Afar skrautlegur dagur....

....er að renna skeið sitt á enda!

Það fór um mig hrollur í nístingskuldanum úti á golfvelli í dagrenningu þegar ég beit á jaxlinn og bölvaði - í hljóði, að sjálfsögðu, ég er dama - vegna þess að ég gleymdi á mig vettlingum áður en ég fór út! Sumarið frá í gær var heldur betur stokkið á braut og ég skeiðaði hring á vellinum, kylfulaus og grínlaus Wink og þó var það ekki það skrautlegasta sem ég lenti í í dag.........

Byrjaði svo vinnudaginn á að tala dönsku - var þó varla farin að hugsa á íslensku Tounge Allt blessaðist þetta þó og ég fékk þær upplýsingar sem mig vanhagaði um! Enda var það ekki það skrautlegasta sem ég lenti í í dag........

Maðurinn með fallegu röddina hringdi í mig í dag Joyful Endilega hringdu bara sem oftast - alltaf gaman að heyra í þér Tounge Tala nú ekki um á svona dögum! Þó var það ekki það skrautlegasta sem henti mig í dag.....

Var að velta því fyrir mér öðru hverju í dag - hvar í ósköpunum ég gæti orðið fyrsta konan í einhverju! Kjeddlingar hafa gert alla skapaða hluti nú orðið!! Fyrsta konan var til dæmis á toppi Everest þennan dag fyrir einhverjum árum síðan. Og ekki nóg með það - heldur var hún líka fyrsta konan sem lenti í snjóflóði á leiðinni upp! Ég gæti til dæmis ekki verið sú fyrsta þar..........

Einhverjum árum síðar varð þessi sama kona fyrst til að ganga á hæstu tinda allra sjö heimsálfa. Þannig að það er farið........

Ég er að segja ykkur - þessar kjéddlingar sko! Þurfa þær að vera út um allt? Geta þær ekki skilið neitt eftir? Hverju á ég að stefna að í framtíðinni? Hver geta mín markmið orðið? Það er búið að öllu........

Ó og svo komst ég líka að því í dag að ég hef zero tolerance gagnvart fullum köllum!! En þó var það ekki það skrautlegasta sem henti mig í dag.....

Bróðir minn - fallegasti málvísindamaður norðan Alpafjalla - á afmæli í dag! Ég heyrði í honum nokkrum sinnum í dag og í hvert sinn gleymdi ég að óska honum til hamingju með daginn! Alveg þar til ég tók mig saman og hringdi í hann áðan InLove Krúttið er ekkert að erfa það við mig - hann er nú búinn að þekkja mig í öll þessi ár.

Þetta skrautlega sem henti mig í dag, var svo skrautlegt að ég verð eiginlega að eiga þetta skraut alveg sjálf, ég er rétt að byrja að flissa. Fólk getur verið svo skrautlegt Tounge Skondið orð - skrautlegt!

Veriði spök. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Skrautlegt er fallegt orð og er hátíðlegt! 

Ég held ég hafi verið fyrsta konan sem óð berfætt í englavík og fékk svo snafs frá Sollunni!

Ég hef nokkrar hugmyndir um fyrsta konan things!  Bara spurningin með þetta góða rjúkandi kaffi sko!

www.zordis.com, 16.5.2008 kl. 22:45

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Í dag varð ég fyrsta konan sem hefur fengið frítt make up á Spa inu í Hótel Selfossi sem er nýbúið að opna.  Mjög slakandi og ég var rosa falleg, fallegri en dags daglega, ef það er þá hægt. 

Ásdís Sigurðardóttir, 17.5.2008 kl. 00:24

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og það eru 221 dagur til jóla.  Omæ

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.5.2008 kl. 01:15

4 identicon

Til hamingju með bróðurinn skrautlega kona

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 07:59

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Allt þetta skraut er búið að gera mig forvitna  Annars held ég að ég hafi verið fyrsta konan á Íslandsi sem gaf út longplay plötu þar sem öll lög og textar voru eftir mig. Þannig að það er allavega farið líka, ef þér skyldi hafa dottið það í hug.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.5.2008 kl. 08:56

6 Smámynd: www.zordis.com

Buenos días querida!

Amma mín var fyrsta konan á Íslandi sem hlaut titilinn radio amator og mossadi af mikilli lyst!  Zetta zótti fréttnaemt og voru tekin vidtöl vid hana í svart hvíta imbanum og zessu man konan eftir!

(mundi zetta allt í einu) 

www.zordis.com, 17.5.2008 kl. 09:01

7 Smámynd: Dísa Dóra

Kanniggi að vera spök

Dísa Dóra, 17.5.2008 kl. 09:05

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gaman að þessu! Meira svona stelpur - þá veit ég líka hvar möguleikar mínir liggja....

Hrönn Sigurðardóttir, 17.5.2008 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.