Amen

Ég þurfti að tala við prest í síðustu viku. Ekki út af giftingunni - nei, nei - ekki strax! Það var í raun bara tilviljun að maðurinn er prestur, þannig séð..... Hefði allt eins getað verið smiður........ þess vegna kom svolítið á mig, þegar hann endaði símtalið á því að segja: "Guð blessi þig!!" Það passaði einhvern veginn ekkert inn í dæmið. Stakk mig þá og stingur mig svolítið enn........ Fór að velta fyrir mér hvort svona menn hrópa "Hallelúja" þegar þeir fá það......... Virkar svolítið fóní..... Pinch

Hitti pabba hérna úti áðan - sagði honum að "við" ættum að mæta til læknis á fimmtudaginn. Pabbi hélt nú ekki, var bara frekar hortugur Tounge þegar hann sagði mér að hann hefði talað við lækninn í síðustu viku og hann hefði sagt að þeir þyrftu ekkert að hittast fyrr en í maí! Svo sá hann hvað ég var vantrúuð á þessa sögu hjá honum og bauð mér með heim að skoða endurkomuskírteinin sín..... Ég þáði það, endaði með því að ég hringdi upp á Lansa og áður en við var litið var ég komin með doktorinn sjálfan í eyrað, mér brá nú hálf þegar HANN var allt í einu kominn í símann. En þetta er indæliskall - þessi læknir - staðfesti sögu föður míns um að allt væri í lagi og að þeir ætluðu ekkert að hittast fyrr en í maí - þegar pabbi kæmi að utan! Ég held enn að þeir séu eitthvað að plotta strákarnir. Ætla örugglega bara að hafa  konulausan dag, hittast og fá sér öllara saman Joyful 

Ég er EKKI frek - ég er ákveðin.....

....svo hefði mamma líka orðið brjáluð ef við hefðum ekki verið með þetta á hreinu InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Yes, flott þetta.

Steingerður Steinarsdóttir, 10.3.2008 kl. 16:28

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hahaha Hrönn ég var að springa af hlátri mér finnst þú frábær Þú getur alltaf fengið mig til að hlæja ég sver það og guð blessi

Kristín Katla Árnadóttir, 10.3.2008 kl. 16:56

3 Smámynd: Dísa Dóra

hahaha góð pæling hjá þér með prestinn

Dísa Dóra, 10.3.2008 kl. 17:17

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ákveðni er góð. Frekja er eitthvað ekki eins góð....

Markús frá Djúpalæk, 10.3.2008 kl. 17:19

5 Smámynd: www.zordis.com

Ég held að kaþólsku prestarnir séu komnir í himnaríki þegar þeir fá það!  Amen!

En það er sætt þegar fólk biður um blessun fyrir aðra og ekki verra af sendifulltrúa himnaherrans.

Eins gott að hafa allar vitjanir á hreinu.  Keli vinur minn plataði oftast alla nema mig því annars varð ég voðalega ákveðin

www.zordis.com, 10.3.2008 kl. 18:39

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er eins gott að vera viss, og nú ertu með efasemdir um hvort þú hafir eyðilagt góðan hitting  Halelúja.  En auðvitað ertu ákveðni en ekki frek.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 20:51

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, haleljúa, það skildi þó ekki vera.  Betra að hafa allt á hreinu með pabba sína. Ekki spurning. Knús austurúr.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.3.2008 kl. 21:47

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert að kafna úr frekju og stjórnsemi

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.3.2008 kl. 23:14

9 Smámynd: Brynja skordal

Hahaha þú ert yndi En stundum þarf maður að kanna hlutina sjálfur þú ert góð þetta kallast ekki frekja Góða nótt

Brynja skordal, 11.3.2008 kl. 01:04

10 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Frekja..... ég veit það ekki..???... en umhyggjusemi.... ó já.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 11.3.2008 kl. 08:05

11 identicon

Ég hef ekki heyrt HALELÚJA hrópað í mínu rúmi.Kanski tek ég ekki eftir því..Mínum presti hættir til að segja líka Guð blessi þig.Hehehehehe.Luis yndislegur og þú líka

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 09:39

12 Smámynd: Solla Guðjóns

Hmmm þarf að prófa til að komast að sannleikanum......þú fékkst þó bæði prest og lækni í eyrað

HALLELÚJA HALLELJÚJA HAL.....

Solla Guðjóns, 11.3.2008 kl. 11:25

13 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Prestar eru mannlegir. Þegar sonur minn var skírður var stórglæsilega frænka mín skírnarvottur og ég lýg því ekki að presturinn var svo upptekinn af því að glápa niður hálsmálið hjá henni að enginn skildi neitt í því hvernig honum tókst að skíra prinsinn. Svo er um að gera að hafa stjórn á foreldrum sínum og fylgjast með að þau geri eins og þeim er sagt.

Helga Magnúsdóttir, 11.3.2008 kl. 11:56

14 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Stórskemmtileg lesning. Skil annars karlinn hann föður þinn ágætlega að verða svolítið grumpy þegar hann er spurður hvort "við" þurfum nú ekki að fara að fara til læknis. Er sjálfur ákveðinn í því að þegar ég kemst á efri ár, ef allt gengur eftir, verði ég með tóman skæting og leiðindi þegar einhverjir fara að spyrja hvort "við" eigum nú ekki að fara að pissa eða eigum "við" ekki að gera þetta eða hitt. Hvernig höfum "við" það í dag?...... 

Halldór Egill Guðnason, 13.3.2008 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband