Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010
31.12.2010
Þá er síðasti dagur
þessa árs runninn upp.
Í mínum huga er gamlársdagur ekkert sérstakur dagur og ég hef síðustu árin tekið honum af miklu jafnaðargeði. Ég elda góðan mat og fer snemma að sofa. Vakna síðan á nýju ári fersk og falleg - eins og alltaf reyndar
Nú er svo komið fyrir mér að ég gýt hýru auga á annálana bæði innlenda og erlenda. Hugsanlega er það merki um aukinn þroska....... en ég man þá tíð þegar annálarnir voru þurrir og leiðinlegir og töfðu fyrir sirkus Geira Smart.
Ég ætla svo sannarlega ekki að lista upp fyrir ykkur allt sem skeði á árinu enda getið þið bara lesið bloggið mitt ef þið hafið áhuga á því en einu ætla ég þó að deila með ykkur.
- Ég splæsti í nýjan sundbol. Það er nefnilega með sundboli eins og nýtt ár - maður veit ekki fyrr en þeir eru búnir hvort þeir reynast vel eða illa. Þessi sundbolur sem ég keypti mér í haust reyndist ekki vel. Hann tærist mjög hratt og er að verða leiðinlega grár á köflum. Fyrir utan að það voru ekki til nema svartir - hvað er málið með svarta sundboli? Mig langar í túrkisbláan eða appelsínugulan sundbol. Má gjarna vera svart í honum - svart fer vel með öllu bara ef það er ekki of mikið af því.
Ljónshjartað, Hrekkjusvínið og Hryðjuverkakötturinn sem heldur að hann heiti Hlín, æsa sig ekki ýkja mikið yfir sprengingum í ár. Enda hef ég verið dugleg að segja þeim söguna af hundinum í Kosovo en hún byggir á sannsögulegum atburðum úr lífi hunds í Kosovo og fjallar aðallega um að þau gætu haft það verra........
Ég ætla að taka nýju ári fagnandi, kannski með smá tortryggni þó til að byrja með enda óþarfi að flaðra upp um allt nýtt þó ég stefni að því á nýju ári að verða ögn lauslátari
Óska ykkur árs og friðar
28.12.2010
Ég var að hugsa
þar sem ég gekk út með á með Ljónshjartað og Kisuling hvort það væri nokkuð líf að vera fugl.
Spáið í það. Alltaf á varðbergi flögrandi um, sendandi út aðvörunartíst! Ekki nóg með að þú þurfir að vara þig á mannfólki heldur líka fjórfættum óvinum. Köttum, hundum, bílum.
Aldrei róleg stund.
Ég er allavega ferlega fegin að vera ekki þröstur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.12.2010
Ást og friður
Það snjóar úti, mér er sagt að veðrið á fjallinu sé afleitt og jólaboðinu sem ég var á leiðinni í er aflýst. Þetta eru sko jólin! Muniði í gamla daga þegar maður sá ekki á milli augnanna á sér fyrir blindhríðarbyl og komst ekki í jólaboðin?
Í þá daga var maður líka hár og grannur eða langaði allavega að vera það. Hvur veit nema það verði aftur með þessu áframhaldi. Ég á nefnilega ekkert að borða. Hafði algjörlega reiknað með þessu jólaboði
Ég var að koma frá því að syngja við helgistund á Ljósheimum í dag ásamt einum eða tveim öðrum Þar var kona sem þakkaði okkur við hvert lag fyrir dásamlegan söng. Ég stakk upp á því við gjaldkera sóknarnefndar - sem var líka að syngja - að við flyttum þessa konu inn í messur. Þetta var svo gefandi.
Ég er búin að kveikja á kertum í öllum gluggum og valið stendur á milli þess að lesa bókina sem ég fékk í jólagjöf eða ráða myndagátu Dagskrárinnar. Ætli myndagátan verði ekki fyrir valinu. Formaður sóknarnefndar - annað hvort neimdroppar maður eða ekki - er búin að ráða gátuna og ég get ekki verið þekkt fyrir annað en klára hana líka!
Lífið er ekki það versta man ha´og snart er kaffet klar
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.12.2010
Frost er úti....
Hitakerfið í mínu húsi er eins og eigandinn, afar flókið. Inntakið er, eins og öll góð inntök, staðsett í kjallaranum og ég þarf afar sjaldan að hringla í því.
Nema þegar frostið fer yfir öll velsæmismörk eins og núna. Þá væri gott að nenna niður og setja smá trukk í kerfið en ég nenni því náttúrulega alls ekki frekar en öðru fyrir jólin Enda er svo skrýtið að þegar verður svona mikið kalt þá er eins og þrýstingurinn detti niður á heita vatninu í sveitinni.
Ef ég vissi ekki betur þá mundi ég halda að sveitarfélagið réði bara alls ekki við að þjónusta svona stórt hverfi - en vitaskuld er það ekki málið.........
.....ég trúi því nefnilega staðfastlega að þetta sé allt Eyrarbakka og Stokkseyri að kenna. Ég er enda ekki frá því að þetta hafi allt hafist með því að þeir tengdust kaldavatnslögninni minni
Það er allt eins þetta lið þarna niðri á strönd það má ekki rétta þeim kaldavatnskrana án þess að þeir rjúki til og steli heita vatninu líka! Þetta segi ég án alls kala til þeirra því vitaskuld eru sumir af mínu bestu Strandabúum vinir.
Og svona af því að ég nenni alls ekki út í þennan kulda og gegnum hlerann fer ég ekki síðan ég stytti mér leið þar niður í kjallara í vor, sællar minningar, þá ætla ég að fara í lopapeysuna mína og leyfa ykkur að heyra jólalag míns jólaþema í ár.....
Hlýjar stundir
20.12.2010
Ég ákvað í haust...
...einhverntímann að ég ætlaði að verða voða góð fyrir jólin. Prjónaði handstungur í gríð og erg í hverri messu og hverri jarðarför, sem ég ætlaði svo að gefa einhverjum hjálparsamtökum - nema hugsanlega fjölskylduhjálpinni........ - algjörlega á pari við Bergþór Pálsson sem prjónar jólagjafir baksviðs í dauða tímanum!
Ég fór meira að segja í föndurbúð í Kópavoginum - Kópavoginum takið eftir - til að kaupa silfurlitt garn sem ég ætlaði að hekla blúndur úr framan á handstungurnar.
Enívei.... tíminn leið - ég er búin með einhver fjögur pör og langt komin með fimmta. En það eru bara fjórir dagar til jóla - EF ég tel þennan með Þannig að ég tel útséð með gæzku mína fyrir þessi jól.
Dízes - ég vona að það verði líka kreppa um næstu jól
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.12.2010
Ég er búin að öllu fyrir jólin....
...nema; kaupa jólagjafir, baka, taka til, skreyta og kaupa í matinn.
Ekki af því að ég hafi ekki tíma til þess - heldur vegna þess að mig skortir nennu. Ég hef hins vegar varið aðventunni í kökuboðum hjá ættingjum, tónleikum og almennu slugsi og er ekki frá því að þeim tíma hafi verið vel varið. Allavega eru það rökin sem ég nota til að sannfæra sjálfa mig um áframhaldandi jólaleti þegar jólakvíðahnúturinn gerir vart við sig einhversstaðar á milli nára og nafla en kannski er það líka bara eftirvænting eftir jólasveinum sem læðast um bæinn á meðan ég og hin góðu börnin sofa.......
Ég hef samt smá fóbíu gagnvart þeim - jólasveinunum alltsvo - síðan þeir komu tveir heim þegar mömmusinnardúlludúskur og fröken fíólín voru lítil og annar þeirra sagði við þau, og hló í gegnum skeggið, að hann yrði nú bara að kyssa mömmu þeirra líka - það væri svo langt síðan hann hefði kysst hana......
Ég var öll þau jól að reyna að átta mig á því hvar hann var þessi jólasveinn og hvar og hvenær við hefðum átt náið samneyti Endaði á því að telja sjálfri mér trú um að hann hefði verið að meina að hann hefði ekki kysst mig síðan ég var lítil.......
Enda er ég meira gerð fyrir happy ending - ég meina vitaskuld man ég eftir öllum strákum slash jólasveinum sem ég hef kysst í gegnum tíðina - en ekki hvað
En aftur að aðventunni í ár...... Ég fór á tvenna tónleika í gær. Byrjaði í Hvítasunnunni þar sem Ragnheiður Blöndal brilleraði Stakk svo af þaðan yfir í Tryggvaskála að hlusta á jóladjass hjá Kristjönu Stefáns. Það er orðinn árviss atburður hjá mér að hlusta á jóladjass hjá Kristjönu og co. Local selfysskir brandarar þyrlast um salinn í bland við tónaflóð og englasöng. Í gær voru gestasöngvarar hjá Kristjönu þær Guðlaug Elísabet og Soffía Stefáns sem er þó ekki systir Kristjönu Stefáns - en það er Ragnheiður Blöndal hinsvegar Flókið? Lestu þá aftur - bara hægar.
Í dag ætla ég svo að trítla yfir í jólagarðinn og hlusta á Selmu, litlu frænku mína, syngja ásamt Sniglabandinu. Hver veit nema ég hnjóti um eins og eina jólagjöf........
Láttu þér líða vel
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)