Öryggið á oddinn

Ég fór í frábæra konuferð í höfuðstað allra landsmanna á laugardaginn. Við röltum Laugarveginn, kíktum í búðir og vitaskuld verslaði ég mér smáflík Cool

Þegar ég svo á sunnudaginn ætlaði að nota flíkina sem ég keypti mér uppgötvaði ég að það hafði gleymst að taka þjófavörnina af.... Nú er það bara spurning hvað ég geri? Fer ég í Kaupfélagið og þykist alls ekki hafa stolið þessari vöru og bið um að þjófavörnin sé fjarlægð.... eða - nota ég kjólinn með þjófavörninni á og trikka allar varnir í búðum héðan í frá? Hugsið ykkur bara þegar ég fer í nýju flíkinni að versla í Bónus og þjófavörnin vælir í hvert sinn sem ég horfi á laukinn....? - Sko.. vegna þess að hann er staðsettur mjög nálægt útganginum W00t

Ég hef, undanfarna viku verið að "passa" heimsins undarlegasta kött! Hann er réttnefndur Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir.... ég kalla hann Mjása en hann heitir eitthvað allt annað......

Mjási í humáttHann kemur og fer eins og hann lystir, stekkur út um gluggann á annarri hæð eins og ekkert sé og situr svo sármóðgaður fyrir utan á morgnana þegar ég vakna. Hann kemur meira að segja með þegar Ljónshjartað og Hrekkjusvínið eru viðruð.... Má þó meira kalla það að hann sé í humátt frekar en samferða...... Mjási

Ég verð þó að viðurkenna það að köttur í glugga hefur alltaf einhvern óútskýrðan sjarma og einn daginn fæ ég mér kött. Ég er staðráðin í því! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hryllilega sætt kvikindi.

Jabb.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.7.2009 kl. 23:08

2 Smámynd: Vilma Kristín

Köttur er nauðsynlegur á hvert heimili. Verst að þeim fyrsta fylgir oft annar... og svo annar... og svo annar... nei, nú er ég hætt... ekki fleiri!!!

Vilma Kristín , 6.7.2009 kl. 23:23

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Einbúandi konudýr á bezta miðaldri eiga bæði eiga kött & rugguztól.

Þannigerettabarazda...

Steingrímur Helgason, 7.7.2009 kl. 00:24

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég hef farið heim með svona öryggisvörn á flík sem ég keypti til jólagjafar.  Ekki pípti í hliðinu á versluninni, og ekki hinum verslununum sem ég kom við í sömu verslunarferð.  Svo þegar ég fór aftur í verslunina kom ekkert píp.  Konan í versluninni var voða hissa, en ég var með kvittun og hún tók merkið af.   Ég byrjaði á einni kisu, núna eru þær þrjár.  Og tvær þeirra koma yfirleitt alltaf með mér og hundinum í göngutúra. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.7.2009 kl. 00:31

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ekki kött eitthvað allt annað!

Ía Jóhannsdóttir, 7.7.2009 kl. 08:17

6 identicon

Ég keypti jólagjöf í Jack and Jones ,lét pakka flíkinni inn.Þjófavörnin kom ekki í ljós fyrr en á aðfangadagskvöld

Ég er ekki spennt fyrir kisum,en hundar eru æðislegir

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.7.2009 kl. 12:27

7 Smámynd: Dúa

Reyna að fá þá í pylsuvagninum til að ná þjófavörninni af. Það er ekki smart að dandalast með svona og ekki hægt  að ná þessu sjálfur af án skemmda...trúðu mér

Dúa, 7.7.2009 kl. 18:42

8 Smámynd: Garún

Eða hrista aðeins uppí liðinu og segir að þetta sé svona "homing device" til að fylgjast með ykkur geðsjúklingunum...Þá verða allir svo skrítnir á svipinn og það er svo geðveikt skemmtilegt....hehehe

Garún, 8.7.2009 kl. 20:21

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Garún! Þú ert með þetta ;) eins og svo oft! Ég get svo þróað með mér geðveikislegt augnaráð og látið fylgja með!

Hrönn Sigurðardóttir, 8.7.2009 kl. 21:44

10 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Sammála. Kisa í glugga er alveg möst. Voðalega menningarlegt í þokkabót.

Gunnar Páll Gunnarsson, 8.7.2009 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband