar og slökkvibílar sitt á hvað inn á leikskólalóðina og þeir eru búnir að sprauta vatni í allar áttir og blikka ljósunum. Nú voru þeir að kveðja og settu flauturnar í gang
Eins gott að ég er seinæst..........
Fór á skemmtilegt slútt með sundsystrum í gærkvöldi. Það var farið í Þrastaskóg og farið í ratleik áður en við borðuðum í Þrastalundi. Þar var flegið og hlissað fram eftir kvöldi en allar komust þó heim í björtu
Læt fylgja eina mynd af laumuvatnsfimiprinsessunni. Hún tók þátt í leikfiminni í allan vetur enda var haft á orði að hún hefði sjaldan sofið værar. Hún náttúrulega fyllist öryggi við gasprið í kjéddlingunum sem hún er búin að hlusta á í níu mánuði
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.5.2008
Soldið slow.....
..... ég las fyrirsögn í blaði í morgun sem ég áttaði mig ekki á fyrr en um hádegi: Ófrískum ungum hefur fækkað.... Ég spáði í hvaða ungar væru ófrískir! Hvar væru yfirleitt komnir ungar! Eru ekki flestir fuglar enn liggjandi á.....?
Annað sem ég velti fyrir mér þessa dagana er að úr því að það er búið að senda geimfar á Marz er þá ekki kominn tími á "aðra" ferð á tunglið......? Þið munið small step og allt það!
Var kannski aldrei farið þangað? Var bara verið að plata ykkur?
Hugsanlega.......