Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Einn af þeim....

Ég vaknaði snemma, fékk mér banana og morgunsnafsinn, nýkreista sítrónu! Alltaf gott að byrja daginn súr í bragði.....

Fór svo í langan göngutúr með Ljónshjartað. Úti er glampandi sól, snjórinn glitrar og sindrar og hálkan er minni en ég hélt. Ég uppskar svo svakalegan hausverk af allri þessari árans ekkisens útiveru og hreysti að mér finnst eins og hausinn á mér sé að klofna...... Þetta ætti að kenna manni að sofa bara lengur og borða frekar kók og cocopuffs í morgunmat Tounge

Í hverfisversluninni var kortinu mínu hafnað með þeim skilaboðum að innistæða væri ekki næg W00t en ég var svo stálheppin að næsti maður í röðinni var leynilögreglumaðurinn á frívakt og hann lánaði mér aur. Kemur sér stundum vel að þekkja ríkisstarfsmenn Happy

Og úr því að ég er á annað borð örg þá tilkynnist hér með að ég á erfitt með umbera það þegar fólk bloggar og sendir svo bloggið sitt í skilaboðakerfinu til bloggvina sinna. Héðan í frá fá þessir aðilar sömu meðferð og rasistarnir fengu hjá mér hér um árið. Þeir verða lækkaðir í bloggvinaröðinnni og á endanum lenda þeir út af honum!

Ætla að fleygja mér undir rúm og athuga hvort ég lagast ekki - allavega af hausverknum. Á meðan - taktu tvær magnyl Sideways


Google

Ég gúgglaði mig......

....þetta kom upp!

 

Ég persónulega er ánægðust með mig þegar hún stígur á pallinn..........

Tounge


Björn Bjarnason

Ég er búin að vera með lag á heilanum í allan dag en það var ekki fyrr en nú undir kvöld að ég áttaði mig á því að ég botna ekkert í textanum. Hugsanlega man ég ekki textann rétt - það hefur komið fyrir mig stöku sinnum áður......... ef svo er gef ég út plötu með mismunuðum textum Tounge

Textinn sem ég hef sönglað með sjálfri mér og hamingjunni í allan dag er svona: "Ég er seinheppinn maður, það sést bezt á því, hve sjaldan ég dett og fer á fyllerí.........." Held að Vilhjálmur Vilhjálmsson hafi sungið þetta á sínum tíma. Allavega syng ég þetta eins og hann.......

Nú er mér spurn - hvernig getur það flokkast undir seinheppni að detta sjaldan? Annað hvort er ég að misskilja orðið seinheppinn og þá líklega líka orðið seinþreyttur - að vera, eins og ég Tounge seinþreyttur til vandræða, hélt ég til dæmis að þýddi að það mætti bjóða mér ýmislegt áður en ég yrði til vandræða alveg eins og ég stóð í þeirri trú að það að vera seinheppinn þýddi að vera sjaldan heppinn........

....ef hins vegar það að vera seinheppin þýðir að detta sjaldan þá þýðir líklega það að vera seinþreyttur að verða ekki þreyttur fyrr en snemma á morgnana.....

Still following? Ekki?

Þið getið kannski leiðrétt textann fyrir mig svo ég geti sungið hann rétt á morgun. Muniðið eftir laginu: Aha - ójá, eins var líka settur hæll undir tá?

Tounge Náði ykkur!

 


Flokkum og skilum.....

Mér var boðið í teiti í gær - sem ég að sjálfsögðu mætti í! Þangað var boðið þeim sem vissu póstnúmerið á Króksfjarðarnesi - án þess að gúggla það og svo einum sem er hvorki á facebook né blogginu!

Jamm - það er Dúa sem á svona undarlegan vin W00t

Það var þrusugaman. Dúa dansað á ræmunni og allir sögðu neyðarlega sögu af sjálfum sér. Ég var svo að hugsa þegar ég keyrði heim yfir fjöllin sjö - maður leggur ýmislegt á sig, sjáðu til, til að mæta í partý - að ég hafði alls ekki sagt neyðarlegustu söguna mína. Enda var hún vitlaust flokkuð......

Þannig var að ég átti einu sinni vinkonu, áherzlan er á einu sinni, hvers vinkona hafði keypt sér sundbol í gegnum svona..... hvað heitir það nú aftur.... pöntunarlista! Hún fór aldrei í sund þannig að hún gaf vinkonu sinni bolinn, sem fór heldur aldrei í sund og fannst upplagt að gefa mér bolinn - því ég er jú hafmeyja og alltaf í sundi.

Ég tók við bolnum, þakkaði fyrir mig og fór í sund og synti nokkrar ferðir. Það var hinsvegar ekki fyrr en ég var á leiðinni í heita pottinn að ég tók eftir því að bolurinn var búinn þeim fágæta eiginleika að verða ósýnilegur þegar hann blotnaði!

Ég skannaði í hendingskasti möguleikana sem ég hafði í stöðunni og gerði svo það eina sem hægt var að gera. 

Ég lét eins og ekkert væri eðlilegra en vera í ósýnilegum sundbol í sundi! Ekkert........ Ég er náttúrulega heimskona og svo þurfa hafmeyjar ekkert endilega að vera í sundbol Tounge

Ég á sundbolinn ennþá ef ykkur vantar einhvern tíma sönnun á því að þið séuð heimskonur.....


Efni

Ég rakst á stafsetningarvillu í bók sem ég var að lesa og fékk þessa líka frábæru hugmynd um hvað ég gæti búið til mörg orð úr einu * efni *

ef...

en...

nef...

nei...

fen...

nefi..

feni..

efi..

fin.. - þið munið eftir La-Linea-di-Osvaldo-Cavandoli

ein..

Svo ætla ég að útfæra conseptið og skrifa bók með því að raða þessum orðum saman. Stefni á að gefa hana út fyrir páska!

Er ég að gleyma einhverju orði?


Skemmtum okkur innanlands.

Var að lesa moggann í morgun. Þar fletti ég mig að heilsíðuauglýsingu frá einhverju flugfélagi sem vill að ég skemmti mér innanlands.

Auglýsingin er mynd af fjölskyldu þar sem mamman situr svo ógesslega happí, pabbinn er nördaútgáfa af út og suðurkallinum og börnin eru merkt með stað og ártali. 

Það getur vel verið að mömmunni finnist hrikalega gaman að vita af syni sínum barnungum á þjóðhátið og hinum börnunum á Ísafirði, Egilsstöðum og Akureyri á meðan hún nördast með kallinum heima. En - hafa börnin eitthvað gaman af að fljúga innanlands?

Hvar er barnaverndarnefnd?

Maður spyr sig........

Á morgun tek ég fyrir auglýsinguna um Valentínusardaginn - hvar karlmaðurinn á að sýna samúð, hugrekki og rómantík!

Lifið heil!


Ég held ég hafi sagt það áður....

....kreppan er ekki að öllu leyti alslæm!

Ég get tekið sem dæmi að svæði sem áður var búið að skipuleggja byggð á, standa enn auð og ósnortin... ég get rölt þar með vitleysingana án þess að stórir vörubílar stofni lífi mínu - og þeirra í hættu. Ég get litið í góða bók eftir hádegi, eða bara lagt mig í klukkutíma, eða svo, ef mér finnst ég þurfa þess....

Hlín hrekkjusvín er að lóða og hvílíkar skapgerðarbreytingar. Hún getur engan veginn verið einsömul, stendur með höfuðið á hnjánum á mér allan morguninn á meðan ég vinn, eins og það er nú þægilegt...... og grætur og hrín ef mér svo mikið sem dettur í hug að fara út í búð og skilja hana eftir "eina" Svolítið lýsandi fyrir karaktera hrekkjusvína........ ekki satt? Ég spurði mömmusinnardúlludúsk, sem formlegan eiganda hrekkjusvínsins, í dag hvursu lengi þetta ástand stæði yfir. Hann benti mér á að ég ætti að vita það fremur en hann.... Ég sagði honum þá vitaskuld, blákalt og horfði beint í augun á honum á meðan, að ég væri ekki tík Tounge Hann þorði ekki að svara því.... Einhver sem veit hvað tíkur lóða lengi?

Einhversstaðar las ég á bloggi að "þessir mótmælendur" - þið skynjið tóninn - væru fólk sem ekki nennti að vinna og ætti það sameiginlegt að borga enga skatta. Well - það er eitthvað það vitlausasta sem ég hef lesið - lengi...... því, svo fáránlegt sem það er þá þurfa þeir sem ekki "nenna" að vinna að leggja fram skattkortið sitt til vinnumálastofnunar - sem bæþevei - ég hef reynt að ná í frá mánaðarmótum til að fá skýringar á ýmsu. Spurning hvort ég byði ekki fram vinnukrafta mína ef ég næ einhverntíma í gegn og hreinlega mundi "nenna" því Tounge

Nú á ég bara eftir að finna út hvernig ég læt þessar fargings bætur duga fyrir mínum skuldbindingum. Sem eru nú svosem ekki rosalegar. En það eru bæturnar ekki heldur...... Sideways


Nú verður tekinn upp þráðurinn með ljóðagizk.....

Mér fannst þetta við hæfi........ 

          byltingin er á bömmer
          og frelsið er bara flipp
          hatursfullar raddirnar búa ekki lengur
          yfir þeirri hlýju sem yljaði
                                       viskírótum hjartans
          byltingin er á bömmer
          og frelsið er bara flipp ...
          Við erum ekki í lit
          heldur svart-hvítir skuggar
                             hvers annars
          það er ekkert töff að vera til
                             allir sigrarnir sem við töpuðum
          í rauðeygu myrkrinu eru fyrir bí
          byltingin er á bömmer
          og frelsið er bara flipp
                    og þeir sem fjárfestu
          í sál þinni eru löngu farnir á hausinn
          eða stungnir af með sjóðina.

Og spurningin sívinsæla er: Hver orti og hvenær?


090209

Í dag hefði orðið níu ára yndisleg stúlka sem dó fyrir rúmum sjö árum.

Ég heyri enn tæru röddina hennar þegar hún heilsaði með sínu sérstaka "hæjjj" með svolítilli forvitni í málrómnum. Ég sé ennþá fyrir mér fallegu augun sem horfðu stundum svo alvarlega á mann. Eins og þau vissu og skildu svo miklu meira en maður sjálfur.


Nostalgía

Ég var að lesa gamalt blað með morgunkaffinu..... Matur og Vín heitir það. Þar eru oft góðar uppskriftir og viðtöl við hina og þessa. Ég staldraði við viðtal við (takið eftir öllum viðunum.... mætti halda að ég væri úr iðnaðarmannahéraði Happy) Tomma í Tommaborgurum og þá fór ég að hugsa.......

Ég renndi mér allt til árs fyrsta alvöruhamborgarans sem ég smakkaði. Hann var vitaskuld keyptur í útlöndum því hér fengust engir almennilega sveittir borgarar í þá gömlu góðu........ á Strikinu nánar tiltekið - ég hef snemma byrjað að njóta lífsins lystisemda í Danmörku en þetta er ekki saga um það..... Tounge Mig minnir samt endilega að minn fyrsti borgari hafi heitað Whopper Burger frekar en Burger King. Ég man ég fylltist valkvíða miklum yfir öllu því úrvali af hamborgurum og meðlæti sem þar gat að líta..... Ég man líka að mér fannst hann ekkert spes...

Fyrir nokkrum árum vaknaði ég óvenjuþunn og skundaði um miðjan dag í næstu sjoppu og verslaði einn sveittan borgara alltaf gott að borða bras í því ástandi. Síðan hef ég ekki borðað hamborgara! - Nú hélduð þið að ég ætlaði að segja: Síðan hef ég ekki vaknað þunn Tounge

Lifið í lukku Heart

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband