Færsluflokkur: Kvikmyndir

Grunsamlegar mannaferðir um blánótt....

Ég er andvaka.....

.....vaknaði fyrir röskum tveimur klukkutímum við að það var eitthvað illt á sveimi! Tók strax þá ákvörðun að fara öryggishring um íbúðina, fann drenginn inni í stofu að horfa á Prison Brake - ekkert illt þar - hundinn sofandi frammi - ekkert illt þar - engir ofnar láku, engir innbrotsþjófar biðu mín handan við hornin með illyrmisleg glott á vörum og kúbein í höndum.....

Samt var svo mikill óhugur í mér að ég tók meðvitaða, helkalda ákvörðun að senda drenginn út með hundinn, þeir gætu þá migið í leiðinni.... Já ég sendi drenginn, sem mér þykir tiltölulega vænt um út með labbakút, bláköld og hefur nú litli labbakútur ekki það orð á sér að vera hugumstór!

Sem þeir komu niður tröppurnar, fundu þeir möndulveldi hins illa, þá miklu uppsprettu. Undir tröppunum hjá mér sátu þrír ungir menn í bíl, þeim brá heldur í brún, enda drengurinn ekki árennilegur, fremur en móðir hans, og þeir gátu ekki með nokkru móti vitað að hundurinn gerir ekki flugu mein! Drengurinn spurði þá bara sisona, algjörlega óttalaus, hvort hann væri eitthvað að trufla þá en þeir sögðust bara vera að ztjilla..... Mávarnir hlógu hæðnislega á næsta plani á meðan þeir týndu upp rusl dagsins..... Nú háttar þannig til að í húsum allt umhverfis mig er mikið af allskyns skjávörpum, tölvum og flatskjám... og innbrot hafa verið nokkuð tíð, sérstaklega seinni part vetrar. En svo ég víki nú aftur að atburðarrás þá ákvað drengurinn að reykja eina sígarrettu uppi á palli, hann gekk síðan aftur niður til þeirra þar sem þeir voru búnir að færa sig að næsta húsi í ztjillingu og benti þeim blákalt á að þeir skyldu átta sig á því að það mundi ekkert koma fyrir í okkar húsi og ekki heldur í næstu húsum, þeir urðu fremur lúpulegir, sögðust bara vera að koma úr bænum (aðkomumenn sjáiði til.....) og vera á leiðinni á Eyrarbakka....

Á meðan á öllu þessu stóð, keyrðu þrír lögreglubílar fram hjá húsi mínu, þeim þótti engin ástæða til að hægja á sér einu sinni, enda ekki öllum jafn gefið að vera svona næmir fyrir hinu illa eins og mér....

En nú var ég að uppgötva að ég gleymdi að fara öryggishringinn í kjallaranum og hjólið mitt er úti, mitt eina farartæki! Hvað geri ég? Vek drenginn? Sendi hundinn niður? Áttar hann sig á því að tékka á hvort hurðin er læst? Eða fer ég sjálf? Og hverf?

Ef það heyrist ekkert frá mér, þá voru þeir á grunsamlega grænum bíl. Þið látið kannski einhvern fullorðinn vita.....

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband