Shaken - not disturbed......

Ég skellti mér í áfallahjálp í dag! Já, já, konan sem telur áfallahjálp ofnotaða dreif sig - nennti ekki að hlusta lengur á allt þetta fólk sem sagði mér nýta mér þessa aðstoð! Auðvitað var það ágætt! Ég var svo heppin að lenda á álíka kaldhæðinni konu og ég er sjálf! Hún sagði mér að það væri sko allt í lagi að flissa að Suðurlandsskjálfta ef það kæmi mér í gegnum hann! Og hana nú Cool

Auðvitað stend ég mig að því að sitja og stara fjarrænu augnaráði út í bláinn! En það er heldur ekkert alveg nýtt hjá mér - ég sit oft og stari, þarf engan Suðurlandsskjálfta til! Er þessi viðutan týpa - þó ég komi aldrei til með að viðurkenna það opinberlega...... Tounge Ég sagði henni líka frá því þegar maðurinn kom til mín klukkutíma eftir skjálftann, þar sem ég sat úti á tröppum eins og hver önnur kínversk kelling og ég horfði á hann, hlustaði á hann - en skildi ekki orð af því sem hann sagði - mér fannst það frekar fyndið - en hún útskýrði fyrir mér hvað hefði verið í gangi með mig.

Ég útskýrði fyrir henni, á móti,  frá því hvernig hún gæti, í sumar, þekkt Selfyssinga úr í útilegum! Þeir væru þessir sem sætu með tómlega augnaráðið við hliðina á tjöldunum sínum...... Ég bauð henni líka símanúmerið mitt því skjálftarnir stefndu í átt að Reykjavík - sagði henni að ég væri hokin af reynslu Sideways Þetta endar með því að Rauði krossinn tekur mig í sína þjónustu - æ am telling jú!

Ég fékk nýjan sturtuklefa í dag ásamt nýju klósetti - er yfir mig hamingusöm að þurfa ekki lengur út á Esso að míga. Svona þarf nú lítið, þessa dagana, til að gleðja mig! Maðurinn frá tryggingafélaginu kom líka í dag að meta innbúið mitt! Hann hló þegar ég sagði honum að bollarnir frá ömmu væru eins og að vera laus undan afborgunum frá Mastercard - Priceless!! Hann flissaði líka þegar ég sagði honum að ég íhugaði að senda hr. Ikea póst um að vörurnar hans væru ekkert obbosslega möbelfakta.....

Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ó mæ...þú átt eftir að drepa mig úr hlátri. Ég ætla að kíkja eftir selfyssingum í sumar, hlýt að spotta þá á löngu færi miðað við þessa lýsingu.

Hafðu það gott rófan mín, mér þykir vænt um þig -í alvörunni

Ragnheiður , 2.6.2008 kl. 22:29

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú ert bara frábær mannvera.

Anna Einarsdóttir, 2.6.2008 kl. 22:40

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Ef þú kannt ekki að horfa á björtu hliðarnar þá kann það enginn!! Segi það og skrifa það; SNILLINGUR, ÞÚ!!

Knús... 

SigrúnSveitó, 2.6.2008 kl. 22:43

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hrönn, þú ert frábær.  Gangi þér vel að vinna úr þessu

Sigrún Jónsdóttir, 2.6.2008 kl. 22:57

5 Smámynd: Linda litla

Já.. kvörtum við IKEA.

Takk fyrir mig hehehe

Linda litla, 2.6.2008 kl. 23:26

6 Smámynd: www.zordis.com

Knús á þig dúlla!

Ég held að þú ættir að koma til mín í sólina .... við erum þó á sömu skjálftalínu þegar strunsið er tekið á Torrevieja.

Á sér kló og sturtu fyrir þig og er góð í að búa um skemmtilegar konur !

www.zordis.com, 2.6.2008 kl. 23:31

7 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Hrönn mín.... þú færð stig í kladdann.... hlýðinn að venju...... ég tek ofan fyrir þér.... og kem við næst þegar ég þarf að míga.......

love jú... 

Fanney Björg Karlsdóttir, 2.6.2008 kl. 23:33

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.6.2008 kl. 01:00

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ragga mín! lovjútú

Svana! Sömuleiðis

Hrönn Sigurðardóttir, 3.6.2008 kl. 01:04

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Anna! Ef við ættum að fara í frábærukeppni er ég hrædd um að ég mundi tapa.....

Sigrún! Þá fyrst ef ekki er hægt að flissa að málum er þau alvarleg.......

Takk Sigrún mín.

Linda litla! Vinnum í því....

Þórdís! Some day some time some were....... ójá......... og ég get sagt þér að listin þín var metin að verðleikum í dag.......

Fanney! Ég er að segja þér! Það eina sem ég geri vel er að hlýða

Bíddu - Jenný! Ertu að hlæja að mér.......

Hrönn Sigurðardóttir, 3.6.2008 kl. 01:09

11 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Hef stundum laumast hér inn bakdyramegin án þess að kvitta...en þú ert bara svo ótrúlega fyndin!

Gott að hafa þennan svarta húmor...annars kemst maður ekki í gegnum þetta blessaða líf!!!!

Gangi þér vel að vinna úr þessu öllu og endilega...ef þessi stóri kemur hingað á stórKópavogssvæðið...þá vertu endilega ein af þessum frá Rauða Krossinum...og ég kem....

Bergljót Hreinsdóttir, 3.6.2008 kl. 02:07

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Mér finnst áfallahjálp líka ofnotuð. Vopnlaus maður kemur inn í banka og tekur nokkra þúsundkalla og starfsfólkið þarf áfallahjálp! Come on. En við svona alvöru áföll kemur hún sér eflaust vel. Fer aldrei í útilegur svo ég verð bara að kíkja eftir Selfyssingum í búðum og úti á götu.

Helga Magnúsdóttir, 3.6.2008 kl. 10:48

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Stundum er gott að sjá húmorinn í hlutum. Þetta gerði ég óspart eftir að ég missti allt mitt í bruna, grínaðist með það og sagði að mig hefði hvort sem er langað í nýja eldhúsinnréttingu og gæti tekið að mér kennslu í því hvernig ætti að kveikja í

Huld S. Ringsted, 3.6.2008 kl. 11:37

14 identicon

Þú ert snillingur kona .

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 15:27

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku dúllan mín, þetta er frábær færsla.  Þú kannt sko að orða hlutina á broslegan hátt.  Vona að þetta komi smátt og smátt hjá okkur þessum með starandi tómu augun, ferlega skrítið að vera svona tómur.  Knús í austurbæinn.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.6.2008 kl. 19:24

16 Smámynd: Rebbý

þú ert bara snillingur .... til lukku með nýja klósettið ....

Rebbý, 3.6.2008 kl. 20:05

17 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hurrðu ljúfust! Vertu mem! Láttu heyra í þér og skráðu þig í samtökin...plís

http://skessa.blog.is/blog/skessa/entry/558792/

Heiða B. Heiðars, 3.6.2008 kl. 20:20

18 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Já, þau eru ýmisleg mannréttindin .... til lukku með salernið og til lukku með þig, verðandi áfallahjálparaðili.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.6.2008 kl. 22:10

19 Smámynd: Dísa Dóra

haha þú ert nú barasta ómetanlegur gullmoli.  Húmorinn hefur greinilega ekki skolfið úr þér - hefði kannski verið skondið ef að fúli nágranninn hefði allt í einu fengið húmor sem kom skjálfandi eftir götunni

Fólk eins og þú gerir tilveruna bjartari

Dísa Dóra, 4.6.2008 kl. 18:58

20 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Þú ert alveg milljón.        Þessir sérfræðingar að sunnan og það frá Red Cross.     Fékkstu þér ekki höggvarinn sturtuklefa með innbyggðum GSM og CD spilara?    Gæti komið sér vel að hafa GSM í klefanum ef hann er mikið á ferðinni.

Marinó Már Marinósson, 5.6.2008 kl. 00:03

21 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er með inngróinn síma í hælnum....

.....manstu eftir Smart spæjarara? Hann var með síma í sólanum - ég er kominn lengra

Hrönn Sigurðardóttir, 5.6.2008 kl. 00:12

22 Smámynd: Solla Guðjóns

Dásamlega elsku klikkað þú.Það er bara ein þú og hafðu það.

Til hamingju að geta migið heima hjá þér.

Solla Guðjóns, 5.6.2008 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband