Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Ég er á leiðinni..

... - manstu eftir Brunaliðinu?

Ég er á leiðinni út í rigninguna. Í dag ætla ég að vera verulega smart og fara í stígvél - Nokia gúmmistövler Tounge Ég ætla líka í pollabuxur og regnkápu og svo ætla ég að setja á mig derhúfu.... Nú er ég farin að hljóma eins og Bókin um Benna og Báru..... en það er annað hvort að hafa derhúfu eða skilja gleraugun eftir heima - í svona rigningu sé ég ekki á milli augnanna á mér með gleraugun óvarin og ekki sé ég betur án þeirra....

En - af hverju heitir bókin Benni og Bára? Af hverju ekki Bára og Benni? Misrétti......? Hvað hétu hinar bækurnar - eða var Bókin um Benna og Báru eina bókin í flokknum um misrétti barna?.... muniði það?

Farin að hoppa á milli polla - eða oní þá.......

Hverjar telurðu líkurnar á að ég vinni umhverfisprýðisverðlaunin í dag?

Pís Heart


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband